Fálkinn


Fálkinn - 07.11.1936, Blaðsíða 11

Fálkinn - 07.11.1936, Blaðsíða 11
F Á L K I N N 11 VNftftll l£/&NbUftMIR Óhreinir seðlar eru hættulegir. ÞiÖ niunduð eflaust ekki verða lílið liissa ef l)ið fengið að líla á venju- legan peningaseðil, sem verið liefir í nmferð um tíma, og sæið alt það. sem þar er á kreiki. Lítið þið á þessar myndir, sem eru teiknaðar eftir Ijósmyndum, er tekn- ar hafa verið í smásjá. Nr. 1 sýnir nokkra af íbúum peningaseðilsins. Þar er heilt hverfi, sem hygt er gróum þeim, sem framleiða myglu. Þessi gró taka sjer bólfestu í rifum og fellingum í pappírnum og eru að vísu einna mist skaðleg af öllum ibúum seðilsins. Nr. 2 er ekki mynd af tunglinu, þó að ykkur gæti máske dottið það í hug, heldur mynd af vatnsdropa, sem mettaður hefir verið með óþrif- um af peningaseðli. Maður sjer þar ýms gró og gerla. Löngu kvikindin, sem eru eins og ormar í laginu eru hinar svonefndu edikssýrubakteríur, orsmá kvikindi, sem framleiða edikið. Mynd nr. 3 er ekki heldur neitt falleg. Það er myglujurt, sem nóg er til af. f ofurlitlu af óhreinindum frá peningaseðli fundust um 100.000 eintök af þessu tagi. Eins og þið sjáið er talsverð á- stæða til, að viðhafa varúð gagnvart seðlunum. Annað ,hlekkjabragð‘. Spyrjið fjelaga ykkar hvort hann geti gert þrjá samfasta hlekki úr papírsræmu, sem aðeins má límn saman einu sinni og hann má ekki ldippa nema tvisvar. Jeg er viss um að hann gefst upp við þessa þraut, en nú skal jeg sýna ykkur hvernig farið er að þessu. Takið þið papnírsræmu (1) og skifl- ið henni i þrjá jafnstóra hluti með því að draga blýantsstrik eftir lienni endilangri. Snúið svo á ræmuna eins og sýnt er á 2 og límið svo endana á ræmunni saman, þannig að blý- antsstrikin mætist. Þegar límingin er orðin þur þá klippið þið með skær- unum eftir blýantsstrikunum og þá koma hringirnir þrír fram — og allir samfastir. Efst á myndinni sjást þeir allir. Samfastir tréhringir. Öllum iðnum fylgja ýms sjerkenni, sem þeim ófróðu þykja furðuleg galdraverk. Sjómennirnir sýna oft flöskur með vandlega gerðum skipslík önum innan i og eru skipin sett sam- an innan í flöskunni, því að ómögu- legt er að koma þeim í heilu lagi gegnum stútinn. Og smiðirnir gera það að gamni sínu að sýna fóllc keðjur úr trje, þar sem hringirnir eru heilir, en ekki límdir eða skeytt- ir saman. Þetta virðist í fljótu bragði ganga galdri næst, en ef l)ið athugið það nánar þá kemur það á daginn, að hver sæmilega lagtækur drengur get- ur hæglega gert þetta. Þið þurfið ekki annað en sög og sæmilega beitt an og oddmjóann vasahníf. Hjerna á myndinni getið þið sjeð hvernig farið er að þessu. Efst á myndinni s.iáið þið spítukubbinn, sem þið eigið að nota (1). Hann er 18 centimetrar á lengd og 0 centimetrar á hvern kant. Viðurinn á lielst að vera harð ari en fura, því að hún vill springa. Brenni er ágætt. Þið strikið trje- kuhbinn og sagið svo úr honum eins og sýnt er á (2). Svo skiftir maður bvorri hlið í þrjá jafnstóra hluti og sagar skástrikuðu pariana af. Þá lítur spýtan út eins og sýnt er á 3. mynd. Síðan eru teiknuð tvö snor- öskjumynduð op á klossann og tálg- uð göl á með hnifnum Koma þá fram Iveir hlekkir samfastir en ferkantaðir að utan. Nú er ekki annað eftir en að grenna lilekkina og tálga þá til bæði að utan og innan, og að því búnu eru þeir fægðir með sandpappí -. Með því að taka lengri spítu og skifta henni niður eftir sömu að- fcrð og áður, er vitanlega hægt að búa til fleiri lilekki samfasta. LAUSN Á GÁFNAÞRAUTINNl i síðasta blaði: Músin i búrinu. lndjánadans í eldhúsinu. Brjótið saman pappirsræmu eins og sýnt er til hægri á mynd d og teiknið viðlíka mynd á fremsta brot- ið. Klippið svo myndina út eftir strikinu og rjettið úr blaðinu og kem- ur þá fram röð af smámyndum af fólki, sem helst i liendur. Takið svo þykl pappaspjald og borið margar holur i það — og farið svo með það fram í eldhús. Þar stendur liklega pottur á eldinum og þegar sýður í honum takið þið lokið af honuin en setjið pappalokið yfir hann í staðinn. Ef þið setjið nú útkliptu brúðurnar ofan á pappalokið þá fara þær þegar í stað að dansa villimannadans. Það er vitanlega enn meira gaman að horfa á dansinn ef brúðurnar eru málaðar og helst með fjöðrum á höfðinu. — En munið eftir að slökkva á gasinu þegar þið eruð liætt dan«,- sýningunni. Tóta frœnka. BADEN POWELL LÁVARÐUR alheimsforingi skátalireyfingarinnar var nýlega að gifta dóttur sína. Hjer sjást þau bæði er þau eru að fara að heiman og í kirkjuna þar sem vígsl- an fór fran>. EINKENNILEGUR IvÍKIR er það sem sjest lijer á myndinni. Prismu brjóta ljósgeislana svó að sá sem kikir hefir getur sjeð hærra en með berum augum. Kíkirar þessir eru notaðir í þýska hernum. TRÖLLAUKIN NAÐRA 16 fet á lengd var nýlega send frá London í dýragarðinn i Moskva. Urðu fjórir menn að taka á því sem þeir áttu til, til þess að koma nöðrunni i kassann, sem hún var send í.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.