Fálkinn


Fálkinn - 11.12.1937, Side 4

Fálkinn - 11.12.1937, Side 4
4 F ÁLKl N N Reynistaðarbræður Enginn finna okkur má nndir fanna-hjarni. Dagana þrjá ijfir danðum ná rlaijur xal hann fíjarni. I klettaskorn krepptir erum iud báðir 'en í tjaldi áður þar - allir vorum fjelagar. í þessar tvær draumavísur hefir íslensk alþýða ofið sögu þeirra Reynistaðarbræðra og fje- laga þeirra, sem úti urðu á fjöll- um með sviplegum hætti fyrir rjettum 157 árctin síðan. Það sem gert liefir þennan atburð minnisstæðan og (dramalískan) harmrænni heldur en flesta aðra mannskaða, sem árlega hafa orðið og verða lijer á landi, er einkum tvent: í fvrsta lagi vila menn ekkeri um síðustu ferðalok þeirra fje- laga. Þeir burfu út i sortann sem lá á fjöllunum með lest siiia og fjárhóp en komu þaðan ekki aftur. Tvö líkin fundust næsta vor, tvö eflir 65 ár og eitt aldrei. í öðru lagi risu langsótt og harðsnúin málaferli út úr hvarfi þeirra þar sem þrír menn voru bornir sökum um líkrán. Mun það vera fágætt sakarefni í is- lensku rjettarfari. Það fjekst heldur ekki úr því skorið til fulls, hvort þeir væru sekir eða saldausir. Þessir atburðir og sá óhugn- aður sem þeim fylgdi gróf sig svo djúpt í hugskot samtíðar- manna, að ferðir tókust því nær af upp frá því um hina fornu þjóðlcið yfir Kjöl. Jeg mun nú leitast við að rekja aðalþáttinn í sögu Reyni- staðarbræðra. Aðalheimildir mín ar eru söguþáttur Gísla Kon- ráðssonar og þingbækur Hegra- nesþings um vitnaleiðsluna í líkamálinu. —- Ef til vill finst injer þessir atburðir liggja nær, heldur en þeir gera í raun og veru, og það er þá vegna þess, að jeg lieyrði ömmu mína oft segja frá þeim, þegar jeg var að alast upp, en móðurfaðir hennar var bróðir þeirra Reyni- staðarbræðra, Rjarna og Einars, sem úti urðu. Sagan hefst vorið 1780. Þá bjuggu að Reynistað i Skaga- firði Halldór Bjarnason sýslu- manns á Þingeyrum og Ragn- heiður Einarsdóttir frá Söndum í Miðfirði. Ragnheiður þótti skörungur og vel viti borin en Halldór mun hafa verið heldur lítill fyrir sjer, enda fjekk liann ekki Ragnheiðar meðan faðir liennar var á lífi. Þau giftust 1756 og eignuðust 9 börn, sem upp komust. Um þessar mundir var sauð- fátl mjög á vestur og norður- landi vegna fjárkláða og niður- skurðar á undanförnum árum. Um fjársýki þessa, segir Jón Espólín, að bún hafi borist liing- að með enskum hrút, sem flutt- ur var að Leirá í Borgarfirði 1760. Um 1766 er sagt að sýkin hafi eytt mestöllu fje á svæð- inu frá Sólheimasandi að Öxna- dalsheiði, að Vestfjörðum und- anskildum. Sýkin lýsti sjer á ýmsan hátt. A sumum kom hún út með þurr- um kláða, vosum og skurfum svo klippa varð ullina. Á öðr- um kom bleytusuddi um bcrða- kambinn, svo og á brygg og síð- ur í gegnum ullina. Síðan losn- aði ullarkápan af hörundinu í einu og varð vot kvikan. Árið 1770 var að konungs boði beðið á móti fjársýkinni af öllum prjedikunarstólum landsins á hverjum sunnudegi en ekkert dugði. 1772 var farið að skera niður og alment framkvæmt í öllum hjeruðum þar sem sýkin var, á árunum 1772—’79. Eftir það tóku menn að keppast um að kaupa fje í skarðið af ósýktum svæðum, aðallega af NA. og SA- Iandi. Það varð nú á Reynistað, að þau hjónin sendu til fjárkaupa í Skaftafellssýslu Bjarna son sinn, sem þá var um tvítugt, skólasveinn á Hólum og Jón Austmann, sem var að nokkru Ieyti ráðsmaður á staðnum, maður harðgerður, en heldur ó- væginn við klausturlandseta. Þeir riðu suður Kjöl, sem þá var titt og höfðu með sjer all- mikið fje í peningum, kven- silfri og öðrum varningi. í vitna leiðslum síðar er upplýst að þeir liafi hafl 196 rd. krónur í varningi og 20 rd. krónur i pen- ingum. Seinna um sumarið undir sláttarlok sendu þau suður til aðstoðar Sigurð frá Daufá og son sinn Einar, 11 vetra. Það er sagt, að Einar færi mjög nauðugur og bæði móður sína grátandi að láta sig ekki fara, því hann mundi ekki aftur koma. En gamla konan vildi ekki láta undan og á Einar þá að hafa skift leikföngum sínum milli annara barna á klaustr- inu. Þeir hjeldu svo suður Kjöl til móts við Bjarna og Austmann. Lítið er vitað um ferðir þeirra syðra. Þeir fóru suður í ÁJfta- ver og munu hafa lialdið sig nokkuð á Þykkvabæjarklaustri Þeir komu og að Hlíðarenda í Fljótshlíð og e. t. v. í Skálholt. Að minsta kosti er sagt að Bjarni hitti skólameistara Bjarna Jóns- son, sem þá var i Skálholti, og kom til orða að hann tæki þar skólavist um veturinn. En þeim nöfnum hafði orðið sundurorða, svo ekkert varð úr þeirri ráða- gerð. Það lítur út fyrir að Bjarni frá Reynistað hafi verið örorður, nokkuð hvepsinn og mikill fyrir sjer. Heima á Réyni- stað er sagt að hann hrekkjaði gamlan og haltan prest, sem söng tíðir og fjekk um leið mál- tíð matar. Bjarni setti graut úr spæni prests, en honum varð skapfátt og sagði: „Þú skalt ekki fá graut Bjarni, þú skalt deyja úr hungri Bjarni“. Önnur sögn er það úr suður- förinni, að Bjarni kæmi til prests eins, sem var að slá járn í smiðju og kastaði Bjarni fram stökubyrjun: Tvíllaust. þetta tel eg stál tólin prests eru komin á ról. En prestur hjeit að liann væri að sneiða að sjer og mælti: Ýli þín af sulti sál sólarlaus fyrir næstu jól. Eftir rjettir um haustið liöfðu þeir fjelagar keypl um 180 fjár, flest eða alt í V.-Skaftafells- sýslu. Hafa þeir sennilega rekið það úr Skaftártungu að fjalla- baki og niður á Land. Þaðan bafa þeir farið yfir Þjórsá, sennilega á Gaukshöfðavaði yf- ir í Hreppa. Til fylgdar höfðu þeir bætt við sig fimta manni, Guðmundi Daðasyni, prests í Reynisþingum. Þegar hjer er komið sögunni var komið fram yfir veturnæt- ur. Töldu flestir óráð að leggja á Kjalveg svo síðla, en Jón Austmann vildi áfram halda og fara skemslu leið. Kjölur lieitir spildan milli norðurenda Langjökuls að vesl- an og Ilofsjökuls að austan. Þar deilir vötnum milli Norður- og Suðurlands. Fellur Blanda norð ur en Hvítá og Jökulfallið suð- ur. A miðjum Kili er Kjalhraun. ,,Líkaborgin“ er fje og hestar fíegni- staðarbrœðra fenti við, og má enn sjá hvit og skinin bein i brekkunum. I suðurjaðri þess stendur Kjal- fell, en við norðurjaðarinn eru Ilveravellir og fjarlægðin á milli um 15 km. Kjalvegur ligg- ur um austanvert hraunið fram hjá Kjalfelli eða fyrir vestan það eftir þvi sem beinast liggur við. Vegurinn um Ivjalhraun er rúml. 600 m. yfir sjó. Þeir Staðarmenn voru vel í sveit setlir að því leyti, að sunn- an frá áttu þeir aðeins yfir Jökulfallið að sækja, sem ekki ei nein stórá að haustlagi, og svo Blöndu, þegar norður af hallar. Það varð svo úr, að þeir lögðu upp úr Hreppúm 2. laug- ardag í velri, sem mun hafa verið 28. okt., ineð fje sitt og 16 liesta, þar af 5 undir reið- ingi með nesli, tjöldum og rúm- fötum. Eftir því sem síðar er vitnað hafði Bjarni á sjer um 20 rd. í reiðu fje og nokkur lujef og reikninga. Daginn sem þeir lögðu upp var vindur SA-stæður og gerði regn með kvöldinu samkv. veð- urbólc Ilannesar Finnssonar bisk ups í Skálholti. Daginn eftir og p.æstu daga var NA-átt með 2—3 st. hita og nokkru regni eða snjókomu í Skálholti, en veðrátta þó allgóð mestan liluta mánaðarins. Hinsvegar segja söguritarar á Norðurlandi að skönnnu eftir að þeir félagar lögðu upp úr byggð gerði snjó- hríð mikla, er ekki rofaði i hygð á mörgum dægrum en varaði þó lengur á fjöllum. Er það vitanlega algengt að NA. Iiríðar nái lítt til Suðurlands. Slóð þeirra Staðarmanna vcrður ekki rakinn. Það mætti ætla að þeir hefðu Iagt upp frá Tungufelli eða Hamarsholti, sem nú er eyðibýli nokkuð fyrir ofan Gullfoss. Það mætti giska á að þeir hefðu komist upp i Svínárnes í fyrsta áfanga gegnt BJáfelli. I öðrum áfanga hefðu þeir átt að komast yfir Jökul- fallið og í haglendi norður við Lanlin við „Líkaborgina“ á Kili þ'.r sem tjöld fíegnistaðarbrwðra stóðn

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.