Fálkinn - 10.01.1941, Qupperneq 3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjóri: Skúli Skúlason.
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofá:
Bankastr. 3, Reykjavik. Sínii 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6.
Blaðið keinur út hvern föstudag.
kr. 6.00 á ársfj. og 24 kr. árg.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Auglúsingaverð: 20 aura millim.
HERBERTSprent.
Sfcraddaraþankar.
Siðarliðið sumar var kalt og hreta-
samt. Kartöflurnar spruttu með versta
móti. En lygin dafnaði prýðilega og
sáði sjer sjálf. Æfintýrið hans And-
ersens um fjöðrina sem varð að finnn
hænum gerðist úrelt með söguþjóð-
inni, alveg eins og hugarflugssagan
hans Jules Verne um manninn, sem
fór kringum jörðina á 80 dögum.
Hjer breyttusl lóðarbelgir í tundur-
dufl, saklgusar kríur í flugvelar,
árabátar í bryndreka, ræskingar í
fallbyssuhvelli og einfaldir lygalaup-
ar í spá'menn í sínu föðurlandi. Fólk
urðu spámen í sinu föðurlandi. Fólk
dreymdi drauma stóra og hættulega
um' líf sitt og annara, og þessir
draumar voru orðnir að raunveru-
legri staðreynd i næsta framfærslu-
hreppi og staðreyndin hafði stækk-
að þúsundfalt þegar hún kom í næstu
sýslu. Lamb fæddist í Tungunum og
talaði ensku nýfætt, en þegar því var
svarað á íslensku þá dó lambið þeg-
ar og var það skaði, þvi að það liafði
ætlað ser að segja hvorir ynnu slríð-
ið. Vitanlega er sjálfsagt að trúa
þessu, þó að það þyki ekki trúlegt,
því að á vorum upplýstu timum er
kurteisi að trúa á það yfirnáttúrlega,
og því fastar sem það er ótrúlegra,
því að annars lendir maður í flokki
með Tómasi, sem vildi sjá sjálfur.
Dags daglega gjósa upp hinar ferleg-
ustu lygasögur, sumar yfirnáttúrleg-
ar en fleiri þó þannig, að ekki virðist
nema sjálfsagt að trúa þeim. Þær eru
sumar þannig til komnar, að prakkar-
ar búa þær til „upp á gría“ og lauma
þeim frá sjer. Sumar eru ofur mein-
lausar i fæðingunni en verða ferleg-
ar að vexti og innmat þegar þær
hafa farið inn um eyru og út um
munn 3—4 ýkjusjerfræðinga. Svo geig
■yænlegar eru þær þá orðnar, að þær
æsa saklausan áheyrendann svo, að
þann tútnar út og ætlar að rifna af
heilagri vandlætingu. Eða að þær eru
þess eðlis, að þær geta valdið harmi
eða jafnvel sturlun einstakra manna,
sem lognir eru dauðir, slasaðir, tugt-
húsaðir eða eilthvað því líkt. Þeir
eru miklir og nærgætnir velgerðar-
menn, höfundar og boðberar slíkra
sagna, við vandamenn þeirra, sem
liafa orðið fyrir þeirri náð að verða
;SÖguhetjUr þeirra.
Það er ávalt miklu logið á stríðs-
4ímum, og sumar stríðsþjóðir hafa
stórar stofnanir til þess eins að ljúga
á andstæðinginn vömmum, en þegja í
hel allan þann sannleika, sem kemur
sjer illa. Við tölum mikið um hlut-
leysi. Væri þá ekki rjett að taka
Grón á Leiti úr umferð, í stað þess
að halda við hana?
Síra Jón Thorarensen.
Síra Jakob Jónsson.
Á þriðjudaginn var skipaði kirkju-
málaráðherra eftirfarandi presta i
hin nýstofnuðu prestaköll höfuðstað-
arins: f Laugarnessprestakalli: síra
Garðar Svavarsson, í Hallgrimspresta-
kalli: síra Sigurbjörn Einarsson og
síra Jakob Jónsson, og í Nespresta-
kalli: síra Jón Thorarensen.
Eins og kunnugt er hafði kosning
ekki orðið lögmæt í neinu af presta-
köllunum, jafnvel ekki í því eina,
sem hafði aðeins einn umsækjanda.
Þár skorti á meiri hluta greiddra at-
kvæða, og mun fólkið hafa hugsað
sem svo, að það þyrfti ekki að ómaka
sig til að kjósa prestinn, því að hann
væri sjálfkjörinn livort sem væri.
í hinum prestaköllunuin var kapp
mikið i kosningunni, líkast því að
alþingiskosningar væru á ferðinni.
Þar voru kosningabílar, þar voru
upplýsingaskrifstofur og smalar voru
á ferðinni til að gæta lítilsgildra
sálna, sem gjarnan vildu láta vera
að ráða úrslitum um prestinn sinn,
vegna þess að svo mjög var um deilt,
hver hann ætti að vera.
Úrslitin urðu þau, að i Laugarness-
prestakalli fjekk síra Garðar Svavars-
son nálega lielming atkvæða. Var
hann einn í kjöri, eins og áður er
sagt. í Nespreslakalli varð sira Jón
Tliorarensen hæstur að atkvæðatölu.
Hafa þessir tveir prestar verið skip-
aðir í embætti. í Hallgrimssókn,
sem er iangstærst hinna nýju presta-
kalla, skyldi kjósa tvo presta. Hæst-
ur varð að atkvæðatölu cand. Sigur-
björn Einarsson, en næstur honum
Jón Auðuns, fríkirkjupreslur i Hafn-
arfirði. Hlaut sá fyrnefndi skipun,
en ekki sá síðarnefndi, því að í
annað embættið var skipaður síra
Jakob Jónsson.
Síra Garðar Suavarsson.
Síra Sigurbjörn Einarsson.
Allir eru hinir nýju prestar inn-
an við fertugt og einn, síra Sigur-
björn, hefir ekki náð þrítugsaldri.
Síra Jón Thorarensen er elstur hinna
nýju presta, fæddur 21. okt. 1902. Að
loknu guðfræðinámi var hann kosinn
prestur í Hraunprestakalli og hefir,
gegnt því síðan. Utan prestskapar er
sira Jón einkum kunnur fyrir áliuga
sinn á þjóðlegum fræðum og þjóð-
sögum, og liefir gefið út þjóðsögu-
safnið „Rauðskinnu". Síra Jakob
Jónsson er næstelstur hinna nýju
presta, fæddur 20. jan. 1904. Að
loknu guðfræðinámi gerðist hann
um sinn aðstoðarprestur í Nespresta-
kalli í Norðfirði, og gegndi því
embætti til ársins 1934, að liann
fluttist til Ameríku og gerðist prest-
ur i íslandsbygðum vestan hafs. —
Síra Garðar SvavarSSbn er fæddur
1906 og útskrifaðist frá háskólanum
1933. Varð liann þá prestur á Hofi
í Álftafirði, en síðan 1936 liefir hann
verið þjónandi aðsloðarprestur í
Reykjavík, og haldið guðsþjqpustur
í Laugarnesssókn. — Síra Sigurbjörn
Einarsson er yngstur hinna nýju
presta, fæddur 3. júni 1911. Hafði
hann lagt stund á trúarsögu og
heimspeki i Uppsala áður en hann
tók að stunda guðfræðinám, en því
lauk hann við Reykjavíkurháskóla
árið 1938. Að loknu guðfræðiprófi
varð liann prestur á Breiðabólstað
á Skógarströnd.
Gtbreiðið Fálkann!
)WW(V/V<VIVlV>VW>VfV(V^/V<V/VI%'n//V/V<V«VlV<V'W
Robin Hood Nútímans.
Enska þjóðsögulietjan Robin llood,
eða Hrói höttur, sem stal frá þeim
ríku til að gefa fátækum, hefir löng-
um verið vinsæll maður víðast um
heim, ekki minst meðal þjófa, sem
reynt liafa að friða vonda samvisku
sína með því, að taka liann sjer til
fyrirmyndar við og við. Meðal þess-
ara glæpamanna má nefna Chicago-
bófann Toni Guzzi (italskan, eins og
flesta afreks-glæpamenn Ameríku),
sem kostaði uppeldi sonar manns
eins, er hann Iiafði myrt, og sem að
staðaldri sendi tíu fjölskyldum, er
hann hafði þekt, peninga — „en sjálf-
ur er jeg fátækur jafnan,“ skrifaði
hann.
Giffard, einn hinna svokölluðu bif-
reiðabófa, sem kendir eru við Bonnet,
og voru allit- teknir af lífi, ól upp
barn Parísardrósar einnar, sem beð-
ið hafði bana í götu-upphlaupi.
Poulailler, einn af glæpaslæpingum
Parísar ól önn fyrir fátæklingum í
nágrenni sínu og gaf kirkju sinni
stórfje og sama gerðu Þjóðverjinn
John Buckler og Englendingurinn
Chartie Peace. ítali einn, sem yar
handtekinn í Róm árið 1930 liafði
jafnan gefið þremur fátækum fjöl-
skyldum lielming þess, sem liann afl-
aði með þjófnaði og ránum og látið
prest einn útbýta peningunum. Ekki
vildi þó presturinn viðurkenna, að
liann hefði vitað hvernig fjeð var
fengið. Japani einn, sem var fangels-
aður í To'tsuka 1934, bar það fyrir
rjetti, að meðan hann var að ment-
ast á liáskólanum liefði hoiium blöskr
að svo, live auði og gæðum var mis-
skift, að hann gerði sjer skrá yfir
1000 auðuga menn og afrjeð að ræna
þá og stela af þeim, liverjum eftir
annan og gefa fimtung til guðsþakka.
Af reikningum hans mátti sjá, að
hann hafði aldrei vikið frá þessari
reglu og var hann þannig 20%-
Hrói Höttur. En það er vafasamt
hvort aðrir þeir, sem nefndir voru,
hafa verið svo mikið, þegar frá er
skilinn ítalinn, sem gaf helming afla
síns.
„4
Gnnnar Finsen læknir
sæmdur heiðurskrossi Finnlendinga.
Fálkinn liefir áður getið Gunnars
Finsen læknis, -í sambandi við afrek
lians í finska stríðinu og síðar í
styrjöldinni í Noregi, en þar var
liann lierlæknir í Flegravigi í Þrænda-
lögum.
Nýlega hafa borist fregnir af þvi,
að Gunnar, sem nú er sjúkraliús-
læknir í Stafangri, hefir verið sýnd-
ur sá heiður, að Finnlandsstjórn
hefir sægmt hann lieiðursmerki. —
Sama lieiðursmerki var annar landi
vor, Snorri Hallgrímsson, sæmdur
við sama tækifæri.
Fjðrir nýir prestar í Beykjavfk.