Fálkinn - 17.07.1937, Page 14
14
F Á L K I N N
BÚNAÐARFJEL. ÍSLANDS 100 ÁRA.
Framhald af bls. 3.
arlögin komu til sögunnar. Sigurður
SígurSsson varð einskonar frarn-
k væmdarstjóri fjelagsins og síSan
búnaðarmálastjóri, en sjerstök stjórn
var kosin fyrir fjelagiS jafnframt.
Tryggvi heitinn Þórhallsson var þá
kosinn formaður fjelagsstjórnarinn-
ar og gegndi því starfi til dauða-
dags, 1935, en síðan hefir Magnús
Þorláksson bóndi á Blikastöðum ver-
iS formaður. Núverandi búnaðar-
málastjóri er Steingrimur Steinþórs-
son alþingismaður, en um skeiS voru
búnaðarmálastjórarnir tveir og
gegndi Metúsalem Stefánsson þá'ann-
ari stöðunnj og um tíma var hann
einn búnaðarmálastjóri. — Þetta er
í sem stystu máli saga fjelagsskap-
arins frá öndverðu til þessa dags.
En innan skamms mun þeim sem óska
veitast kostur á, að lesa itaríega
sögu fjelagsins og búnaðarframfara
á íslandi, þvi að í tilefni af afmæt-
inu hefir Búnaðarfjelagið látið skrifa
afmælisrit stórt og vandað, sem
væntanlegt er á bókamarkaðinn á
næstunni. Er ritverk þetta í tveimur
bindum og segir annað þeirra sögu
Búnaðarfjelagsins sjálfs og er samið
af dr. Þorkeli Jóhannessyni. En
hitt bindið ritar Sigurður Sigurðs-
son búnaðarmálastjóri og segir þar
frá merkustu búnaðarframförum á
íslandi á þeirri öld, sem búnaðar-
fjelagið hefir starfað.
Sjálf afmælishátíðin fór fram í
Alþingishúsinu fyrra fimtudag og
hófst kl. 1 síðdegis. Flutti formaður
stjórnarinnar, Magnús Þorláksson
þar itarlega ræðu um fjelagið, en
Hermann Jónasson landfiúnaðarráð-
herra hjelt ræðuna fyrir minni fje-
lagsins. Hinir útlendu gestir töluðu
og fyrir fjelaginu, de Fontenay sendi-
herra fyrir Danmerkur hönd, Ole
Herzog flutti kveðju norska „Sel-
skabet for Norges Vel“ en Winther
Liitzen kveðju frá Búnaðarfjelagi
Færeyja. Hallgrimur Þórarinsson
flutti kveðju frá Búnaðarsambandi
Austurlands og afhenti Búnaðarfje-
laginu að gjöf fagurt málverk af
Snæfelli, eftir Finn Jónsson málara.
Og Árni Eylands forstjóri flutti
kveðju frá þýska fjelaginu 1. G.
Farbenindustrie og Norsk Hydro og
las upp gjafabrjef frá þessum fyri.r-
tækjum, þar sem þau ánafna Búnað-
arfjelaginu 3000 krónur er renni til
stofnunar sjóðs, sem skuli varið tii
þess að veita verðlaun ungum mönn-
um, sem skari fram úr öðrum í
námi sinu í búfræði. — Athöfnin
stóð yfir i rúma tvo tima og lauk
með því að Karlakór Reykjavíkur
söng þjóðsönginn. Síðan skoðuðu
gestir hina nýju rannsóknardeild
Háskólans i þágu atvinnuveganua
og voru síðan gestir forsætisráð-
herra i kaffidrykkju. Og um kvöldið
var fjölment samsæti á Hótel Borg.
Næstu daga var gestunum boðið í
skemtiferðir austur um sveitir, en
b.inum útlendu gestum var ennfrem-
ur boðið i skemtiferð norður í land.
----------------x——
ÚTBREIÐSLA ÍSL. FUGLANNA.
f rh. af bls. 11.
þeim á Tjörnina í Reykjavik,
og döfnuðu ungarnir þar fljótt
og vel. Báðar þessar síðast-
nefndu tegundir verpa í Græn-
landi og Norður-Ameríku, hús-
öndin í nyrstu löndunum þar.
að austan og vestan. En straum-
öndin hefir einnig numið land
frá Ameríku vestur á bóginn
og er í Síberíu og vestur að
Baikalvatni.
Kringum alt norðurhvelið eru
einnig snjótitlingur og auðnu-
titlingur (hinn síðarnefndi held-
ur sunnar), en báðir skiftast í
margar undirtegundir. Skyldar
legundir af rjúpum eru um alt
norðurhvelið norðantil, og auk
þess liátl til fjalla í Ölpunum og
Pyrenafjöllum. Bjúpur eru ekki
í Færevjum, en þær voru fluttar
þangað frá Grænfandi vorið
1890, alls 10 eða 11 hjón. Loks
má nefna tildru og selling, sem
eru hringinn í kringum norður-
hvelið; tildran er hánorrænn
fugl, sem hefir hjer suðurtak-
n örk varpstaða sinna, en fer
langt suður á vetrin (Suður-
Afríku), en sellingurinn er hjer
arsfugl.
Allmargar tegundir sjólugla
eru beggja megin við Atlantshaf
nyrst, svo sem hafsúla, langvia,
stuttnefja, teista, álka, haftirðill
og lundi. Sumar þeirra (eða
náskyldar tegundir) eru einnig
nyrst i Kyrrahafi, svo sem stutt-
nefja, álka og lundi.
Að síðustu má geta, að sumir
fuglar eru útbreiddir yfir til-
tölulega lítið svæði. Þannig verp-
ir veiðibjalla (svartbakur), að-
eins nvrst á Rússlandi, nyrst i
Skandinavíu og lítilsháttar í
Færeyjum og við Skotlands-
strendur, auk þess sem liún
verpir hjer. Skúmurinn hefir
ennþá takmarkaðri úthreiðslu.
Ilann verpir ekki, það menn
vita með vissu, nema á Hjalt-
landi, í Orkneyjum, i Færeyjum
og hjer. En sumir halda að
hann muni einnig verpa við
Hudsonflóa i Ameríku.
Ólafur Fridriksson.
----x
ENSKIR PENINGAR
með mynd Georgs 6. voru settir í
umferð skömmu fyrir krýninguna í
vor Sjest hjer mynd af enskum
penny. Það er siður i Englandi, að
nýr konungur er jafnan látinn snúa
i aðra átt á myndinni en fyrirrenn-
ari hans. Georg 6. horfir til vinstri
eins og faðir hans, en á peningunum
sem gerðir voru af Játvarði 8. og
aldrei komu í umferð sneri myndin
lil hægri.
----x———
Hefst notkun veiðifálka á ný?
Fyrrum voru íslenskir fálkar flutt-
ir úr landi hjeðan í stórum stíl.
Yoru það Danakonungar, sem sótt-
ust mjög eftir þessum fögru fuglum
og ljetu temja þá til veiða og notuðu
ýmist sjálfir eða gáfu þjóðhöfðingj-
um suður í Evrópu, sem þeir vildu
vingast við, fuglana. Þóttu engar
gjafir betri i þá daga en veiðifálkar
frá íslandi. Fyrir meira en hundrað
árum lagðist þetta að miklu leyti
niður og fálkaveiðarar konungs hurfu
úr sögunfii og fálkahúsin — eitt
þeirra var við núverandi Hafnars-
stræti í Reykjavik — lögðust niður.
En þar voru fálkarnir geymdir með-
an jieir biðu skipsferða til útlanda.
Á síðustu árum mun talsvert hafa
verið um það, að fálkaungar væru
teknir í hreiðrum og seldir úr landi,
en lítið hefir verið um það talað,
og Hestir af þessum ungum munu
hafa drepist von bráðar. En í vor
komu hingað tveir erindrekar frá
Þýskalandi til þess að kaupa íslenska
fálka. Heitir sá dr. Heinz Brúll, sem
fyrir förinni var og fjekk hann alls
12 fálkaunga hjer á landi, ýmist á
Austurlandi, Norðurlandi og Vest-
fjörðum, og hafði með sjer til
Þýskalands.
Tilefnið til þessara fálkakaupa er
l>að, að á ýmsum stöðum i Þýska-
landi eru menn farnir að tíðka
tamningu fálka og nota þá til fugla-
veiða eins og í garnla daga. Meðal
annars hefir Göring mikinn áhuga
á þessum veiðum og fær eitthvað af
fálkum þeim, sem dr. Brúll hefir
fengið hjer. Þjóðverjar hafa stundað
þetta fálkauppeldi eftir strangvis-
indalegum reglum og þessi fálkakaup
þeirra nú, eiga að skera úr því, hvort
íslensku fálkarnir þoli suðrænna
loftslag en hjer er, en á því hefir
þótt leika nokkur vafi, vegna þess
hve margir hafa drepist á undan-
förnum árum af þeim, sem fluttir
hafa verið til Englands og Þýska-
lands. Er þess að vænta oið þessi tal-
raun takist vel, því að íslenskir
fálkar fnundu minna á ísland er-
lendis.
En hitt ber að athuga, hvort ekki
væri rjett að hafa eftirlit Ineð því,
að fálkastofninum í landinu verði
ekki bfgert. Engan mun langa til
þess, að fuglinn, sem prýddi liið
gamla skjaldarmerki þjóðarinnar,
verði aldauða á íslandi.
x-
HITLER SKRIFAR NAFNIÐ SITT.
Á siðasta afmælisdegi Hitlers ljet
hann það boð út ganga, að ölluni
væri heimilt að koma til sín og
skyldi hann skrifa nafnið sitt fyrn’
þá. Hjer á myndinni sjesl hann
umkringdur af rithandasöfnurum.
----x----
í sumar, liegar innbrotsþjófnaðirn-
ir voru svo algengir, meðan fólkið
var uppi i sveit í sumarleyfinu,
fann maður nokkur, þegar hann
kom heim um kvöldið, miða límdan
á dyrnar hjá sjer með svolátandi
áritun konunnar sinnar: „Kæri Gúsi-
af! Jeg skrapp til hennar mömmu
og hefi falið lykilinn svo enginn
finni hann. Hann liggur undir gólf-
mottunni til hægri.