Fálkinn - 31.10.1936, Page 3
F Á L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested.
Aðalskrifstofa:
Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—6.
Skrifstofa í Oslo:
Anton Schjöthsgade 14.
Blaðið kemur út hvern laugardag.
Askriftarverð er kr. 1.50 á mánuði;
kr. 4.50 á ársfjórðungi og 18 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftanir greiðist fyrirfram.
Auglýsingaverð: 20 aura millimeler.
Herbertsprent prentaði.
Skraddaraþankar.
,,Iikki er nema hálfsögð sagan þeg-
ai' einn segir frá“, segir máltækið.
Rómverjar ámintu líka um, að láta
orð beggja aðila sjer að eyrum koma.
Og líklega hafa mennirnir verið svo
frá upphafi vega sinna, að hentugra
þætti að heyra báða aðila áður en
dómur væri upp kveðinn.
Skýringin á þessu er auðsæ. Hún
er sú, að þegar menn flytja mál hvort
lieldur er fyrir rjetti eða í saintali,
þá segja menn sjaldnast nema liálf-
an sannleikann. Og þetta þarf alls
ekki að vera vísvitandi. Sínum aug-
um lítur hver á silfrið, og menn geta,
líversu samviskusamir sem þeir eru,
gleymt að télja fram atriði eða
málsbætur, vegnii þess að í þeirra
iiugum eru þær einskis virði. Það er
skoðun einstaklingsins og viðhorf
hans til hlutanna, sem ræður því,
að mat lians verður ekki eins og mat
hinna. Þetta hefir ætið verið svo og
verður ætið svo.
Það er stundum eins og menn vilji
óska þess, að allir menn hefðu sönm
skoðun, að minsta kosti á sumum
málum. Og stundum eru menn að
leitast við að safna fjöldanum um
ákveðnar grundvallarskoðanir, þar
sem allir segi já og amen. Þeir menn
eru líka til og ekki fáir, sem jafnan
eru eins og bergmál af öðrum, og
altaf eru á sama máli og „siðasti
vœðumaður"; En þessir menn eru að
jafnaði taldir einfeldningar.
Það er í rökræðum um málin sem
þau skýrast, Betur sjá augu en auga
og enginn maður er svo vitiborinn,
að hann hafi ekki gott af að heyra
álit annara á skoðunum sínum. Það
eru aðeins sjervitringarnir og ein-
þykkir þUmbararar, sem þykjast yf-
ir það hafnir að rökræða. Þeir eru
ekki „komnir hingað til að láta sann-
færast“ eins og maðurinn sagði forð-
um. Þeir þurfa ekki á annara viti
að halda, en eru sjálfum sjer nógir.
Hjer eru aðrar öfgar frá. En milli
þessara tveggja leiða; þeirra að vilja
engum sönsum taka og hinnar: að
vera altaf á sama máli og „síðasti
ræðumaður" er breið slóð, sem flest-
ir feta. Hvor útleiðin liefir litið til
sins ágætis. En liitt er leiðin, sem
liggúr fram, að íhuga annara skoð-
anir, bera þær saman við sinar eigin,
vinsa úr það besta og halda því en
fieygja hinu. Þeir menn verða lang-
lífir í landinu og eflast að vitsmun-
um alla æfi sína en hinir vaxa i njóla
og verða engum til uppbyggingar.
Þjálfun dómgreindarinnar er sú sál-
arleikfimij sem öllum er þörf 'á. Hún
r.kapar betri menn og sanngjarnari.
P. Schannong legsteinasmiður i
Kaupmannahöfn hefir gefið Menta-
skólanum vandaða marmaratöflu til
minningar um Niels R. Finsen, höf-
und ljóslækninganna. Eins og kunn-
ugt er var Finsen af íslensku bergi
brotinn, einn hinna mörgu niðja
Hannesar Finnssonar Skálholtsbisk-
ups, og fæddist hann í Færeyjum. En
hjer gekk hann á Latínuskólann og
útskrifaðist frá honum árið 1882, og
er taflan til minningar um dvöl hans
þar og verður fest upp í skólagang-
inum.
Á þriðjudaginn var kl. 11 fór fram
afhjúpunarathöfn í hátíðasal Menta-
skólans. Voru boðnir þangað nánustu
ættingjar Finsen hjer i bænum, börr.
Ola heitins Finsen póstmeistara, en
þau og Niels Finsen voru systkina-
börn. Þá voru og boðnir eftirlifandi
sambekkingar Finsens, en þeir eru
fjórir hjer í bænum. — Bruun sendi-
sveitarráð Dana, sem nú gegnir sendi-
herrastörfum lijer afhenti minningar-
Pjetur Grikklandsprins var nýlega
á skemtiferð um Pólland í bíl. M. a.
kom hann í bæinn Parnopol og gerði
sjer til gamans að taka ljósmynd af
víginu þar, en það er bannað. Undir
eins tóku lögreglumenn prinsinn
fastan og er hann sýndi vegabrjef
töfluna fyrir hönd gefanda. Þar sjest
sólarupprás á ofanverðri töflunni og
stafar sólin gullnum geislum upp á
við til hliðanna. En að neðan er letr-
að: NIELS R. FINSEN IN HOC.
SCOLA DIDICIT 1876—1882. Hefir
Finnur Jónsson teiknað töfluna. —
Bruun sendisveitarráð mintist afreka
Finsens og heimsfrægðar hans, en á
eftir honum flutti Gunnl. Claessen
ítarlegt erindi um lífsstarf hans og
uppgötvanir. Næst talaði Haraldur
Guðmundsson ráðherra og þakkaði
gjöfina í nafni skólans. Hjer að ofan
birtast myndir af Niels Finsen og
ennfremur mynd af aflijúpunarat-
höfninni. Sjest minningartaflan þar
fyrir framan ræðustólinn en í honum
er Haraldur Guðmundsson. Á mynd-
inni sjást ennfremur frá vinstri:
Ágúst H. Bjarnason, Garl Olsen stór-
kaupm., Niels Dungal, Gunnl. Claes-
sen, (',. Bruun sendisveitarráð og
Pálmi Hannesson rektor.
sitt þótlust þeir vissir um, að það
væri falsað og þóttust nú vissir um,
að hafa gómað hættulegan njósnara.
Loks komst þó hið sanna upp og var
Pjetur látinn laus, er hann hafði
setið i fangelsinu i fjóra tima.
Haraldur Árnason kaupm. verð-
ur 50 ára A. uóv.
Dr. Benedikt S. Þórarinsson
verður 75 ára þ. 6. nóv.
Magnús Bl. Jónsson, fyrv. presl-
ur, verður 75 ára 5. nóv.
Sigurður Gunnlaugsjsón, fyrv.
skipstjóri, varð 65 ára 29. þ. m.