Fálkinn


Fálkinn - 07.11.1936, Blaðsíða 8

Fálkinn - 07.11.1936, Blaðsíða 8
8 F Á L K I N N Pardusdýrið er eitt útbreiddasta dýrið af kattarættinni og lifir um nálega alla Afríku og allan suðaust- urjaðar Asíu. Þó að það lifi mest- megnis á stórum spendýrum ræðst það ekki nema sjaldan á konur og börn og nær aldrei á fullorðna karl- menn. ()g það er fremur auðvelt að temja það. Myndin til hægri sýnir bvernig dýratemjari einn hefir gert pardusdýrin elsk að sjer. Maður skyldi halda, að það væru kettir, sem hann er að leika sjer við. Hvarvetna á dýrasýningum þykir fólki gaman að því að skoða smá- grísina. Þannig vöktu þessi systkini, sem sjást á myndinni hjer að neðan óskifta athygli á sýningu einni ný- lega. Þessir tveir litlu hestar á myndinni hjer að ofan þóttu fríðustu gripirnir á hrossasýningu sem haldin var í Bristol í haust. Takið eftir hve líkir þeir eru íslenskum hestum i sköpu- lagi, bæði á hausinn, bringuna og makkann, og hve þeir bera líkt fæt- urna. Þeir eru af smáhestakyni frá Norður-Skottlandi. Myndin til vinstri er af heræfingum, sem nýlega fóru fram við Englands- strendur. Hermennirnir eru látnir vuða í land úr bátunum, en twer þeirra verður að hafa reiðhjólið sitt með sjer!

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.