Fálkinn


Fálkinn - 10.01.1941, Qupperneq 11

Fálkinn - 10.01.1941, Qupperneq 11
F Á L K I N N 11 Matarbálkur .. Eftir Eiísabetu Guðmundsdóttur - ■ I. HRÍSGRJÓNAGRAUTUR. II. GÆSASTBIK. III. KAFFI-FROMAGE. Miðað við 12 manns. Hrísgrjónagrautur. 5l/s litri mjólk er soðinn í potti. Þegar suðan er komin upp í pottinum er 625 gr. af vel þvegnum lirísgrjónum hrært út í pottinn og hrært án afláls þangað til suða kemur upp aftur. Þá er hlemmurinn látinn yfir og dregiö af hilanum, svo að aðeins bólar á suðu. Grauturinn er látinn sjóða li/> klukkustumi og er þá hlemmurinn tekinn af og grauturinn saltaður. Reynist liann of þykkur má þynna hann út með sjóðandi vatni. Þrír lítrar af hvitöli er hæfilegt útálát handa 12 manns. Gæsasteik. 5—6 kíló gæs talið hæfi- legt handa 10—12 manns. — Gæsin er steikt í lieitum ofni í 2%—3*4 klukkustund. Gæsina þarf að svíða áður, svo að öll fiðurló hverfi í burt. Er gott að nota sprittlampa til þess, eða dósarlok, ef ekki er annað fyrir hendi. Hellið spritti á lokið og bregð- ið eld að því, snúið gæsinni liratt í hendi ylckar yfir loganum, þangað til öll hár eru liorfin. Gerið þverrifu aftarlega á kviðinn og takið öll.inn- yfli út og þvoið magaholið vandlega. Nuddið hana siðan með salti og pipar. Takið íiáls, vængi, fætur og hjarta og sjóðið það í linsöltu vatni í súpu. 7—8 epli oru afhýdd og skorin í 4— 8 hluta. 125 gr. sveskjur eru þvegn- ar úr heitu vaíni og steinarnir teknir úr þeim. Eplabitunum og sveskjun- um er fylt í magaholið á gæsinni og rifuopið saumað saman, salti nuddað utan á gæsina og liún lögð i ofn- skúffuna þannig að brjóstið viti upp. Ofninn verður að vera vel heitur. Steikið gæsina % klukustund áður en byrjað er að liella á liana sjóðandi vatni. Gott er að liella á hana með jöfnu millibili, 10—15 mínútna, i 11/9 klukkustund, en síðan stikna án yfir- hellingar í einn klukkutíma. Tutt- ugu mínútum áður en maturinn er borinn fram er seyðið tekið af gæs- inni. Smjor og hveiti bakað upp og þynt út með seyðinu. Sósulit, salti og Maggiexlrakt bætl við, eftir þvi sem gott þykir. Kaffi-fromage. 1% peli af lút- sterku kaffi, 6—7 blöð af meðal- þykku matarlími og tæp 200 gr. af strausykri. Sykurinn og matarlímið er látið renna i sjóðandi kaffilegin- um. Þegar matarlímið er runnið er lögurinn látinn kólna. Þeyttum rjóma er rent yfir skálina. I. GULRÓFUSÚPA. II. SVÍNASTEIK. III. prince-of-wales-fromage. Miðað við 12 manns. Gulrófusúpia. 10 gulrófur, 3 laukar, 5 lítrar kraftseyði. Skafið gulrófurnar, skolið þær vel. Skerið þær i þunnar sneiðar; takið laukinn og farið eins með liann. Lát- ið þetta í pott ásamt helmingnum af seyðinu, og salti og steyttum pipar, hvltum. Er þetta soðið uns rófur og laukur er orðið meyrt. Takið grófa síju og nuddið lauk og rófum gegn- um sigtið. 100 gr. af smjöri eru látin renna í potti, 100 gr. af liveiti hrært út í smjörið og þynt út með maukinu af rófunum og soðinu. Gulról'usúpa er framreidd með ristuðu brauði, sem nefnt er brcmö-croutons. í þá má nota gamalt hveitibrauð, skorpurnar eru skornar af, brauðið skorið i smábita og bakað ljósbrúnt á pönnu i smjöri eða plöntufeiti. Brauðið er fært upp á pappir, meðan fitan rennur af því. — Brauð-crout- ons má bera fram sjerstakt með súp- unni, einnig er það notað til skreyt- ingar á föt. Svínasteik með rauðkáli. Sex kíló steik er steikt í 4 kl.tíma. — Bóg- urinn er oft notaður þar sem fátt er í heimili, en ef fleira fólk er um að ræða er oftast keypt stykki úr læri. Auðveldast er að sjá hvort ketið er gott, með því að lita i sárið: það á að vera Ijósrautt og bjórinn þunn- ur. Bjórinn er skafinn og þveginn með vel hreinum klút. Með beittum hníf er alt lærið rispað með djúpuin þverrispum, þannig að ekki sje meira en 1 sentimetri milli rispanna. Salti er núið á steikina og lárberjum stungið hjer og þar. — Ofnin á að vera vel heitur. Steikin er steikt í 20 mín. áður en vatni er helt yfir. Yfir sjálfa steikina má ekki liella neinu vatni, því að þá verður bjórinn seig- ur, en það er aðalkostur góðrar svínasteikur, að bjórinn sje stökkur, svo að liann hrökkvi undan tönn- inni. Hálftíma áður en steikin er bú- in er best að hella seyðinu af henni. Steikin er þá látin þur í ofninn og verður að líta vel eftir að bjórinn ekki brenni. Feitinni er fleylt ofan at soðinu og notuð til að baka upp hveitið í; er þetta síðan þynt út með seyðinu. — Rauökúl. Ystu blöðin af rauð- kálinu eru tekin af og fleygt, en kál- liausinn síðan skorinn sundur i 8 hluta, sem brytjaðir eru í þunnar lengjur. Smjör er látið í pottinn, l/9 bolli af sykur, 1 bolli ediksbtanda. Gott er að nota safa af rauðrófum ef til er. Ofurlítið af salti. Kálið er eim't í tvo tíma: seinni tímann hlemmlaust, og þá sem minst hreyft við því. Áð- ur en kálið er borið inn er það bætt með sykri, salti, smjeri, ediki og saft, eftir smekk. PRINCE-of-Wales-fromage. 8 eggja- rauður, 375 gr. strausykur, — hrært vel saman. 1 peli sjóðandi vatn, 2 meðalþykkar matarlimsplötur Va-peli af rommi og safi úr^einni sítrónu. Matarlím, rornrn og sítrónusafi er hrært út i eggjarauðurnar og 8 eggja- livítur stífþeyttar látnar seinast út í. Saftsósa er ágæt út á þetta. BETLARINN VIÐ NOTRE DAME. Niöurt. af bls. 9. inu að honum meðan hún var að liorfa á málverk. Þá tók liún eftir, að hann var eins og hann hefði varp- að grímu. Og hún hrökk við er hún sá angistina í andliti hans. Hún liafði sjeð þetta andlit áður — Þennan mikla þjáningarsvip. En svo brosti hann í sama bili. Og gerði að gamni sínu það sem eftir var, til þess að reyna að láta liitt gleymast. Og þegar liún kvaddi liann í dyrunum hjelt hann lengi í hend- ina á henni og kysti svo á liandar- bakið. VVONNE brann af þrá. Hún hafði skreytt herbergi Jean Pauls með svo miklu af blómum, sem hún liafði /haft efni á að kaupa. Það var liátið- legt í stofunni og hún hafði dúkað borðið og sett kerti í stjakana. Og þegar Jean Paul kom fagnaði hún honum innilega. Þau föðmuðusl og sögðu livort öðru frá þessum tíma, sem þau höfðu ekki verið saman — livað þau höfðu haft fyrir stafni og hve þau hefðu þráð hvort annað. Og Yvonne sagði frá, hve Lasalle hefði reynst henni vel. Þau yrðu að heim- sækja liann bráðum og þakka honum fyrir sig, og Jean Paul yrði að vera alúðlegur við liann. Og Jean Paul lofaði Yvonne að vera alúðlegur við Lasalle. Hann vissi live mikið hann átti honum upp að unna og þráði að hitta hann sem fyrst, til þess að geta þakkað hon- um fyrir sig. En þegar þau fóru að tala um fram- tíðina kom alvörusvipur á þau bæði. Þessi sjúkdómur hafði orðið aflur- kippur fyrir þau bæði. Hann varð að reyna að treysta því, að hann fengi stöðu sína á húsameistarastof- unni aftur, og gæti unnið sjer svo mikið inn, að Yvonne gæti farið að hlífa sjer dálítið. En þegar þau voru í þessum bollalegginguin, var barið á dyrnar. Yvonne lauk upp og varð eigi lítið undrandi, er liún sá James, þjón Lasalles stantta við dyrnar. ■— Ilann afhenti henni brjef, sem hús- bóndi hans hafði beðið hann fyrir. Og svo lineigði þessi þögli maður sig og fór. V VONNE opnaði brjefið brosandi. Jean Paul las það með henni yfir öxlina á henni. En Yvonne hljóðaði upp, er hún liafði lesið nokkrar línur, og svo tók Jean Paul -við brjefinu og las það hátt, en hún horfði starandi augum á hann á meðan. „Kæra ungfrú Yvonne! Jeg veit, að þjer eruð glöð núna. Það er ekki til að trufla gleði yðar, að jeg skrifa yður, heldur til að auka hana. Þeg- ar þjer lesið þetta brjef, er jeg ekki í lifenda tölu. Eftir að jeg kyntist yður, varð mín gamla tilvera mjer einskis virði. Því að jafnvel þó að þjer hefðuð ekki elskað annan niann, þá mundi jeg aldrei hafa unnið ástir yðar, því að jeg hefi lifað fyrirlil- legu lífi. Jeg er ríkur maður og gat veitt mjer flest gæði á þessari jörð. En nú ætla jeg að segja yður, hvernig jeg hefi eignast þessi auðæfi, og bið yður að fyrirlita mig ekki. Jeg liefi lifað á meðaumkvun almennings. — Einu sinni var jeg leikari, en hafði ekki svo mikla hæfileika, að jeg gæti fengið nema ljeleg hlutverk á þriðja flokks leikhúsum. En einu sinni, þegar jeg var á rangli á götunni, datt mjer í hug, að það væri til hlutverk, sem jeg gæti leikið með ágætum. Hlutverk betlar- ans. Og upp úr þessu hlutverki ætl- aði jeg að reyna að hafa eins mikið og unt væri. Jeg sneri mjer til kirkju- nefndar Notre Daine kirkjunnar og bauðst til að borga hlut af tekjunum, ef mjer yrði leyft að betla við kirkju- dyrnar. Jeg fjekk leyfið. Og borgaði 'skattinn. Hann hefir síðustu árin numið 30.000 frönkum á mánuði. En tekjur mínar voru þrefalt meiri. Ungfrú, getið þjer skilið, að sam- viskan vakni hjá manni einn góðan veðurdag og maður fyrirlíti sig svo mikið, að maður geti ekki lifað leng- ur. Það eruð þjer, sem hafið vakið mig af svefni. Þjer hafið fórnað mjer tíu centímum af fátækt yðar, á hverj- um degi. Lofið mjer að deyja i þeirri trú, að þjer fyrirgefið mjer, er jeg horga yður jiessa centíma ríkulega aftur. Arfleiðsluskrá min er hjá mála- flutningsmanni, sem hefir nafn yðar og heimilisfang. Þjer eruð einkaerf- ingi minn. Gerið við peningana það, sem yður list. En fyrirlitið þá ekki — þeir geta orðið til blessunar í höndunum á yður. Fylgi yður gæfa og blessun. Vinur yðar Betlarinn frú Notre Dame. |7lTT af fyrstu húsunum, sem Jean Paul teiknaði eftir að hann var orðinn sjálfstæður húsameistari, var barnaheimili fyrir utan Paris. Yvonne trúði honum fyrir Jiví, að sig langaði til að kenna börnum að elskn starf og hreinskilni. . 9 MATTH. JOCHUMSSON. NiÖurl. af bls. 6. kirkju, og næstum daglega þegar gotl var, lengri veg til þvottalindar. Hún kendi okkur systkinunum að lesa eftir að við liöfðum jiekt stafina. Og hún kunni margar langar sögur, sem hún sagði vel á kvöldvökum. Svo og mikið af sátinum, ljóðum og rímum. — Slíkra kvenna, sem dylj- ast í skugganum, má að mörgu góðu minnast. Aths. 2. Þrátt fyrir liið mikla og ágæta safn M. M. af ljóðum Matth. Joch. (Rvk. 1936), mun seint verða þurausin sú örláta uppsprettulind ljóða og lausra vísna, er óhikandi streymdu svo ofl af vörum skálds- ins. Dagana fyrnefndu í Odda var Halldóra litla dóttir skáldsins með dálítil útbrot. Varð M. J. þá að orði: „Eina veit jeg auðarsnót, sem altaf er að klóra, lág og gild með hýrleg hót og heitir lítil Dóra.“ Frá Akureyri skrifaði M. J. í brjef til Steins Guðmundss. oddvita á M.-Hol'i, vísu þessa: «• Þekkirðu hann Lauga í Lambhaga? Langar hann ekki um föstuna í ofurlítinn útskika af Efri Strandar melbakka?“ (Spurningin er vitanlega um \*etr- arbeit á Oddaland). Eigi siður vil jeg nefna fagurt og hjartnæmt erfiljóð, eftir Þuríði syst- ur mína, er dó í sjúkrahúsi í Reykja- vík, og byrjar svona: „Vjer þráum heim, því hvergi betur en heima grær vort unaðsblóm“. V. G. Blaðaljósmyndarinn starfar! Það er haldið hættulegt verk, að gegna blaðamenskuþjónustu á víg- stöðvum, og að vísu er talsvert til í því. En hvað er það lijá því, að eiga að taka ljósmyndir og kvikmyndir af orustum. Blaðamennirnir geta „liald- ið sig í skugganum“, en ljósmyndar- arnir verða að fara fram í víglínuna, því að þeir verða að sjá það, sem gerist svo vel, að myndin af því verði sæmileg. Og áliættuna er best að skýra með því að tilgreina, að ið- gjald af líftryggingum stríðsljósmynd ara var i haust sem leið nálægt 300% meira en striðsblaðamanna. Launin eru vitanlega að sama skapi liá, enda kemur það liráfaldlega fyrir, að striðsljósmyndarar hætta störfum, undir eins og þeir hafa komist i ^mannraunir. Hinsvegar eru þess fremur fá dæmi, að blaðamenn, sem sendir eru út af örkinni af blöðum og frjettastofum, hætti fyr en þeir „eru búnir að vera“. Myndin lijer að ofan er af liernaðarljó^myndara, liggjandi á maganum við að taka ljós- myndir úr flugvjel.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.