Fálkinn


Fálkinn - 18.08.1939, Síða 2

Fálkinn - 18.08.1939, Síða 2
2 F A L K I N N GAMLA BIO Gamla bíó sýnir mjög bráðlega bina sprenghlægilegu gamanmynd Adolf sem þjúnn. Aðalhlutverkin leika Adolf Jahr, Eleanor de Floer, Arthur Cederborg og Anna Hillberg. Hjer er um að ræða fyndna og bráðskemtilega mynd. Ljettleiki, hnyttni og gamansemi eru eins og rauður þráður gegnum alla myndina. Adolf Jahr er einn þektasti gaman- leikari Svía, sem nú er uppi. í þessari mynd liggur hann ekki á liði sínu til jjess að leiða fram óþvingaðan hlátur áhorfenda. Adolf kemur hjer fram í gerfi þjónsins og sýnir þar mikil sniðug- heit og iægni. Hann liefir látið skrá sig á vinnumiðlunarstofu og fær ýmiskonar atvinnu. Hann ræður sig sem barnfóstru á stórt barnaheimili og ferst það starf vel úr hendi sem fleiri. Börnin elska hann og mæð- urnar lika. Hann ræður sig til þess að ganga daglega út með griðar stór- an hund. Einn daginn sem hann er á slíkri reisu, mætir hann ungri lag- legri stúlku með iitinn kelturakka. Þá grípur stóra hundinn eitthvert æði og hann vill ráðast ú litlu hund- skömmina. Adolf ræður ekkert við hundinn og stúlkan hleypur sem húu má, þar til hún kemst heim og lok- ar við nefið á Adolf. Hann sjer þá að þetta hús er höllin „Ville Suzette“, og dregur þá ályktun að þetta hafi sennilega verið heimasætan. Hann finnur nú alt i einu, að hann er orð- inn bálskotinn í heimasætunni. En hvernig á hann að komast í kynni við hana? Jú, vinnumiðlunarskrifstofan hjálp- ar honum seni fyrr. Hann kemst að því, að það vantar bryta i „Villa Suzette", og getur með lægni ráðið sig þangað, þótt hann hafi aldrei kynst slíku starfi fyrr. Hjer byrjar bailið og grínið. Hann gerir alt til þess að koma sjer vel í brylastöð- unni, en vitanlega er hugurinn meiri en hálfur hjá heimasætunni. Eu hvernig á hann, bara bryti að geta náð ástum hennar. En hann hefir ráð undir rifi liverju og rekur af höndum sjer alla þá erfiðleika, sem verða á vegi hans. Og allstaðar kem- ur hann sjer vel og allir dá hann. En blessuð börnin, sem hann hafði einu sinni gætt, voru af einhverri slysni nærri orðin háll þröskuldur á vegi hans, en hann rann ekki svo á honum, að hann dytti um koll. Adolf sem þjónn, er einhver sú bráðfyndnasta mynd, sem hjer hefir lengi verið á ferð. Fjársjóðir á hafbotni. Við Quillebeeuf nálægt le Havre liafa kafarar fundið þrjú sprek og akkeri frá franska skipinu „Tele- maque“, sem sökk þarna 3. janúar 1790, er það var að leggja upp til Englands með fjölda flóttamanna og mestan hluta af fjársjóðum Lúðviks XVI. innanborðs. — Sagnfræðingar telja, að í „Telemaque“ sjeu verð- mæti, sem nema mörgum miljörð- um franka, og þessvegna hefir það oft komið til tals, að reyna að ná skipinu upp. Skipið lagði upp frá Rouen og tókst að komast undan skipum óvinanna, en lenti í of- viðri. Ljek það orð á, að fjár- sjóðir þeir, sem Lúvík XVI. átti i skipinu, mundu vera um 800 miljón franka virði. Þar> á meðal var háls- festi Maríu Antoinette, sem virl var á 40 miljón franka. Heimsmet í morðum. Lögreglan í Valencia hefir tekið fastan Spánverja einn, sem lieitir Antonio Lopez. Hann er grunaður um, að hafa framið, hvorki meira nje minna, en 111 morð í Valencia og nágrenni. VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Skúli Skúlason. Lúðvík Kristjánsson. Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested Aðalskrifstofa: Bankastr. 3, Reykjavík. Simi 2210 Opin virka daga kl. 10-12 og 1-0. Skrifstofa í Oslo: Anton Schjötsgade 14. Blaðið kemur út hvern föstudag. Áskriftarverð er kr. 1.50 á mán., kr. 4.50 á úrsfj. og 18 kr. árg. Erlendis 24 kr.' Allar áskriftir greiðist fyrirfram. Aughjsingaverð: 20 aura millim. HERBERTSprení. SkradðaraMar Peningaleysi almennings hjer ú landi, alt fram að heimsstyrj- öld var skiljanleg ástæða til þess, að bókakaup voru þá næsta lítil. Húspostillan og bibl- ían voru dýrgripir, en entust hinsvegar lengur en venjuleg bæjarhús til sveita og kverið handa börnunum kostaði ekki nema nokkra aura, en varð |ió stundum að duga handa heilli röð af systkinum. Þó voru bæk- ur keyptar, ef þær voru nógu ódýrar. Útgáfa Sigurðar Krist- jánssonar á Islendingasögum kringum síðustu aldamót voru þrekvirki, sem tókst af þvi að þær voru látnar koma út smátt og smátt. Og þeir sem voru byrj- aðir að eignast safnið vildu nauðugir hætta. Þó var það vel efnaður oddviti, sem sagði frá þvi i margra áheyrn, að íslend- ingasögukaupin væru að setja sig á liausinn og varaði menn við þeirri fjárhagslegu hæt.tu, sem leiddi af þ ví að kaupa bækur. Nú er mikið gefið út af bók- um, bæði golt og ljelegt og fólk kaupir meira af bókum en áður, því að það hefir meiri auraráð. En það skiftir talsvert í tvö liorn um þessa bókaútgáfu. Ann- arsvegar eru vönduð og merki- leg rit, sem flest fjalla um svo sjerstæð efni, að almenningur telur l3au ekki koma sjer við, en hinsvegar ómerkilegt rusl, ýmist þýtt eða frumsamið, sem er selt ódýrt vegna þess að efnið er ýmist stolið í skjóli þess að ís- land er ekki í Berner-samband- inu, eða alveg vita verðlaust. Fólk kaupir pappír og hann er ekki einu sinni hreinn. En hið stóra skarð milli þess- ara bókmenta er ófylt. Almenn- ingur á ekki kost á góðum sögu- bókum, jafnvel ekki nágranna- þjóðanna, á sínu máli. Hann þekkir ekki Verner von Heiden- stam, Martin Andersen-Nexö eða Olaf Duun. Þetta er afturför, því að á „peningaleysisárunum“ komust þó út á islensku ritverk eftir Topelius, Sienkiwitz og Björnson. Og mestu ágætisverk stórþjóðanna fara hjá garði ís- lenskra lesenda. Við liöfum nægt- ir af Carles Garvice og Edgar Wallace, Oppenheim og Övre Richter Frich á íslensku, en ekk- ert af Kipling, Galsworthy eða Sinclair Lewis. Og með tilliti lil alþýðlegra fræðibóka er þjóðin öreigi, þessi þjóð, sem hlotið hefir hróður fyr- ir sjálfmentun. Á hverju ári kem- ur út sægur af allskonar bókum um sjervisindi, í formi, sem allir geta tileinkað sjer, á öllum menn ingarmálum nema íslensku. Sú fátækt er skaðsamleg ekki síst nú, þegar sjermentunin er öllum nauðsynlegri en fyr. 1 NÆSTAiBLAÐI FÁLKANS: Grein um verðlaunaskáldsögur. — Tvær sögur. — Frjettamyndir. — Yfirgangur útlendra sjómanna á Langanesi, eftir Oscar Clausen. — Litli og Stóri. — Barnadálkur. — Setjið þið saman. — Skrítlur. — Grein um tónsnillinginn Peter Hyitch Tchaikovsky o. m. fl. NYJA BIO Frú Guðrún Angantýsdóttir, Guðmundur Guðjónsson, Karla- Óðinsg. //., uarð 50 ára 12. f. m götu 21, varð 50 ára 17. þ. m. Núna um helgina sýnir Nýja Bíó Columbía-kvikmyndina Frjálslynd æska. Frá efni þessarar myndar var sagt i seinasta blaði „Fálkans“ og verður nú sagt frá þeim leikurum, er hafa aðalhlutverkin með höndum. Katharine Hepburn er fyrir löngu orðin heimskunn, fyrir hina dásam- legu túlkun og leikni í þeim hlut- verkum, sem hún hefir haft með höndum. í jiessari mynd fær Kat- harine Hepbúrn uppfylta margra ára gamla ósk. Þegar hún var á leiksviðinu í Broadway, óskaði hún að fá ])að hlutverk, sem hún hefir nú fengið — þessvegna var hún þá i marga mánuði tvískipa í hlut- verki sinu við Hope Williams. — „Hope Williams hlýtur að hafa verið óvenjulega dugleg leikkona, þvi að jeg fjekk aldrei tækifæri til að taka að mjer hlutverk hennar,“ segir Hepburne. — En nú liefir hún feng- ið það. Hin fágæta slagharpa, sem Lew Ayres leikur á í þessari mynd, er sú sama, er notuð var lil að leika undir söng „Sænska næturgalans" — Jenny Lind, þegar lnin söng i Ameríku. Slagharpa þessi var lánuð til notkunar í þessari mynd, af hljóðfærasafni. Árið 1921 sá Edward Everett Hor- ton fyrst sjálfan sig í kvikmynd. Ilann varð þá fyrir svo miklum vonbrigðum, að hann ákvað að hætta sem kvikmyndaleikari. — En síðan hefir hann þó aðeins leikið i 7(i kvikmyndum! Gary Grant er sá fyrsti, sem leik- ið hefir oftar en einu sinni á móli Katharine Hepburn. Þetta er i þriðjá sinn, sem þau leika saman. Margir af aðstoðarmönnunum á leik- sviðinu í þessari mynd, eru jafnframt einkaleynilögreglumenn, sem vátrygg- ingarfjelagið heimtaði að væru þar íil staðar. Hinir dýrmætu gimsteinar, sem aðstoðarleikararnir bera, voru mjög hátt trygðir fyrir þjófnaði, og vátryggingarfjelagið vildi þessvegna ekki eiga neitt á hættu. Nokkuð. af skrautgripunum voru spanskir gim- steinar, en alls voru ])eir skrautgrip- ir, sem þarna voru notaðir, virtir fyrir 21/, miljón króna. Til þess að hægt væri að lýsa upp Selon heimilið, eins og gert er í myndinni, þurfti að nota jafn sterk- an rafmagnsstraum, og þarf til að lýsa upp Reykjavík. Litla spiladósin, sem Katharine Hepburn leikur á, er hennar eigin eign, en lnin hefir lánað fjelaginu hana til þess að nota hana í mynd- inni. Spiladósin er búin til í Wiei á 17. öld og er ennþá i besta lagi Þegar búið er að trekkja hana upp getur hún spilað látlaust í 2 stundir. Lew Ayres hefir sjálfur búið til brúðuleikhúsið, sem notað er i mynd- inni. Hann hefir einnig útbúið það, hvernig brúðurnar hreyfast. Sjálfur hefir hann búið til allar brúðurnar, neina eina, sem hann liefir keypl í Paris, og er sagt að hún hafi einu sinni verið í eign Napoleons. Ekki svefnstyggur. Paul R. Rea í Indíana er 55 ára, og bjó einn i dálitlu húsi, sem hann átti. En húsið var orðið gamalt og eina nóttina hrundi það í rúst. Ná- grannarnir náðu í lögreglu og slökkviIiðið, til þess að grafa Paul upp úr rústunum og loks fanst hann ofan í kjallara. En líkbörurnar, sem lögreglan hafði haft með sjer, fóru fýluferð. — Gólfið í svéfnherbergi gamla mannsins hafði sigið ofan í kjallarann og fjalir úr loftinu lagst yfir, en Paul hafði ekki einu sinni vaknað. Hann hraut. Og þegar hann var vakinn, varð hann mjög forviða yfir gauraganginum kringum sig.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.