Fálkinn


Fálkinn - 11.12.1937, Síða 10

Fálkinn - 11.12.1937, Síða 10
10 F Á L K I N N Nr. 470. Adamson er bókavinur. S k r í 11 u r. FfílMERKJASAFNAfílNN: — Hvaöa vandrœði. Hefi jeg nú ekki neitt frímerki? Þegar pabbi var látinn hátta hann dengsa litla. — Hvert í heitasta. Er nn búið að 'aka mig fastan aftur? í sumar stóð klausa í blaði einu. í Skjaldarvíkurfjöru er öllum bann- að að baða sig, að viðlagðri krónu sckt. Fjelög og stórir hópar fá af- slátt. — Það er sama hvað jeg geri, kon- an mín verður verri og verri. — Mikill heppnismaður ertu. Mín getur ekki orðið verri. ■—■ Maðurinn sem gengur þarna er kallaður Lúðvík fjórtándi. — Af hverju kemur það? — Af þvi að hann heitir Lúðvík og er aldrei boðinn í samkvæmi nema þrettán sjeu til borðs fyrir. ---------- — fííöiö þjer allra snöggvast - jeg er aö hlusta á annari línu! NÝTÍSKULIST fíara aö jeg gœti málaÖ eins og þjerl En á myndunum mlnum þekkist altaf hvaö hver hlutur á að vera. John gamli Iíoppelmayer, sem er 72 ára stóð nýlega fyrir rjetti í Manhattan, sakaður um að liafa kast- að flösku á eftir konunni sinni. Hann fuilvissaði dómarann um, að hann elskaði kerlinguna af öllú hjarta, en það hefði hlaupið i sig eitt kvöldið, þegar hann kom fullur heim, og hún fór að jaga hann. — Hvernig getur það samrýmst, að þjer elskið konuna yðar en kast- ið samt flöskum i hana? spurði dómarinn. — Flaskan var tóm, dómari góður, svaraði Koppelmayer. — Varstu á veiðum i gær? — Já. —• Fjekstu nokkuð? — Já. Þrjá snapsa með morgun- matnum, hálfa portvínsflösku um hádegið og þrjá whiskysjússa i gær- kvöldi. Á kjörfundi í Danmörku stóð upp ræðumaður, sem skammaði and- stæðing sinn niður fyrir allar hell- ur og lauk máli sinu með því að segja, að hann gæti aldrei skilið neitt. Andstæðingurinn var viðstaddur og gieip fram í af mikilli gremju. — Viljið þjer halda því fram, að jeg sje fullkominn fábjáni. — Nei, enginn maður er fullkom- inn, svaraði hinn. En fólkið hló. Frúrnar tvær sátu yfir kaffi og voru að tala um mennina sína. — Maðurinn minn er svoddan slóði. Hann er altaf að missa af sjer hnappana, bæði af jakkanum og vestinu. — Það hlýtur að koma af því, að þeir eru illa festir, svarar hin. — Já, það er einmitt það. Hann ftstir þá svo iila. Aftonbladet sænska segir þessa sögu nýlega: — Það gerðist á járn- brautarlínunni milli Eslöv og Hals- ingborg á dimmu haustkvöldi. Braut- arvörðurinn er á eftirlitsferð og sjer svart hrúgald á öðrum teininum. Hann sparkar í það. — Æ, lofið þjer mjer að liggj i hjerna, kveinar hrúgaldið með karl- mannsrödd. Jeg er svo ógæfusamur og get ekki lifað lengur. En bráðum kemur lestin frá Malmö og þá lýkur mínu stríði. — Malmö? segir brautarvörður- inn. Þá eigið þjer ekki að liggja hjerna. Þjer eigið að liggja á hinu sporinu! — Hann Lalli kysti mig i gær. Og hann sagði að það væri yndisleg- asti kossinn, sem hann hefði nokk- urntíma fengið. — Jæja, þá hlýtur það að hafa verið áður en hann kysti mig i gær- kvöldi. tenf NANO P.I.B Þorskurinn var bú inn að bíta á. Þetta gengur seint. Jæja, loksins tekur þá á. Þaö munar um hann þennan. En þvi miöur er hann i háf.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.