Fálkinn


Fálkinn - 10.01.1941, Qupperneq 4

Fálkinn - 10.01.1941, Qupperneq 4
4 F Á L K I N N CHARLES MAURICE DE TALL- EYRAND DE PERIGORD fædd- ist í Paris árið 1754. Sem barn varð hann máttlaus í öðrum fæti og bjó að þvi æfilangt. Vegna heltinn- ar töldu foreldrar hans hann óhæfan til að erfa tign og metorð föður síns og þessvegna gekk þeíta til yngri hróður hans. En gömlu lijónin ætl- uðu að gera prest úr eldra synin- um, þvi að það gerði ekkert til, þó að prestar væru haltir. En Talleyrand var ekki klerklega sinnaður, og þegar hann komst á snoðir um þetta, ætlaði hann af göflunum að ganga. En hann varð að hlýða. Og svo var hann innritað- ur á prestaskólann Saint-Sulpice og þar vann hann siðar prestaeiðinn. Guðfræðinámið aftraði lionum ekki frá að lifa því lífi, sem honum var geðfeldast. Hann og tveir kunningjar hans mynduðu klíku, sem var alræmd i glaðheimum Parisarborgar fyrir meinfyndni og slark. Talleyrand sagði siðar, að sá sem ekki hefði lifað Parísarlífi fyrir byltinguna miklu, vissi ekki livað lífið væri. Það var á þeim árum, að Voltarie kom til París, á gamals aldri, og eit’i af síðustu verkum þessa gamla spek- ings var að leggja blessun sina yfir Talleyrand, sem kraup á knje fyrir honum, frammi fyrir miklum mann- fjölda. Talleyrand öðlaðist snemma þann heiður, að eignast marga eitraða fjandmenn. En hann eignaðist lika aðdáendur, sjerstaklega í hópi liinna áhrifameiri aðalskvenna. Ein þeirra, greifafrú de Brionne, var svo hrifin af hinum unga ábóta, að hún hjet því að gera sitt til, að hann yrði kardín- áli. En það fór þó út um þúfur, þótl frúin fengi Gústaf III. Svíakonung í lið með sjer — en liann var mikill vinur páfa, þó að lúterskur væri. Ábótinn huggaði sig við, að hann yrði þó að minsta kosti biskup. Eftir ýmsar árangurslausar tilraunir tókst föður Talleyrands þó á banasæng- inni, að fá Lúðvik 16. til að gera piltinn að biskupi. Var hann vígður til biskups af Autun árið 1788, þvert ofan í vilja móður sinnar, sem taldi son sinn svallsamari en bískupi mætti sæma. Undir eins og Talleyrand var orð- inn biskup, reyndi hann að gera sjer sem mestan mat úr embættinu. Hann braut upp á ýmsiun umbótum í fje- lagsmálum og kom þeim fram. Áhugi lians fyrir stjórnmálum fór sívax- andi og hvenær, sem hann sá færi á, ljet hann til sin taka um utanríkis- málefni. Um þessar mundir hafði nýr verslunarsamningur verið gerður við England. Sætti liann fyrst andmælum aí Frakka liálfu og var talinn Eng- lendingum i vil. En Talleyrand mælti á móti og varði samninginn og færði þau rök til, að náin samvinna milli iðnaðarlands og búnaðarlands lilyti að verða báðum aðilum til hagsmuna. Hann sá einnig svo langt fram i tím- ann, að honum var ljóst, að náin samvinna milli þessara landa væri hesta tryggingin fyrir friði i álf- unni, og talaði sífelt máli samvinn- unar við Englendinga. Talleyrand var þeirri gáfu gæddur, að sjá hlutina í rjettu ljósi, en ekki eins og maður óskaði að þeir væri. Hann var þvi enginn hugsjónamað- ur í algengustu meiifingu þess orðs, en umbótamaður var hann, og um- bóta var þörf í Frakklandi þá, ef alt átti ekki að komast á ringulreið. Svo djarfhuga var hann, að árið 1789 bar liann fram frumvörp um, að af- henda ríkinu, sem þá var orðið gjald- þrota, allar kirkjueignir, Vitanlega vakti frumvarpið megna gremju, ekki síst fyrir það, að það kom frá ein- um af æðstu mönnum kirkjunnar. En sjerstaklega á Talleyrand þó heiður skilið fyrir álit sitt um alþýðufræðslu, er hann lagði fram. Jafnvel svæsn- ustu andslæðingar hans verða að viðurkenna, að það var stórmerki- legt skjal, enda byggist alþýðufræðsl- an í Frakklandi á þvi enn, i mörgum atriðum. Þegar byltingin flæddi yfir og af- tökurnar voru i almætti sínu, sat Talleyrand í besta yfirlæti í London, og var að skrifa ritgerð um.hertog- ann af Orleans. Þó að bylting og stríð fylti liann skelfingu og við- bjóði, var hann svo víðsýnn, að hann ljet sjer ekki til hugar koma, að áfellast upphafsmenn byltingar- irinar. „Byltingin átti enga upphafs- menn, leiðtoga eða foringja,“ skrifaði bann. „Sæðinu var sáð af rithöf- undunum, sem á djörfu og upplýstu menningarskeiði óskuðu að hrinda gömlum goðum af stalli, og kiptu stoðunum undan trúnni og þjóðfje- lagshyggjunni.“ En þegar byltingin var orðin staðreynd reyndi hann að aftra því, að hún snerist upp i drotn- unarstefnu, sem lierjaði á nágranna- löndin eins og farsótt. Eftir að Danton var tekinn af lífi - fanst í plöggum hans skrif eitt,. með bók- stafnum T undir. Er þar ráðið til að fara að öllu hægt og stilt og láta ekki ofmetnast. T bendir á, að liin sanna gæfa þjóðar og einstaklinga sje ekki fólgin í því að taka löud af öðrum, heldur að bæta sin eigin lönd. Það sje rangur skilningur á eigin mætti og grátt gaman stjórn- málalegrar vitfirringar að hrifsa lönd undir sig með ofbeldi eða svik- um. Enginn efast um, að þetta plagg sje frá Talleyrand, og margir mættu íliuga sannleiksgildi þess í dag. Plaggið er talandi votlur um, að Talleyrand var friðarvinur. Og hann hjelt fast við þessar hugsjónir alla sína æfi og barðist ósleitilega fyrir þeim, þegar Napoleon ofmetnaðist og fór með báli og brandi um álfuna. Talleyrand var staddur í Vestur- heimi, þegar byltingunni lauk. Hann reyndi nú að koma því til leiðar þaðan, að hann fengi leyfi til að koma heim til Frakklands aftur, og sneri sjer til skáldkonunnar ÍVladame de Stael í þeim erindum og beitti hún sjer fyrir inálstað hans. Mörgum árum síðar, eftir að óvingast liafði með þeim, spurði Napoleon livorl það væri satt, að Madame de Stael \æri refjott. „Hún er svo refjótt,“ svaraði Talleyrand, „að án refja hennar væri jeg hjerna ekki núna.“ — „Hún virðist ekki vera falslaus vinur,“ sagði keisarinn. „Hún er svo falslaus vinur, að hún væri til með að fleygja öllum kunningjum sín- um i sjóninn, til þess að fá tækifæri til að draga þá upp úr aftur,“ svar- aði Talleyrand. „Meðún „direktori-ið“ — fimm manna ráðið —> sat að völdum (1795 —’99) varð Talleyrand utanríkisráð- herra. Á þeim árum efnaðist hann vel og síðar komu honum víða bitl- ingar, en enginn vissi, hvaðan sum- ir komu. í fjármálabrelluin sinum naut Talleyrand aðstoðar vinar síns. Casimir de Montrond. Talleyrand sagði, að það væri gott að eiga við Montrorid, því að hann væri ekki að setja smámuni fyrir sig, en Mon- trond sagði, að Talleyrand væri sjer að skapi, vegna þess að hann hefði enga samvisku. Tæpri viku eftir að Talleyrand var orðinn utanrikisráðherra steig hann skref, sem skar úr um fram- tið hans sjálfs, Frakklands og jafn- vel allrar Evrópú. Hann var eini einbeitti maðurinn í þessari óráðnu stjórn, sem Frakkland liafði fengið, og fór nú að svipast um eftir mönn- um, sem gætu endurreist Frakkland eftir lirunið. Hann kom auga á ungan hershöfðingja, sem hafði unnið sig- ur eftir sigur í Norður-Ítalíu. Tall- eyrand áleit, að gáfur Napoleons gætu komið að notum viðar en á Vígvöllunum. Hann skrifaði honum ísmeygilegt brjef og vottaði honum nðdáun sína. Og er Napoleon hafði lesið brjefið, þóttist hann sannfærð- ur um, að það væri þó að minsta kosti einn maður eftir hans höfði í Frakklandi. Þeir skrifuðust nú reglu- lega á, lengi vel. En í fyrsta skiffið, sem þeir hittust, kom munurinn á lund þeirra í ljós. Napoleon var barmafullur af hugmyndum — sem staðreyndirnar fóru þó fram úr áður en lauk. Talleyrand var kaldur og hjelt sjer við jörðina. En þrátt fyrir múninn sá Talleyrand, að Napoleon væri maðurinn, sein þjóðin vildi liafa. Frakkland var útsogið eftir byltinguna. Alt í lamasessi. Fimin- menningastjórnin var dáðlaus og sið- spilt. Kröfurnar um sterkan mann, sem gæti sameinað þjóðina, urðu háværari og háværari. Talleyrand vissi það. Hann liafði þreifað á slag- æðinni á samtið sinni og gert áætl- unina: Fimm manna stjórnin álti að falla! Ekki við áhlaúp utan að. Hún átti að fúna sundur — innan frá. Eina nóttina sat Talleyrand í stofu sinni í rue Taitbout og var að ræða úm samsærið við Napoleon, en tvö kerti loguðu á borðinu. Alt í einu heyrðist hófaglamm á götunni og riddarafylking staðnæmdist við hús- ið á móti. Napoleon fölnaði. Tall- eyrand slökti á kertunum. Hafði komist upp um þá? Voru þessir menn komnir til að handtaka þá? Þeim var báðum ljóst, hvað í veði var. Loks stóð Talleyrand upp, lædd- ist á tánum út að glugganum og gægðist út, og bjóst við að heyra í dyrahamrinum á hverri stundu. Þeg- ar hann hafði rýnt út í myrkrið um stund sá hann, hvernig í öllu lá. Það voru spilakrár, sem lokuðu seint, binumegin við götuna. Eigandinn átli heima i hinum enda borgarinnar og varð að hafa með sjer vopnaða ridd- ara, þegar liann fór að sækja* ágóð- ann eftir kvöldið, því að göturnar i Paris voru ótryggar i þá daga. „Hershöfðinginn og jeg,“ segir Talleyrand í sögulokin, „hlóum hjartanlega að liræðslunni í okkur. En hún var skiljanleg, því að við þektum stjórnina og vissum, að hún svífðist einskis, ef svo bar undir.“ En lesandinn efast um sannleiks- gildi sögunnar. Var þessi hræðsla Talleyrands ekki uppgerð? Úr því að hann var andbýlingur spilakránna hlaut hann að hafa orðið var við þessar kvöldheimsóknir riddaranna fyr. Var hann ekki að prófa hug- rekkið í Napoleon? Samsærið tókst og Napoleon varð einræðismaður og fyrsta árið tókst Talleyrand að koma mörgu fram, í innan- og utanrikismálum, þvi að samvinnan var enn góð með þeirn Napoleon. En þetta stóð ekki lengi og brátt dró til sundrungar með þeitn. Fram til þessa hafði nærri þvi öll Evrópa staðið sameinuð gegn Frakklandi. Nú urðu allir óvinir Frakka — nema England — sigraðir, liver eftir annan, lönd þeirra tekin og innlimuð í Frakkland eða gerð að skjólrikjum. Ýmsa fór að sundla, en utanríkisráðlierrann einn var kaldur og rólegur. Hann sá æ betur og betur, að stefnan, sem Napoleon hafði tekið, mundi fyr eða síðar lenda í tortímingu. Frakkar höfðu miklu meira gagn af friðnum í Ami- ens en Engléndingar. Talleyrand, sem hafði þá gáfu mikilla stjórnmála- manna að kunna að hefja sig yfir smámuni og þjóðdramb, óskaði þess, að friðarsamningarnir í Amiens hefðu veitt Englendingum meiri hlunnindi, svo að þeir hefðu orðið grundvöll-

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.