Fálkinn - 11.06.1938, Side 2
2 ' I
F Á L K i N N
----- GAMLA BÍÓ ----------
Hálsfesti brúðarinnar
Afar f.iörug og skemtileg leyni-
lögreglumynd.
Aðalhlutverkin leika:
ROBERT CUNNINGS.
SHIRLEY ROSS,
MARTHA RAYE
Það er mynd sem öllum mun
líka. /
Paramount-kvikmyndin „Hálsfesti
brúðarinnar" verður sýnd í Gamla
Bíó innan fárra daga.
Aðalhlulverkin eru leikin af vel
kunnu leikfólki svo sem Shirley Ross
Martha Raye og Robert Cunnings.
Tjaldið er dregið til hliðar. —
Bíll þýtur eftir þjóðveginum með
ofsahraða. Við stýrið situr ung og
falleg kona. Það er augljóst að hún
er í æstu skapi. Hún er í brúðar-
kjól og þegar hún ekur inn á fáfar-
inn skógarveg nemur hún staðar
og skiftir um húning.
W : mm, í> x || ISgiP
, , jt1
THOR JENSEN
átti sextíu ára dvalarafmæli
hjer á landi í þessari viku. Það
verður ekki um það deilt, að
um langt skeið var hann helsti
brautryðjandi á sviði íslensks
athafnalífs. Og enginn einn is-
lenskur atvinnurekandi hefur
hvorki fyr nje síðar veitt svo
miklu fjármagni inn í landið
sem liann. — Fyrir framtak
hans og dugnað var útgerðinni
hjer á landi hleypt í nýtt horf,
svo að lirein tímamót myndast
á þvi sviði. Siðar beindist áhugi
hans mest að jarðræktinni, og
ber búrekstur hans á Korpúlfs-
stöðum og víðar best vitni um
hverju hann hefur áorkað i
þvi efni.
Thor Jensen er ekki íslend-
ingur að ætt, eins og nafnið ber
með sjer, en leitun mun vera á
manni, sem ber hag Islands
meira fyrir brjósti en hann.
----------------x----
Nokkrum mínútum áður hal'ði
Dixon lögreglufulltrúi fengið vit-
neskju um að hálsfesti, 50 þúsutid
dollara virði, sem de Montaigue
greifi ætlaði að gefa hrúði sinni
nefði verið stolið og á sama tíma
hafði horfið bíll, er staðið hafði
skamt frá höll greifans. Hálsfest-
i'n hafði verið ásamt mörgum öðr-
um skrautgripum í sjerstöku her-
bergi, er leynilögreglumaður gætti.
Honum sagðist svo frá að rjett á
sama augabragði og greifahjónin og
gestir þeirra komu úr kirkjunni að
lokinni hjónavígslunni, hefði ung
kona komið inn í skrautgripaher-
bergið. Hún hefði verið i brúðar-
skarti og hefði hann ])ví talið vist
að þetta væri brúður greifans og
hefði þvi ekki skift sjer frekar af
þessu. En rjett á eftir kom í ljós,
að hálsfestin var horfin og vörð-
urinn var í engum efa um hver
þjófurinn væri. Og nú hefst elt-
ingarléikurinn. Það er best að bíó-
gestirnir fylgist með honum óund-
irbúnir um það hvernig honum lýk-
ur.
t Drekkiö Egils-öl J
Senator Ellinder frá Louisana hef-
ir sett met í ræðumensku, er hann
flu.tti nýlega ræðu um svertingjana
í Bandaríkjunum. Hann talaði 5
daga og nætur og þagnaði aldrei
svo lengi, að hægt væri að taka af
honum orðið. Þó var hann altaf að
gleypa i sig bita við og við og
drekka saftblöndu, því að 300 stykki
af smurðu brauði og 40 lítrar af
blöndu fóru ofan í hann meðan á
ræðunni stóð.
1. þ. m. áttu hin þjóðkunnu hjón í Birtingaholti, þau Ágúst
Helgason og Móeiður Skúladóttir, gullbrúðkaup.
------- NÝJA BlÓ. -------------
Rússnesk orlðg
Efnisrik, áhrifamikil og spenn-
andi ensk kvikmynd er gerist í
Rússlandi fyrir og eftir bylting-
una. — Aðalhlutverkin leika af
mikilli snild hinir frægu leik-
arar.
MARLENE DIETRICH og
ROBERT DONAT.
Eftir frumsýningu myndarinnar
í Grand Theater í Kaupmanna-
höfn skrifaði hinn frægi rithöf-
undur og listdómari Svend Bor-
berg eftirfarandi ummæli í „Ber-
lingske Tidende“:
„Nýja Marlene Dietrich kvikmynd-
in, sem Grand kvikmyndaleikhús-
ið sýndi í gær, er fjörleg, efnis-
mikil og „spennandi“. Það má
segja að rithöfundurinn, James
Hilton, hafi ekki sparað púðrið
i hana. Ung og' falleg rússnesk
fúrstadóttir (Marlene Dietrich) og
ungur, eriskur blaðamaður (Robert
Donat) hittast í hliðargangi hrað-
lestarinnar. Og siðan má segja að
þau sjeu altaf á leið til lestarinnar.
í lestinni eða utan á henni. Þetta er
á keisaratímanum. Blaðamaðurinn
er gerður landrækur fyrir grein, sem
hann hefir skrifað. Hann verður
njósnari fyrir Englendinga til þess
að geta orðið kyr i Rússlandi. Sem
njósnari verður hann byltingarsinni
og sem slíkur er hann sendur til
Síberíu, eftir að fjelagar hans hafa
skotið á brúðkaupslest ungu fursta-
dótturinnar. Þegar liann við bylt-
inguna fær aftur að koma heim til
Rússlands, verður hann ritari hja
rauða fulltrúanum, sem á að fram-
kvæma ráðstafanir bolsevismans á
eignum furstafrúarinnar. Með þessu
rnóti verður hún fangi hans. Hann
hugsar nú um það eitt að flýja með
hana úr landi. Ganga þeirra gegn
um „rauðar“ og „hvítar“ lögreglu-
stöðvar verkar eins og sterkt Mokkr,-
kaffi á hjartað .........
Falin í visnu laufi skógarins, þar
sem byssuhlaui) bolslievikanna vita
að þeim úr öllum áttum, mætasl
varir þeirra í fyrsta sinn. — Eftir
langan flótta og miklar mannraunir
komast ungu elskhugarnir í tartara-
bát, er flytur þau til landamæra-
bæjar, en þaðan komast þau með
sjúkralest út til liins mentaða
heims“.
Eugen páfi þriðji kom eitt sinn
í heimsókn ti) Parisar á föstudegi.
En til þess að komast hjá föstunni,
sem liefði komið sjer bagalega við
móttökuhátíðina, úrskurðaði páfinn,
að dagurinn skyldi vera fimtudagur.
Og urðu því tveir fimtudagar í þess-
ari viku. Þetta var árið 1447.
-x-