Fálkinn


Fálkinn - 18.08.1939, Page 11

Fálkinn - 18.08.1939, Page 11
F Á L K I N N 11 ÚTIKJÓLL, þjetthneptur að framan meÖ „plat- blúsu“. EFTIRMIÐDAGSKJÓLL, úr svörtu stórrósuðu „crepe de chine“. Kjóllinn er þar fyrir utan prýddur tveimur slaufum og auk þess er blúnda að neðan. HVÍTUR STRÁHATTUR MEÐ MARINEBLÁU BANDI. Þetta er einn af þessum nýtísku höttum, sem ekki þýðir að setja upp nema hárið sje í lagi. Það eru erf- iðir tímar, sem við lifum á! SUMARDItAGT. Þessi kjóll er úr alsilki. Pilsið er „plisserað". Treyjan er úr „pique“. Við þessa dragt fer vel að nota hvít- an stráhatt með slöri eins og mynd- in sýnir. HENTUGUR KJÓLL, úr smárósóttu silkiefni, með plisser- uðu pilsi og nokkuð víðri blúsu, sjer- staklega vel fallinn sem útikjóll. FALLEG TVÍLIT DRAGT. Það er viðurkent, að fólk sýms! grennra í köflóttum fatnaði, ef sniðið ei á ská úr efninu, eins og pilsið hjer á myndinni. Jakkinn, sem er mjög einfaldur, er hentugur við sportdragtina og eins við götudragt- ina, ef dökt pils er haft við. „CYCLAMEN“-BLEIK DRAGT MED FANGAMARKI. Parísarstúlkurnar hafa í ár reynst svarta litnum ótrúar, sem undanfarið hefir verið þeirra uppáhaldslitur og hafa þær fest ást á bleika litnurn. Hann er nú notaður í alt mögulegt: undirföt, hatta, slör, hanska, tösk- ur og skófatnað. Hjerna sjest bleik dragt með svartri bryddingu. SVARTUR STRÁHATTUR MEÐ SVÖRTU FLAUELISBANDI. Þetta er mjög einkennilegur og jafnframt klæðilegur hattur. Fuglinn, — sem gæti þá og þegar flogið og tekið sjálfan hattinn með — á sinn þátt i að setja fallegan svip á liatt- inn. FALLEGUR HVÍTUR HATTUR, yfirdektur með slöri og prýddur blómum og slaufu. Frúin: Góðan daginn, prestur góð- ur! Hvað heyri jeg, ekki nema það þó, að þjer sjeuð orðinn bindindis- maður. Svo að nú get jeg ekki einu sinni boðið yður bjór. Presturinn: Nei, frú, það megið þjer ekki — en þjer getið reynt að svíkja hann ofan í mig úr hvítöls- flösku.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.