Fálkinn


Fálkinn - 20.01.1939, Blaðsíða 14

Fálkinn - 20.01.1939, Blaðsíða 14
14 F Á L K 1 N N Stóri: Mjer finst að okkur vanti sanna list heima og nú finst mjer við þurfa að bæta úr því. Bara að maður gæti nú feng- ið gott „motiv“, sem maður gæti hugsað sjer að hafa inn í stofu hjá sjer. Stóri: Þú átt að bera virðingu fyrir list- inni. Nei, nú flytjum við okkur, og svo reynum við að sjá okkur út „motiv“, þar sem ekki þarf á rauðum lit að hálda. Litli: Þetta verður víst leiðinlegt „motiv“, það verður bara grænt. Jeg vil miklu heldur rautt en grænt. Stóri: Nú, hvað finst þjer unj mitt ú- dauðlega Jistaverk? Litli: Ódauðiega, áttu þá við gömlu sög- una um illgresið, sem ekki eyðist? Stóri: Þú mátt ekki móðga listamann við vinnu hans. Litli: Það er eins og jeg hefi altaf sagt, að alt er gott, ef endinn er góður. Híhí. Það er heilt málverk aftan á þjer. Stóri: Já, sannarlega, það verður maður að athuga betur, komdu og hjálpaðu mjer úr frakkanum. Stóri: Þetta lijerna er ágætt með sól, litlu húsi og flaggi, já, þetta er nú eitthvað fyrir mig. Litli: Jæja! þá setjum við grindina hjer, og nú geturðu hætt að líta listamannslega út og byrjað að vinna. Stóri: Þetta lijerna er gott, ef við gætum komið beljunni burt. Litli: Heldurðu að þess þurfi með? Mér finst það synd; hún er til svo mikillar prýði. Stóri: Já, en sjerðu ekki að hún er rauð? Stóri: Nú er kominn stormur og hann get jeg ekki inálað, svo að við verðum að fara heim og hengja upp myndina, og svo getum við málað aðra mynd seinna. Litti: Þú ætlar þjer þó ekki að verða stór framleiðandi? Stóri: Sjáðu nú til. Nú þurfum við alls ekki að mála annað. Nú sker jeg þetta úr og set það í fallegan ramma. Litli: Það er nú illa farið með svona góðan frakka. Hann verður nokkuð opinn að aftan á eftir. Stóri: Ja, hver skrambinn; nú hef jeg ekki tekið rauða litinn með. Litli: Hihí, en getum við þá ckki látist vera í Sviþjóð, og þá geturðu málað sænska flaggið í staðinn. Sióri: Láttu vera að spaugast að þessu. Lilli: Maður gæti haldið að rauðu hund- arnir hefðu ráðisl á hann, þegar hann get- ur látið út úr sjer, að þessi belja sje rauð, hún er brún, en það kann að vera, að hann geti ekki heldur málað brúnt nema með rauðu, hvað veit jeg? Ekki er jeg listainaður. Litli: Hana nú, svona endaði þetta gam- anið. Stori: Hversvegna studdirðu hana ekki, en ef þú lyftir henni upp með varkárni, t>á getur verið að listaverkið sje ekki alveg eyðilagt. Stóri: Þarna geturðu nú sjeð, við feng- um tvö málverk, tvö listaverk, út úr því. Þú mátt vita, að þau verða einhverntíma mikils virði. Líkar þjer ekki málverkin mín? Litli: 0, sei, sei, jú, einkum annað, liitt er bara venjulegt olíuprent.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.