Fálkinn


Fálkinn - 03.11.1939, Page 10

Fálkinn - 03.11.1939, Page 10
10 F Á L K I N N S k r í 11 u r. — Þetta er ekki síður r/ólfið mitl en loftið yðar, skiljið þjer. Oc/ jeg dansa þegar injer líst og eins og mjer líst! — Hjá okkur finnið þjer aldrei hár í súpunni. Alt fólkið er sköllótt. — Heyrðu, Kalli. Er kerlingin þin örfhent? — Af hverju heldurðu það? — Mjer sýnist þú vera svo þrút- inn á hægri vanganum. Læknirinn er viðutan í scrm- kvæminu. FYftST TIL PAfíBA! Bjart sumarkvöld. Þau sitja fyrir vestan Grandagar'ð, sólin er að hníga í haf norður við Snæfells- jökul og öldurnar kyssa fjörumöl- ina. Þau eru ástfangin. Bæði. Ákaft! Hann segir: — Er það satl, elsku Elsa mín? Hún segir: — Já, það er satt, Jónas. Alveg áreiðanlegt? — Já, alveg áreiðanlegt. Jeg elska þig fram í rauðan dauðann. Hann verður áræðnari, flytur sig nær henni, og leggur varlega kinn að kinn. — Þá færir hún sig undan. Honum verður órótt. Farðu fyrst til hans pabba, segir hún lágt. —- Hversvegna? segir hann. Hún strýkur honum um kinnina. .. Hann er rakari, segir hún. Úr brjefi frá ríka frænda: „Jeg sendi þjer hjálagt þessar tíu krón- ur, sem þú baðst mig um, og vii um leið henda þjer á ritvillu i hrjefi þínu. Maður skrifar tíu með einu núlli.“ YHC/W Æfíntýri í sumarleyfi. (Framhaldssaga með myndum). VIII ALTAF FLÓKNAR ÞAÐ. 22) Pjetur Söfren hafði auðsjáan- lega fengið áhuga fyrir drengjun- um, því að daginn eftir kom hann með ljóniandi fallega gæs til þeirra. „Þið getið fitað hana og drepið hana og haft hana i skilnaðarveisl- una, áður en þið farið,“ sagði liann og rölti svo sína leið. En það lang- aði víst fleiri í gæsasteik. . . . 23) Því að síðar um daginn, þeg- ar gæsin var að synda úti á vatni heyrðist skvamp og áður en dreng- irnir gátu snúið sjer við var gæsin horfin. Það sáust aðeins nokkrar loftbólur og fjaðrir, þar sem gæsin hafði horfið ofan i vatnið. 24) Drengirnir fóru nú á flekan- um út á vatnið, til þess að rann- saka þetta dularfulla fyrirbrigði nánar. Sáu þeir þá hringiðu, sem fór stækkandi í vatninu. Og ósjálf- rátt mintust þeir þá hinnar kyn- legu frásagnar Pjeturs Söfrens um skrímslið. Hver tók gœsina? Hjerna sjáið þið myndir af nokkr- um uppgötvunum þessa undramanns: 1. Bóka- og prentpressa, sem da Vinci bjó til 150 árum áður en slík- ar pressur fóru að tíðkast. — 2: Stigi, sem í aðalatriðum er allsvip- aður slökkviliðsstigum nútímans. — 3: Skrúfutöng. Gerðin er einföld en töngin er sterk. HUGVITSMAÐUR, SEM GLEYMDIST. Þið þekkið sjálfsagt öll hann Edi- son, mesta hugvitsmann vorrar ald- ar. Uppgötvanir hans eru notaðar nærfclt á hverju heimili um viða veröld. En þekkið þið Leonardo da Vinci? Þið vitið máske, að hann var frægur italskur málari og var uppi um miðja 15. öld, en þið vitið siður, að hann var einn af frægustu hugvitsmönnum heimsins, miklu undraverðari en sjálfur Edison, þeg- ar á það er litið, að hann lifði á myrkraöld vanþekkingar og hjá- trúar. Hann fann upp gufuvjel, þrjú hundruð árum áður en James Watt bjó til gufuvjelina sína. Og 450 ár- um áður en fyrsta flugvjelin lyftist upp frá jörðu teiknaði þessi gamli ítali flugvjel. Hann hafði gert sjer grein fyrir, hvernig búa mælti til ljósmyndavjel, 400 árum á undan Louis Daguerre. —• Og hann gerði teikningu af hríðskotabyssu 350 ár- um áður en Maxim smíðaði fyrstu hriðskotabyssuna sina. En það var fleira en þetta, sem hann lagði gjörfa hönd á. Hann bjó til áhöld og smíðatól, til þess að Ijetta handverksmönnm verk þeirra og spara tíma. Ef Leonardo da Vinci hefði lifað á 20. öld mundu uppgotv- anir hans hafa breiðst út um allan heim á svipstundu. En á 15. öld þektu fáir manninn og þegar liann dó fjellu uppgötvanir hans i gleymsku. Það var aðeins minningin um málarann og myndhöggvarann d<° Vinci, sem lifði. t

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.