Fálkinn


Fálkinn - 17.07.1937, Blaðsíða 2

Fálkinn - 17.07.1937, Blaðsíða 2
2 F Á L K I N N GAMLA BÍÓ Þrjú lif fyrir eitt. Efnisrík og afarspcnnandi mynd frá Vesturheimi. Aðalhlutverkin leika: LEWIS STONE. CHESTER MORRIS, WALTHER BRENNAN, IRENE HERVEY. Myndin er tekin af MetroGold- wyn Mayer. Verður sýnd bráðlega. Þelta er Melro-Gold-wyn mynd úr „The Wild West“ og hinn mikli snillingur Richard Boleslavski hefir sjeð um töku hennar En efnið er eftir skáldsögu einni, sem kunnur höfundur, Peter B. Kyne, hefir sam- ið. Gerist mest af myndinni úti í eyðimörkum Vestur-Bandaríkjanna, þar sem sólin svíður allan gróður jafnóðum og hann fæðist og þar sem vatnið er eitrað og þorstinn er mesti meinvættur ferðamannsins. Það eru þrír hófar og ein góð stúlka, sem þarna koma mest við siigu. Bófarnir eru Bob Sangster, hið mesta fúlmenni og hrappur, „Doc" Undervvood, mentaður maður og hefir góðar taugar þó hann sje þorp- ari og Gus, sem hvorki kann að lesa nje skrifa, en er gamansamur og veit ráð við öllu og hlýðir „Doc“ i blindni. Með þessum þremur er ungur mexíkani, Pedro að nafni, sem er einskonar vikadrengur Bobs. Þessir fjórir eru nú á leið til bæj- arins New .lerúsalem í þeim erind- um að ræna þar bankann, en frá þeim bæ er Bob ættaður og jjekkir þar flesta, þ. á. m. Molly dóttur prestsins, en henni hefir hann verið trúlofaður áður en hann fór úr bænum. Þetta er um jólin og nú vill svo til að presturinn heldur jólaboð fyrir þorpsbúa kvöldið sem þeir koma. Eru þeir allir gestir þar i lioðinu og þar hittir Bob Molly vinkonu sína, sem nú er trúlofuð Frank Benson, sem er gjaldkeri í bankanum. Bob leggur hana í einelti og um stund gerist hún talhlýðin við hann, en brátt sjer hún að hann er ekki ástar hennar verður. Daginn eftir ræna þeir fjelagar bankann og Bob skýtur á Frank fje- hirði en banar honum þó ekki. Þorp- ararnir leggja á flótta en bæjarbúar elta flóttann og drepa Pedro, en hinir komast undan út i eyðimörk- ina. Nú byrjar hinn átakanlegasti hluti myndarinnar er bófarnir fara stað úr stað til að leita að vatni, eii hvergi er vatn að fá nema jiar sem aðvörun stendur um, að vatnið sje eitrað. í þessari ferð rekast þeir á lík af inanni og nokkru síðar finna l>eir vagn með konu og barni og er konan að dauða komin af þorsta. En meðan J>eir eru að stumra yfir henni komast hestar þeirra i eitrað vatn og drepast allir. Bob vill gera út af við barnið, en Doc ræður því, að l>að er ekki gert. Sögulokin verða á þann veg sem fæsta grunar, en svo fer að þorpararnir þrír týna lífi en bjarga barninu. Á hvern hátl það gerist, segir myndin best sjálf. I mæsta blaði „FÁLKANSU er saga eftir Kristen Gundelach: ,,F ramhaldssagari'. Þar segir frá kornungum ritstjóra aö stjórnarblaði og heitmey hans og tildrögunum til jiess, aö ágæt neöanmálssaga veröur til. Sagan er bráöskemtileg og spenn- andi. -------- NÝJA BlÓ. ------------- Hðsakbahðlðin olnn Tarass Bulba. Frönsk stórmynd eftir sam- nefndri sögu skáldasnillingsitis N. Gogol, gerð undir stjórn rúss- neska leikstjórans Alexander Granovski. Aðalhlutverkið leik- ur, af frábærri snild frægasti skapgerðarleikari Frakklands HARRY BAUR. Ennfremur: Danielle Darriaux og Pierre Aumant. í síðasta blaði Fálkans var greinl nokkuð frá hinu merkilega rússneska skáldi Nikolas Gogol, sem varð braut ryðjandi í bókmentum 19. aldar i Rússlandi. Nú vill svo lil að Nýja Bíó sýnir merkilega kvikmynd á næstunni, sem gerð er eftir einni af sögum hans, og heitir Tarass Bulba. Gefur myndin því gott tæki- færi til að kynnast því umhverfi, sem Gogol lýsir i ritverkum sínum og aldarhættinum í Rússlandi um miðja 19. öld. Tarass Bulba er Kósakkahöfðingi, sem óvingast við pólska landstjói- ann sem yfir hann er settur. Hann á tvo syni, sem hafa gengið i há- skólann i Kiev og þar hefir annar þeirra, André, trúlofast ungri og fallegri stúlku, Marinu. Það kemur ur seinna á daginn, að hún er dótl- ir hins pólska landstjóra. Nú fer Tarass Bulba með her manns á hend- ur landstjóranum og hygst að taka vígi hans. André kemst á snoðir um hvar Marina er og sendir fyrir henn- ar orð vistir inn í vígið sem faðir hans er að reyna að svelt út. Þetta lcemst upp og Tarras Bulba skýtur sjálfur son sinn fyrir landráð. En þar með er sagan ekki öl 1 sögð. Við- ureign þeirra höfðingjanna er ekki þar með lokið, þeir eiga ennþá eftir að berast á banaspjótum. Og æf: hins aldna Kósakkahöfðingja Tarass Bulba lýkur á mjög áhrifamikinn hátt, er hann helsærður lilnefmr hinn eftirlifandi son sinn til „het- manns“ yfir Kósakkana sína. Þetta er frönsk mynd og tekin undir stjórn Alexanders Granovski. Frakkar hafa á síðustu árum tekið hverja myndina annari betri og ef góð kvikmynd er til þá er þessi það. Líf þessara hólftryltu berserkja, Kós- akkanna, sem aðeins þekkja eitt liig- mál: stríð, er svo meistaralega mál- að, að myndin festist í hugann. Og meðferðin á hlutverki Kósakkahöfð- ingjans er þannig, að manni liggur við að segja, að aðeins Harry Baur geti leikið þennan mann. Því að j>að er þessi mikli og töfrandi leik- höfðingi, sem leikur Tarass Bulba. Þó að Baur sje kominn yfir sextugl bætir hann við sig hverju hlutverk- inu eftir annað og er i sífelduin vexti í listinni. Marine, dóttir pólska landstjórans, er leikin af Danielíe Darrieaux, sem flestum er i fersku minni úr mynd, sem hún ljek í ný- lega. Hjer sjest hún í öðru hlutverki, sem er fjarlægt hinu fyrra, en tekur það sömu meistaratökunum. - Þessi ágæta mynd verður sýnd á næstunni. júní og var komin til Batavia, en á leiðinni þaðan austur yl'ir Kyrrahaf týndist hún. Hefir hennar verið leit- að árangurslaus siðan, bæði al' her- skipum og um 60 flugvjelum og er talið að leitin hafi kostað yfir miljón krónur á dag. Er nú vonlítið orðiö um, að hún sje á lífi. Amelia Earhart var frægasta flug- kona veraldar, og flug hennar meiri afrek en flugkonunnar Amy Jolin- son Mollison. Hún varð 38 ára göin- ul, fædd í Kausas í Ameríku. A stríðsárunum var hún hjúkrunar- Frh. á bls. 15. ÁttræÖar uröu síöastliöinn miÖvikudag si/sturnar Sólveig og Þórlaug .lónatansdætur, Reykjavíkurvegi 30 í Hafnarfiröi, fæddar l't. júlí 1857 ii Hjaröarbóli i Eyrarsveit. Lengst af æfinni hafa j>ær átt heima vestra en flnttust lil Hafnarfjarðar fyrir nokkrum árum. Myndin til vinstri er af Þórlangu en sú til hwgri af Solveigu. Þá er grein um ríkisþing Svía, sem er elsta þing norrænna þjóða og þó helmingi yngra en Alþingi. Sænska þingið á sjer merkilega sögti og lýsir greinin því hverjar orsalcir lcgu til stofnunar þess og uppreisnar Engilbrekts Engilbrektssonar, sem er meö rjettu talinn þjóðfrelsishetja Svía. Þá er grein um Henrik lbsen. frægasta leikritaskáld Noröurlanda. í greininni er rakinn i stuttu máli æfiferill þessa stórskálds sem barðist gegn þröngsýni þjóöar sinnar og sem á sannaðist þaö, aö „enginn ev spámaður i sínu föðurlandi“. Nú er Ibsen dáður um altan heim, m. a. af íslendingum, sem sjeð lmfa ýms verk hans leikin, eða hafa lesiö veigameslu rit hans „Brand' ‘ og „Per Gynt“ i hinum snildarlegu þýö- ingum Mátthiasar og Einars Bene- diktssonar. Og hversu margir kann- ast ekki við Matthíasar-þýðinguna a „Þorgeiri í Vik“? Fálkanum hafa borist mörg til- mæ.li um, aö hafa lengri ’kafla i einu af nýju neðanmálssögunni, því aö hún þykir svo spennandi. Því mið- ur er ekki hœgl aö talca lengri kafla i einu, sökum rúmleysis. En að gefnu þessu tilefni, þykir rjett að minna þá, sem ekki hafa lesiö sög- una frá upphafi, á aö ná sjer i byrjunina og fytgjast síðan með í henni. Sagan byrjaði i 2.5. blaöi. Frú Kristín Árnadóttir, Skóla- vörðust. 8, varð 60 ára 12. />. m. Ólafur H. Jónsson kaupmaður Hafnarfirði verður 50 ára 17. þ. m. Amelía Earhart flugkona. Siðasta hálfa mánuðinn hefir eigi verið um annað meira talað um all- an heim en hvarf hinnar frægu am- erikönsku flugkonu Ameliu Earhart, sem hvarf nálægt Howlandseyjum í Kyrrahafi þ. 30. júní. Hafði hú.i lagt upp í flug kringum hnöttinn 1.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.