Fálkinn


Fálkinn - 11.12.1937, Page 9

Fálkinn - 11.12.1937, Page 9
F Á L K I N N 9 Það er átrúnaður en ekki heilbrigð skynsemi, sem kemur mönnum til að leggja út í stríð. Sumir kunna að segja, að það sje iilfinning, sem sje æðri bæði átrúnaði og heilbrígðri skynsemi, sem eggjar menn út í styrjöldina, nefnilega ættjarðarást- in, sem knýr menn til þess að verja land sitt gegn þess eigin borgurum og ganga til víga gegn þeim og drepa þá, skjóta í rústir ýmsa bestu menningarfjársjóði þjóðarinnar og því um líkt. Er það heilbrigð skyn- semi. Er það ekki fremur átrúnað- ur, stefnur, sem ekki eiga rót sína i uppruna manneðlisins. Iljer sjest á myndihni t. v. upptaka liðsfor- ingja hjá Franco suður á Spáni. Þeir kyssa fánann um leið og þeir vinna eiðitm. í herbúðum hinna, sem telja sig stjórnendur Spánar og eru það, samkvæmt lögum landsins, sjást hermenn stundum vinna eið að fána annars ríkis, er þeir ganga i lierinn. Hvorugir hafa rjett fyrir sjer en báðir skaða þjóðina. Spánn hefir orðið fyrir meiri limlestingum í borgarastyrjöldinni, en hann jafn- vel varð fyrir á dögum hinnar ill- ræmdu „inkvisitionarsem náði liámarki sínu á Spáni. Gulu piltarnir hjer á myndinni eru japönsku flugmennirnir Masaaki tnnma og Kenji Tsukagoski, sem flugu síðastliðið vor frá Tokio til London og varð sii ferð licimsfræg, því að hún tök fram þeim metum ‘ langflugi, sem þá höfðu verið sett. Síðar kom Rússinn Gromov og fje- lagar hans, sem komust langsam- lega fram úr því, sem lengst hafði verið gert í langflugi, bæði að því er snerti vegalengdina sjálfa og flughraðann■ En það sem gerði för Gromovs eftirtektarverðasta var, að hann lagði leið sína yfir sjálft norð- urheimskautið, og sannaði með því kenningu þá, sem Vilhjálmur Stef- ánsson hafði flutt fyrir 12 árum■ Iljer á myndinni til hægri sjást þeir japönsku fjelagarnir vera að tala i lítvarpið í London og skýra löndum sínnm í Japan frá fluginu, i út- varpinu. Það er gamall og góður siður skóla- barna í Þýskalandi, að þau byrja viðkynningu við hin börnin í slcól- anum með því, að koma með kynstrin öll af góðgæti í fyrstu kenslustundina, sem þau eiga að sitja í skólanum. Skólastjórnin leiyf- ir þetta, og er það vísl ekki illa til fallið, því að á þennan hátt kynnast börnin þegar í stað, og verður kom- ist hjá ýmsri misklíð og óþægindum fyrir börnin sjálf, sem hlýtst af því, að þan kynnast ekki þegar í stað. tljerna á myndinni sjást börnin vera að koma í skólann, og sýnir myndin til fullnustu, að það er ekk- ert smáræði, sem þau hafa með sjer til þess að bjóða slcólasystkinum slnum npp á.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.