Fálkinn


Fálkinn - 03.11.1939, Side 9

Fálkinn - 03.11.1939, Side 9
F Á L K I N N 9 um ákafu, aö hann skalf af gleði undir farginu. Þernan kom stöku sinnum í dyrnar. Hvort hún ætti ekki að taka til? Mann öskraði til hennar eins og villimaður: — Út! Út með yður! — Skiljið þjer ekki, að jeg verð að hafa næði? Það gat varla lieitið að hann snerti við matnum. Lagði sig nokkra klukkutíma þ'egar augun voru orðin svo þreytt, að stafirnir fóru að dansa. Það kom fyrir, þegar liann vaknaði um miðja nóttt, að honum fanst hann vera á fleygiferð í niðamyrkri. Hann jirýsti hnefunum af barkanum til þess að kæfa niður í sjer óp.... Og svo settist hann við skrifborðið á ný. Mánuði síðar var skáldsagan full- gerð, verk sem annars hefði tékið lieilt ár. Hann læddist niður til eins forleggjarans eitt kvöldið og laum- aði handritinu í brjefakassann. Ekk- ert heimilisfang, ekkert nafn. Aðeins auðkenni og „poste restante". Svarið kom innan viku. Vinsamlegt brjef frá forleggjaranum og tillaga að samningi. Hann 1 jet það Íiggja nokkra daga. Það lá eklcert á og liann liafði altaf vitað það: í þetta skifti hafði honum ekki mistekist. Hann las brjefið aftur og varð harmþrung- ir,n. Þetta hefði átt að verða fyrir löngu. Svo sendi hann svar og heimt- aði tífalt hærri ritlaun en boðin höfðu verið. -----Sagan kom út snemma hausts. Blöðin fóru að skrifa um hana. Hægt og gætilega í fyrstu. Nafn höfundar- ins var óþekt og efnið nýtt og ó- venjulegt. Forleggjarinn notaði sjer hik ritdómaranna og reyndi nokkrar fjórdálkaðar auglýsingar. Blöðin skrif uðu meira, og það sópuðust að þeim opin brjef með röddurti almennings. Kunnir menn með þjóðfjelagssam- visku spurðu hvort bókin segði satt. Því ef liún segði satt —---já, l)á.... Smellið gífurfrjettablað fór að rann- saka málið og birta myndir iútandi að því, á framsíðunni. Þvi miður — höfundurinn hafði rjett að mæla. Hann gat ekki hafa hitt naglan bet- ur á hausinn. Forleggjarinn spýtti bókarefninu vfir fimm dálka í næstu auglýsingu. ðnnur útgáfa rifin út á einum degi, þriðja og fjórða í prent- un — auðvitað auglýsingalygi. Ritdómararnir fóru að taka sig á. Nú komu þeir hver eftir annan og sogðu: Höfundurinn hefir tvímæla- laust skáldgáfu. Sjer hlutina af nýj- um sjónarhól notar nýtt og óvenju- legt form og skrifar kjarngóðan og frumlegan stil. Það er tvímælalaust, að hjer er um... Og lesendurnir spurðu: Hver er þessi ókunni rithöfundur? Forleggj- arinn hneggjaði: Já, hver er hann? — Nýjar rannsóknir í gífurblöðunum: Iir það hann eða hann — eða hann? — Við seljum það ekki dýrara en við keyptum, en af ýmsum orðrómi má ætla, að.... . ...Þarna kemur það! Er rithöf- undurinn sami maður og ungi rithöf- undurinn, sem menn álitu að hefði skotið sig árið 1937, en sem síðar kvað hafa sjest erlendis og lifir nú eins og blóm i eggi suður í Paris, að því er sagt er? —■ Er búkin föls- uð? — Forleggjarinn fjekst ekki til að segja neitt. Fleiri opin hrjef i blöðunum: Bæj- arstjórnin verður að gera eitlhvað. Hinir hjartagóðu borgarar bæjarins geta ekki látið það viðgangast, að atvinnuleysingjarnir lifi svona. Lesið bók Anton Beckers og dæmið sjálfir. Það eru hinir hágstöddustu, sem hjer eiga hlut að máli. „Mannverurnar i þoku“, bókin um fylkingu húsnæðis- leysingjanna.... — — — Eitt kvöldið situr liann lieima í herberginu sínu, sem hann hefir leigt sjer úti í bæ. Hann liefir leigt sjer ofurlilla íbúð, stofu. bað- STJELIÐ Tekur hún 150 farþega og allmikinn Á STÓRA FUGLINUM. flutning að auki. Nokkra hugmynd í Englandi er nýlega lokið við um stærð vjelarinnar má gera sjer af smíði á stærstu farþegaflugvjelinni, myndinni af stjelinu á flugvjelinni sem enn hefir verið smíðuð i heim- lijer að ofan, með þvi að bera það inum. Ilún heitir „Golden Hind“ og saman við fólkið. á að verða í förum yfir Atlantshaf. ~—— klefa og eldhús. Hann hefir fyrir skömmu skilað nýju handriti og er að byrja á þriðju skáldsögunni. Hann hefir gert áætlun fyrir mörg ár fram i tímann. Og svo er bara að skrifa og skrifa. En hann er þreyttur. Ritstörfin fara ekki jafn greitt úr hendi og áður. Það skeður æ oftar, að hugvitið gagn- tekur hann og hann vinglar i myrkri fortíðarinnar og bugast af kvíða. En ef hann hyrfi aftur? Æ, að h:.nn skuli aldrei geta komist upp á að hætta að hrella sig á hugsuninni um það! Það er engin leið opin til baka. Það er of seint. Já, en nú liefir liann peninga... . Bull, það er of seint. Hann veit það. Það er aðeins ein leið til að losna við þetta víl: Skrifa, skrifa.... skrifa allar hrell- ingarnar úr sjer, sigra og verða frjáls maður.------- Nú er drepið á dyrnar. Hann hrekk- ur við, en stendur ekki upp. Hver skyldi þetta geta verið? Hjer kemur aldrei neinn nema pósturinn. Hann liefir ekki talað við nokkurn mann i heila eilífð. Jæja, látum hann berja. Ætli hann fari ekki hráðum? Eða hann liefir tíma til að bíða. Það er drepið á dyrnar aftur — þrjú lítil, hikandi liögg. Skrítið að ekki skuli hafa verið hringt neðan úr ganginum. Hann lieyrir fótatak fjarlægjast á ganginum. Þá sprettur hann upp og þýtur út. Nú finst honum endilega, að hann verði að sjá, hvcr harði. ■— Halló — þjer, þarna! Á sama augnabliki sjer hann eftir þvi. Ungur maður stendur fyrir fram- an hann. Andlitið fölt og grátt, tvö þreytuleg og hvarmarauð augu undir húfuderinu, verkjandi af andvökum. Fötin og skórnir eru í tætlum. Tá stendur fram úr öðrum skónum, og þeir eru reyrðir saman með segl- garni.... Og í sama vetfangi kann hann alla söguna: — Engin atvinna, enginn eyrir fyrir gistingu, ráfar um í marga sólarhringa. ... Skyldi liann elcki þekkja það? Ætli þeir liafi rekist á áður? Skyldi hann liafa snuðrað hann uppi til þess að biðja um peninga. Veit hann hver hann er? Það sýnist ekki svo. í augnaráðinu sjest engin ánægja eða frekja þess sem veit of mikið. Ilann virðist geta hnigið niður af magnleysi hvenær sem vera skal, Hann mun hafa rek- ist þarna upp af tilviljun.... Röddin sem talar er þessi venjulega auð- mjúka og liikandi rödd betlarans, sem sultur og fátækt hefir sviðið úr allan hreim sjálfþóttans. — Ætlaði að spyrja um .... nokkra aura fvrir kaffi.... — Já, sjálfsagt. Hann leitar i vest- isvasanum, finnur eina krónu, — hjerna, gerið l>jer svo vel. Nei, ann- ars. Hann dokar við. — Kanske þjer viljið koma innfyrir og hlýja yður dálitla stund? Þjer getið fengið mat og kaffi hjá mjer. Hann langar alt í einu til að sýna alúð. Ekki af því að hann sje ljúf- menni. Síður en svo. Hann gerir það til þess að komast lijá að vera einn þá stundina. Hann þarf fjelagsskap. Ilver veit nema hann gleymi sínum eigin þjáningum um stund, meðan hann sjer þjáningar gestsins.... Pilturinn sest i stól við skrifborðið. En sjálfur fer hann fram i eldliús, setur kaffi yfir eldinn og bakar nokkur egg. Brauð og álegg i skápn- um. Þetta er gert á svipstundu. Þeg- ar hann kemur inn með bakkann sit- ur pilturinn enn og liorfir kringum sig í stofunni. Svo hámar liann í sig matinn. Becker sækir wisky og býður henum vindling. — Hjerna er ekki amalegt að eiga heima! — Nei, það er ‘eltki sem verst. — Einu sinni dreymdi mig um að eignast svona heimli. — — Jæja. Höfðuð þjer kanske at- vinnu þá? — Já, jeg var sendill í pappírsversl- un. Það stóð til að jeg kæmist á skrifstofuna, en svo var jeg rekinn. — Voruð þjer rekinn? — Já. Jeg týndi veski. Becker hi-ekkur við. Er þetta mögu- legt? Er þetta sami pilturinn, sem .... Nei, hvaða vitleysa! Hann drekk- ur stóran teyg úr glasinu. — Var þá mikið af peningum í veskinu? spyr hann loksins. — Fjögur þúsund. Jeg hafði verið sendur í bankann til að sækja pen- ingana og var rekinn samdægurs og fjekk ekkert vottorð. Og eftir það fjekk jeg hvergi atvinnu. Enginn vill svoleiðis fólk, eins og þjer vitið. Becker hafði staðið upp. Hann stendur við gluggann og horfir út. — Reynduð þjer að hafa upp á veskinu aftur? — Sei sei já, við auglýstum hvað eftir annað í blöðunum. Og jeg leil- aði og leitaði og lögreglan var látin vita, en það hlýtur einhver að hafa sfolið veskinu. Það er svo mikið af þjófum og illmennum, sem aldrei hugsa um nema sjálfa sig. ,æir hugsa ekkert um veslingana, sem komast i bölvun fyrir það, sem þeir gera. Becker hlustar á dóminn. Það er eins og orðin komi úr órafjarlægð. Hefir hann ekki heyrt það fyr? — Alt í einu veit hann það með sárri vissu: Hjer getur hann ekki verið lengur. Hann á ekkert af því, sem liann liefir umleikis. Hann á engan rjett á því og hefir enga vörn að færa fram gegn ákæru piltsins þarna. Hann verður cð fara. Hann snýr sjer við, en varast að horfa í augun á honum. — Heyrið þjer, þjer megið gjarnan vera hjerna í nótt. Jeg verð nefnilega ekki heima sjálfur. Fáið þjer yður bað og takið svo á yður náðir. Þjer finnið handklæðf og lök í skápnum þarna. Og ef þjer verðið svangur þá finnið yður mat í búrinu. Hjerna er svolítið meira af peningum. Jeg lít hjerna inn rjett fyrir hádegið á morgun. Hveir veit nema jeg geti út- vegað yður atvinnu. Pilturinn horfir á eftir honum. Hann er þreyttari en svo, að hann geti sagt nokkuð. Becker ráfar niður götuna. Er hann búinn núna — liefir hann unnið sig- ur? Já og nei. Gott að þvi er lokið. Hann veit að þetta tekst, ef hann fær aðeins tóm til.... Hvert á liann að fara? Nú finnur hann aftur til þreytunn- ar. Fæturnir fara að slettast upp á gamla móðinn. Skrokkurinn máttlaus. Gangstjettirnar glotta framan í hann, tómar og auðar, eins og þrer voru fyrrum — milu eftir mílu. . . . Nei! Alt í einu rjettir hann úr sjer og styrkur færist i allan likamann. í hug lians sprettur fram ósk — áköf og brennandi ákvörðun: — Guðrún! Guðrún! Jeg kem! Hann greikkar sporið. Og er far- ii\n að hlaupa áður en hann veit af. Frakkalöfin flagsa í blænum....

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.