Fálkinn


Fálkinn - 01.08.1936, Blaðsíða 5

Fálkinn - 01.08.1936, Blaðsíða 5
F Á L K I N N 5 MAGNE SÖRFLATEN: TENGDASONUR SPÆJARANS. en stundum dregst það upp í klukkutíma og lengur að hann gjósi, einkanlega ef stutt er frá siðasta g'osi. Gosið byrjar að jafnaði með dvnkjum og drunum, en þó byrjar Geysir stundum alveg fórmálalaust. Fólk er furðu liirðulítið um þá hættu, sem af þessu getur stafað, því að það erú jafnan margir, sem standa upp á skálarhrúninni eins og forvitnir krakkar, og erfitt að koma þeim þaðan. Það er ekki ólíldegt að sl>rs þurfi að verða, til þess að vara fólk við þessari hættu, og' er það illa farið. — Gosið hyrjar með þvi, að vatns- gusur brjótast upp úr skálinni, sitt á livað, vatnsmiklar og þjett- ar. Meðan vatnið er í skálinni, nær gufuþrýstingurinn ekki að þeyla hinum beinu vatnsstrók- um hátt upp. Þetta gos er kall- að undangos og stendur ofl ná- lægt 8—10 mínútum, og ná strókarnir 15—-30 metra. Þegar það er húið kyrrist hverinn um stund, eins og hann sje að sækja i sig veðrið. og eftir svo sem 2—3 mínútur eða skemur, hyrj- ar liann á nýjan leik og þevtir nú gusunum þráðbeint í loft upp, hverri á fætur annari og hverri annari liærri, eins og íþróttamaður, sem er að ryðja sínum eigin metum. Það er mjög mismunandi hve lengi þetla aðalgos stendur. En að því loknu hyrjar gufugosið. Þeytist þá óbrotinn gufustrókur upp úr gígnum, með óskapleg- um sogum og livæsi, eins og margra miljón hestafla gufu- vjel væri að „blása af katlin- um“. Það er mikilsvert um feg- urð og hæð gosanna, að lygnt sje, því að í logni breiðist betur úr gossúlunni og hún kemst hærra en ella. Og ekki varðar þetta siður miklu um gufugosið. í logni verður það himinhátt og breiðist út í toppinn eins og greinar á pálmaviði. Það var þýski eðlisfræðing- urinn Bunsen, sem fyrstur bjó lil þá vísindalegu skýringu, sem dugði, viðvíkjandi eðli goshvera. Þessi heimsfrægi eðlis- og efnafræðingur ferðað- ist lijer um landið árið 1846, einkanlega til efnafræðirann- sókna i sambandi við hveri og eldfjöll og rjeð þá gátu gosliver- anna. Þegar gufan, sem strevm- ir að gígbotninu safnast saman undir vatninu í gígnum kemst hún ekki upp vegna þyngdar- innar á vatninu að ofan, fyr en hún liefir náð ákveðnum þrýst- ingi. Þrýstingurinn vex og þeg- ar hlutfallið milli hans og vatns- þyngslanna hefir komist á á- kveðið stig hrýst gufan upp og þeytir vatninu upp. Menn geta gert sjer i hugarlund hina ó- skaplegu orku eimsins, er þeir horfa á vatnið — og jafnvel stóra steina — kastast marga tugu metra í loft upp. Bunsen bjó til áhald er hann ljet gjósa eins og goshver og sannaði með því kenningu sína. Þó að athygli flestra, sem til Geysis koma snúist eingöngu að Geysi liinum stóra, þá er ekki úr vegi að gefa sjer tima til, að líta á ýmsa aðra liveri þar, sem gert hafa garðinn frægan. Áður liefir verið minst á Strokk. Uppi i brekkunni, miðja vegu milli hans og Geysis stendur „gler- augnahver“ einn, sem Blesi heit- ir. Gígar lians eru barmafullir af tæru valni, en athafnarlaus hefir liann verið um langt skeið. Fast neðan við hann er Fata, en austur af honum lítil hver- liola, urgandi og sjóðandi eins og brennisteinshver í Krísuvík og heitir Stjarna. En upp af henni er allstórt hverop, sem heitir Konungsliver. Hverasvæðið upp af veitinga- húsinu nefnist einu nafni Þvkku- hverir. Þar er Sísjóðandi vest- astur, en austarlega er Smiður, gamall og góðfrægur smáhver, sem gaus laglega fyrir 4 pund af sápu, meðan enginn annar irver var gjósandi í Haukadal. Á rima norðan við Þykkuhveri er dálítill liver, sem Óþerris- liola heitir, litilþægastur allra livera við Geysi. Því að sje munnurinn á henni byrgður með torfusnepli þá gýs hún. Hún spýtir að vísu mórauðu, en það er torfunni að kenna. Hjer skal staðar numið. Það yrði of langt mál hjer, að lýsa hinum einstöku hverum ítar- lega, enda eru lýsingar á nátt- úruundrum sem þessum ávalt ófullnægjandi. Þau undur eru svo mikil, að það er eigi furða, þó að fólk fjölmenni þangað, og skoði eitt af náttúruundrum heimsins, sem eigi er lakara en þau sjö, sem talin eru frá fornum öldum. Maxim Gorki látinn. Frægasta skáld Rússa af hinum eldri mönnum, Maxim Gorki dó hinn 18. júni eftir langvinn veikindi. Maxim Gorki, sem hjet rjettu nafni Alexej Maximovitsj Pejskov fæddist 1868. Hann misti ungur foreldra sina og ólst upp við hin verstu kjör og mörg ár var hann á flækingi um landið, atvinnulaus og umkomulaus. Enda var hann skáld hinna atvinnu- lausu og útskúfuðu. Fyrsta bók hans, sem athygli vakti kom út 1892, heim- spekilegar lýsingar af lífi umrenning- anna. Hann var róttækur i skoðun- um og það voru í aðalatriðum hans stjórnmálaskoðanir, sem komu fram fyrir fyrstu rússnesku byltinguna. Enda var hann settur i fangelsi 1905 og var þá mjög deilt um þennan mann, bæði utanlands og innan. Eftir fyrstu byltinguna settist hann að á Capri og samdi þar rit, sem dáðu mjög rússnesku uppreisnar- hreyfinguna. Og eftir byltinguna 1917 gerðist hann vinveittur stjórninni og dvaldi lengslum í Rússlandi eftir það, en þó á stundum erlendis. Meðal kunnustu bóka lians eru þær, setn segja lífssögu hans sjálfs, t. d. „Barns- ár“, „Úti í heimi“ og fleiri. Tilviljunin rjeð því að Artur Jepjtesen lenti í sömu lestinni og Edvard Holmsen og Nelly dóttir hans. Bifreiðin frá liá- fjallahótelinu beið á stöðinni lil þess að taka á móti væntanleg- um gestum, og þau lentu saman i lienni. Hann fram í hjá bíl- stjóranum og Holmsen og dóttir lians aftur í. ^ Artur Jeppesen var þreyttur og útslitinn eftir langt fram- haldsnám erlendis og' tók litið eftir því, sem frani fór kringum hann, en þó ekki svo, að hann tæki ekki eftir manninum með liarða svipinn og hinni fallegu stúlku, sem var í för með hon- um. Það var ekki fyr en þau voru komin á hótelið, að hún komst að því hvaða farþegar höfðu verið með honum. Holmsen spæjari og dóttir hans urðu fyrst til að skrifa nöfn sín í gestabókina. Þegar nýjasli pósturinn kom á hótelið sama kvöldið fengu gestirnir frjettina: í stærstu skrautgripaverslun borgarinnar, Thoms & Thoms, hafði verið framið innbrot um nóttina og stolið gimsteinum og skartgrip- um fyrir mörg þúsund krónur. Þjófurinn eða þjófarnir höfðu komist inn í búðina með fölsk- um lyklum. Þeir höfðu ekki lát- ið nein merki eftir sig svo að lögreglan var í vanda stödd. Hjet hún þeim manni tvö þús- und krórium, er gæti gefið upp- lýsingar, er leiddu til þess að þjófarnir næðust. Þessi frjett vakti mikið um- tal við kvöldborðið og Holmsen spæjari tók þátt í því ekki síður en aðrir. Það eru mjög lillar likur til þess að þjófurinn — eða þjófarnir sjeu ekki enn í borg- inni, sagði hann, — og þá nást þeir sennilega von bráðar, jafn- vel þó lögreglan hafi lítið við að styðjast. Það er líka svo mik- ið til af spæjurum, sem geta verið hjálplegir við slik mál, bætti hann við. — Gæti ekki eins vel lnigsast, að þjófarnir hefðu komist und- an upp i sveit, til dæmis á eitt- livert háfjallahótelið? sagði Ar- tur Jeppesen, sem sat beint á móti Holmsen. Holmsen leit upp og hleypti brúnum, liarður á svipinn að venju. Því hægara væri að ná í þá. Á flestum fjallahótelum eru staddir lögreglumenn eða spæj- arar í sumarfríi um þetta leyti. Og það vita þessir bófar allir, svo að þeir mundu þvi síður liætta sjer þangað. Artur Jeppesen hrosti þreytu- lega. — Þessir heiðruðu spæjarar geta ekki með góðu móti farið að láta til sín taka i starfinu, meðal annara sem eru í sumar- leyfi eins og þeir, nema þeir hafi sjerstakar ástæður til að siyðjast við grun. — Ojæja .... grun fær mað- ur hýsna fljót.t á slikum náung- um og þessum. Flestir afhrota- menn hafa ákveðin einkenni, og án þess þeir viti af því gera þeir ósjálfrátt ýmislegt, sem stvrkir gruninn. Jú, þjer hafið rjett að mæla, sagði Artur Jeppesen, og undir eins og hann hafði lokið við að borða fór hann upp i herbergi sitt og háttaði, en ljet hina halda áfram að lala um innbrotsþjófnaðinn. Það liðu fáeinir dagar. Nellv Uolmsen hafði farið i langa göngu og komist upp á fjalls- tind. Á leiðinni ofan, rjett fyrir ofan veginn sem lá niður að hótelinu, varð liún fvrir því ó- happi að festa fótinn milli tveggja steina. Hún hrasaði og datt og lá með fótinn fastan og' gat sig ekki lireyft. Hún reyndi að snúa sjer, en það varð árang- urslaust. Hún lá mfeð fólinn fast- an í sömu stellingUm sem hún datt, og þarna varð hún að dúsa þangað til einhver kæmi. Hún hrópaði á hjálp í þeirri von að einhver væri nálægur sem heyrði til liennar. Artur Jeppesen kom gangandi upp vegin og lieyrði ópin. Hann staðnæmdist til þess að átta sig á hvaðan þau kæmi. Svo kom hann auga á að einhver lá uppi i hlíðinni og flýtti sjer þangað. Þegar liann kom nær sá hann að þetta var Nellv Ilolmsen. — Hafið ]>jer meitt yður, fröken? spurði hann og laut að henni. •— Já, jeg festi fótinn milli þessara sleina og datt, og jeg get ekki losað mig. Artur Jeppesen losaði ann- an steininn og lijálpaði henni á fætur. En þegar hún revnir að stiga i fótinn getur hún það ekki. — Þjer liafið snúið yður um öklann. Og nú verðið þjer að láta mig hera vður niður að hótelinu. Artur Jej)pesen fær bros frá henni, sem löfrar liann. — Þakka yður fyrir. Það er

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.