Fálkinn


Fálkinn - 03.11.1939, Blaðsíða 7

Fálkinn - 03.11.1939, Blaðsíða 7
F A L K I N N 7 LOFTHERÆFINGAR í ENGLANDI. Hjer sjest svonefntl vjelbyssu- myndavjel í notkun viö lieræfingar í Englandi. Eru myndavjelarnar not- aðar til þess að sjá hvort óvinaflug- vjelar hafa orðið fyrir skotum frá varnarvirkjunum niðri. MÓTMÆLI í MANDSJUKUO. íbúarnir i Hsinging, höfuðstað Mandsjukuo, sjást hjer með auglýs- ingar í kröfugöngu, til mótmæla hin- um sífeldu árásum Rússa á landa- mæri Mongólíu. ELISABET ENGLANDSDROTNING tók nýlega þátt í „garden party“ í Englandi og safnaði þar inn pening- fim til líknarstarfsemi. Á myndinni sjest litil telpa hneigja sig fyrir drotn ingunni, eftir að hún hefir afhent lienni peningagjöf. BECK í EINKENNISBÚNINGI. Beck utanríkisráðherra Póllands heimsótti nýlega herdeild sina í stór- skotaliðinu og var þá vitanlega í einkennisbúningi herdeildarinnar. — Annar frægur utanríkismálaráðherra gengur líka i einkennisbúningi núna, nfl. Anthony Eden, sem hefir tekið við majórsstarfi í hernum. KONUR INDLANDS taka sívaxandi þátt í stjórnmálalífi Indverja og hafa sumar þeirra reynst atkvæðamiklar á því sviði. Hjer sjást þrjár indverskar stjórnmálakonur á fundi. LIFANDI ANDLITSMYND. Þetta er ekki andlitsmynd eftir gamlan hollenskan málara, heldur ökumaður einn í Californiu, sem hefir verið valinn til þess, að sýna lifandi hina frægu mynd „Hlæjandi kavaler“ eftir Frans Hals á skemtun þar sem lifandi menn stæla frægar myndir. kallar ameríkanski ljósmyndarinn þessa mynd. Hún sýnir Gretu Gar- ho, sem er að hlæja, aldrei þessu vant, að fyndni Melwyn Douglas meðleikara síns, í livildinni milli þess að þau eru að leika í myndinni „Ninotsjka“, sem er fyrsta gaman- myndin, sem Greta Garbo hefir leikið í. ÞEGNSKYLDUVINNAN. Auk herskyldunnar hafa Þjóðverj- ar lika þegnskylduvinnu. Námsfólkið er skyldað til að vinna að landbún- aði í annatímanum og er sent þang- að, sem þörfin er mest á vinnúkrafti og fær — 30 pfenninga á dag í kaup. „Árbeitsdienst“ kalla þjóðverjar þessa þegnskylduvinnu sína. Hjer sjást skylduvinnumenn við kartöflu- v ppskeruna. Kastvjelar þær, sem Rómverjar notuðu til forna til þess að kasta grjóti á borgarmúra andstæðinga sinna liafa nú verið stældar af ung- um Ameríkumanni, Walter Bura í Newr Jersey. En vjelin hans kastar ekki grjóti heldur á hún að' kasta nönnum til sunds út á vatn. Hjer er liugvitsmaðurinn að reyna vjelina á sjálfum sjer. VERKFRÆÐINGUR GÖTUSÓPARI. Þessi gyðingur, sem nú er 03 ára lifir á því, að sópa göturnar í Jerú- salem. En fyrir nokkrum árum var hann einn af hæstlaunuðu verkfræð- ingum Þýskalands og sjerfræðingur í vegagerð og brúarsmíðum. Svo kom „landhreinsunin" í Þýskalandi og þá skifti um. SIR MALCOLM CAMPBELL, enski öku- og siglingagikkurinn sjest hjer i nýjum kappsiglingabát, sem heitir „Blue Bird II“. Á Coniston- vatni í Lancashire hefir lionum tek- ist að ná nýju meti á ])essum bát, og ryðja sínu eigin heimsmeti, sem hann setti í Sviss í fyrra. BETTY TOWLE heitir þessi ameríkanska stúlka og er aðeins 12 ára. Hún er jafnvíg á eldhúsverkin og hrossatamningar. — Hún er dóttir þekts læknis í Boston og reiðlistina hefir hún lært á bú- garði föður sins i Massachusetts.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.