Fálkinn


Fálkinn - 11.06.1938, Blaðsíða 7

Fálkinn - 11.06.1938, Blaðsíða 7
I-' A L K I N N 7 andlilið lil þess að sýna hrygð sína yfir atburðinuni. Áform hans var framkvæmt eftir ítarlegri áætlun. Nú átti það að koma fram, hvort árangurinn yrði sá, sem liann hafði gert ráð fyrir. Sharlott datt ekki í hug að efast um það. Þetta var ágæt hugmynd. að meðganga að hann liefði drepið Freddie hann ætlaði ekki að neita þeirri staðreynd. Hann hafði átt hendur sínar að verja, svo að hann þurl'ti ekkert að óttast. Lyftan kom upp aftur og hann lieyrði fótatak i ganginum. Nú álti ráðagerð hans að standast próf- raunina. Hann leil liægl tipp og heilsaði lögregluþjóninum með þján- ingarsvip í andlitiiru. „Jeg var á verði hjerna á götunni fyrir utan," sagði lögreglumaJSur- inn. ,,Þjer eruð hr. Sharlott, geri jeg ráð fyrir? Hvað hefir gerst hjer?“ Sharlott benti á líkið á gólfinu. „Fjelagi minn Freddie Binns jeg. . . . jeg er hræddur um að jeg hafi skotið hann,“ hvíslaði hann. T ÖGREGLUÞJÓNNINN beygði sig ^ yfir líkið. ,,Já hann er dáinn,“ sagði hann eftir stutta þögn. „Þið hafið átt í handalögmáli, sje jeg“. Hann leit á skammbyssuna, sem dauði maðurinn krepti hnefann um, og leit siðan yfir stofuna, sem bar glöggar menjar um viðureignina. ,,Bíðið þjer augnablik", sagði hann, þegar Sharlott bjó sig lil að segja eitthvað. ,,Það er skylda mín að segja yður, að alt verður notað sem vopn gegn yður“. „Jeg veit það“, sagði Sharlott þreytulega. „Auðvitað verðið þjer að taka mig fastan. En mig langar til að skýra yður frá, hvernig jmtta atvikaðist. Það er ekki mjer að kenna. Jeg gat ekki við það ráðið“ ,,Já. Þjer getið gjarnan skýrt mjer frá þessu, ef þjer viljið“. „Jeg hefi verið í Londöh í kauj)- sýsluerindum“, hóf Sharlott máls. „Eiginlega ætlaði jeg ekki að koma aftur fyr en á morgun, en jeg varð tilbúinn fyr en jeg bjósl við og fór heim í dag. Jeg hafði verið að heim- an i marga daga og ljek hugur á að vita, hvort ekki hefðu komið brjef tit mín á meðan, á skrifstofuna .... Jeg „Ekki svona hratt", sagði lögreglu- þjónninn. „Hvenær komuð þjer?“ „Nálægt tuttugu mínútum yfir sjö, geri jeg ráð fyrir. Lestinni liafði ekki seinkað". „Þá hafið þjer verið fljótur í snúningunum. Klukkan er ekki nema kortjer yfir hálf átta núna. Komuð þjer hingað í bifreið? „Já —“ „Og hve lengi hafið þjei verið lijerna á skrifstofunnni? Líklega ekki nema svo sem fimm mínútur? Þjer getið ekki hafa verið hjer lengi ?“ „Jeg ve.it það ekki. Mjer finst heil eilífð síðan jeg kom“. „Rúmar fimm mínútur", sagði næturvörðurinn. „Jeg heilsaði hr. Sharlott þegar liann kom, svo að jeg veit það nákvæmlega". „Jæja, haldið þjer áfram, hr. Shar- lott“. „Jeg opnaði dyrnar með lyklin- um mínum, án þess að eiga mjer nokkurs ills von', sagði Sharlott. „En í sama l)ili og jeg ljet aftur hurðina lieyrði jeg hljóð i myrkr- ina. Jeg rjetti fram höndina lil þess að kveikja, en áður en jeg náði í hnappinn var ráðist á mig“. „Þjer sáuð ekki hver það var?“ „Nei, það var koldimt hjerna og þessi árás kom mjer á svo óvart. Jeg barði vitanlega frá mjer eins vel og jeg gat og af því leiddi, að ándstæðingur minn svífðist einskis og greip tit skammbyssunnar. Fyrra FRÁ PRAG. Eftir að Þjóðverjar höfðu lagl undir sig Austurríki töldu Tjekkó- slóvakar sjer hætt við yfirgangi af Þjóðverja hálfu, því að innan landa- mæra þeirra lifa um þrjár miljónir Þjóðverja. Margir þessara manna eru nazistar og hafa krafist heima- stjórnar og sjerrjettinda fyrir sig, undir forustu Conrad Henlein. Eru það hinir svokölluðu Sudetaþjóð- verjar. Tjekkneska þjóðin hefir nú heitið þeim ýmsum rjettarbótum en Frakkar og Rússar segjast munu grípa til vopna ef á Tjekkóslóvaka verði ráðist og einnig munu þeir mega vænta stuðnings Breta. Mynd- in er frá Prag, og sjesl þar hin forna höll Bæheimskonungs, Hrad- chin, sem nú er forsetabústaður. skotið hitti ekki, en jeg varð dáuð- hræddur, eins og eðlilegt var >g barðist upp á líf og dauða. Jeg gat náð hendi manhsins í myrkrinu og reyndi að snúa skammbyssuna úr hendinni á honum. Jeg véit ekki hvernig það atvikaðist, en i sama bili heyrðist hvellur . . . .“ „Hann hefir ef til vill skotið sjálfur?“ „Jeg veit það ekki. Hvernig á jeg að geta sagt um það? En nú tókst mjer að kveikja á ljósinu og þá sá jeg, mjer til mikillar skelfipgar, að maðurinn sem jeg liafði barist við var Freddie. Aldrei mundi jeg hafa trúað því um hann. Hann var besti vinur rninn". „Álítið þjer, að hann hafi ætlað að strjúka með sjóð skrifstofunnar?" spurði lögregluþjónninn og leit á opinn peningaskápinn. „Jeg veit ekki hvað maður á að halda?“ sagði Sharlott. „Hvað hefði hann annars átl að vilja hjer i myrkrinu? Og hvað hefði honum gengið til að ráðast á míg, að öðr- um kosti?" „Nei, þetta er býsna grunsamlegt", sagði lögregluþjónninn. „Sjerstaklega þegar þess er gælt, að hann bjóst ekki við yður heim fyr en á morg- un“. „Það hlýtur að liafa verið hann, sem læddist hjerna inn fyrir hálf- tíma eða svo“, sagði næturvörður- inn. „Jeg var á leiðinni ofan i lyft- unni þegar jeg sá einhverjum bregða fyrir, sem læddist upp stigann. Reyndar sýndist mjer það nú vera kvenmaður". Hann deplaði augun- um lil lögreguþjónsins — „og mjer datt ýmislegt í hug. En ekki kom það mjer við, svo að jeg skifti mjer ekkert af því“. Lögregluþjónninn leit á borðplöt- una. „Þjer megið hrósa happi að fyrri kúlan skyldi ekki hitta yður heldur lenda hjerna, Sharlott", sagði hann. Svo kom liann auga á leiða- bókina, sem lá opin á borðinu, og pírði augunum á hana. „Ha-ha hann hefir athugað farartímana, sje jeg“, sagði hann. „Þá er ekki neitt að efast um framar. Þjer hafið auð- sjáanlega komið á rjettum tíma. Sharlott. Ef þjer hefðuð ekki komið hjerna honum á óvart, þá hefði fje- lagi yðar tæmt peningaskápinn og strokið til útlanda. Væri jeg i yðar sporum mundi eg ekki taka mjer nærri það sem orðið er“, hjelt hann áfram þegar Sharlolt andvarpaðí. „Þetta var sjálfum honum að kenna. Má jeg lána símann sem snöggvast?" Sharlott kinkaði kolli en sagði ekkert. Hann stóð og starði á dána manninn og í andliti hans mátti lesa djúpa sorg og sjálfsásakanir. En innra með sjer hrósaði hann sigri. Alt hafði farið eins og hann hafði ætlast til. Þeir mundu finna fingraförin á skammbyssunni en það væri bara sönnun þess að hann hefði náð um hendina á andstæðing sínum í viðureigninni. Hið djarfa áform hans hafði tek- ist vonum framar. Síðar, er hann yrði látinn laus aftur, gæti hann far- ið og sótt verðbrjefin. Allir nntndu lialda að Freddie hefði stolið þeim, og samúðin mundi liverfa frá hon- um og verða með Sharlott. Hann hafði skolið fjelaga sinn til þess að bjarga lífi sínu — í nauðvörn. Eng- inn lifandi sál mundi nokkurntíma komast að hinu sanna, því að Freddie hafði ekki minst einu orði á, að hann ætti að hitta Sharlott. Og dauður maður ber ekki sögur. svo að hann þurfti ekkert að óttast. „Jeg neyðist vísl til að hafa yðui á burt með ntjer, eigi að síður“, sagði lögregluþjónninn og lagði af sjer heyrnartólið. „En jeg geri ráfi fyrir, að þjer fáið að fara aftur undir eins. Þjer skuluð laga útgang- inn á yður áður en þjer farið út á götuna. Jeg sje mót á því, að þetta hafi verið hörð viðureign“, „Já, jeg er víst ekki sem best út- lítandi“, sagði Sharlott og brosti dauflega um leið og hann fór að speglinum. Hann ball hálshnýti sitt og greiddi hárið. Honum lá við að skella upp úr er hann sá uppgerðar-angistina i andliti sínu. Hann var hreinn og beinn snillingur. Honuin hafði tekist að gabba bæði næturvörðinn og lögregluþjóninn og siðan mundi alt ganga fyrirhafnarlaust. Hann hnepti að sjer vestinu, hægt og vandlega. Ekkert lá á. Nógur var tíminn. En um leið og hann hneþti siðasta hnappnum heyrði hann lágt hljóð bak við sig. Hann fjekk ákafan hjartslátt. Því að hljóðið kom frá að- alskrifstofunni, sem var til hliðar við herbergið. Dyrnar voru opnar þang- að inn, en það var dimt inni, og honum hafði ekki komið til hugar, að nokkur maður gæti veriðþar inni Hann stóð um stund fyrir framan spegilinn og starði tryllingslega á andlitsmynd sína.Svitadropar spruttu fram á andliti hans, og hann þurkaði þá af sjer með skjálfandi hendi. „Hvað er þetta?“ spurði lögreglu- þjónninn og gekk inn i aðalskrif- stofuna. Skömmu síðar kom hann út aftur, með unga stúlku í fanginu. „Jeg er hræddur um, að það hafi liðið yfir hana“, sagði hann og hnyklaði brún- irnar. Komið þjer með vatn!“ sagði hann við næturvörðinn. Nú náði hræðslan fyrst valdi yfir Sharlotl fyrir alvöru. Hann náföln- aði í andliti og fór allur að skjálfa og nötra. Því að unga stúlkan með ljósa hárið og eldrauðu varirnar var engin önijur en Gertie unn- usta Freddie Binns. Þegar hiún opn- aði augun og sá Sharlott, hljóðaði hún upp af hræðslu. Lögregluþjónninn lagði höndina á öxlina á henni og spurði: „Hvað eruð þjer að gera hjerna?" „Ó ó“, hljóðaði stúlkan. „Ó. að jeg het'ði aldrei koinið hingað!" Hún færði sig ósjálfrátt nær lög- regluþjóninum, eins og luin væd hrædd um, að Sharlott mundi gera henni meiii. „Hvað er þetta? Við hvað eruð þjer hrædd?" spurði lögregluþjónn- inn forvitinn. „Hann þarna!" hvíslaði slúlkan. „Hann myrðir mig — alveg eins og hann myrti Freddie" „Iljer er enginn sem langar til að gera yður mein“, sagði lögreglu- þjónninn og reyndi að sefa hana. „En þjer hafið ekki ennþá sagt mjer ástæðuna til þess, að þjer komuð hingað“. „F'reddie Binns var unnusti minn“, sagði stúlkan. „Hann hafði lofað að koma út með mjer i kvöld, en i dag síðdegis hringdi hann til mín og sagði, að það stæði svo á fyrir sjer að hann gæti það ekki. Hann vildi ekki segja mjer ástæðuna og jeg hjelt að hann ætlaði út með annari stúlku. Jeg var að nauða á honum þangað til hann sagði mjer, að fjelagi hans hefði símað til.sin og aftalað að hitta hann hjerna á skrif- stofunni í kvöld. En við þetta varð jeg enn tortryggnari, og til ])ess að vera viss um, að hann færi ekki á bak við mig fór jeg hingað til þess að njósna um hann. Jeg faldi mig inni á aðalskrifstofunni þegar hanti kom inn —“. Hún benti á Sharlott og ]iað fór hryllingur um hana. „Jeg sá alt að hann skaut Freddie og reif af honum hálshnýtið og flibb- ann en jeg var svo hrædd, að jeg þorði ekki að hreyfa mig“. Nú kom ákafur grátur að henni. En Sharlott heyrði ekki hvað hún sagði. Hann heyrði aðeins hvernig blóð- ið hamaðist í æðunum á gagnaug- unum.á honum. Það var eins og kalt vatn rynni milli skinns og hörunds honum, en hann fann, að lögregluþjónninn tók i öxlina á lionum. Hann hafði tapað leiknum, og liann vissi það.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.