Fálkinn - 31.10.1936, Page 7
7
F Á L K I N N
Fimmburarnir í Dionne í Canada eru heimsfrægir og mikið með
þá látið, en Michiganfylki í Bandaríkjunum þykist hafci dálítið
að hreykja sjer af, nefnilega fjórburunum sínum, sem nú eru
orðnir sex ára og byrjuðu í skólanum í haust. Þessir fjórburar
sjást á myndinni og heita Edna, Sarah, Wilma og Helen Morlok.
Kvikmyndadísin Katherine Hepburn varð nýlega fyrir árás af
hendi tveggja bófa, skamt frá heimili sínu í Hollywood. Skutu
þeir á hana sex skotum en hæfðu hana ekki. Hjerna sjest hún
í einu af síðustu hlutverkum sínum, sem María Stuart í mynd
sem gerð hefir verið eftir leilcriti Shakespeares. Þykir hetmi tak-
ast mjög vel í myndinni.
mmm
mm
wmmmm
t®fil
wémImmKÍÍMíim
BÉI
.
s\ :
MMi
11111
/ Englandi hafa menn tekið upp á því, að setja upp stóra spegla
við beygjur á götum, svo að vegfarendur geti sjeð fyrir hornin.
Þykir þetta geta orðið til þess að draga úr árekstrum.
Myndin hjer að ofan er sunnan úr Bayern og er tekin i septem-
berlokin, þar sem piltur og stúlka eru að tína vínberin. Þau eru
borin heim í íláti, sem er nauðalíkt gömlu bullustrokkunum
hjerna.