Fálkinn


Fálkinn - 10.01.1941, Síða 12

Fálkinn - 10.01.1941, Síða 12
12 F Á L K I N N r Francis D. Grierson: Framhaldssaga. Tóma húsið. Leynilögregiusag'a. B!• þj^BB====3t^---^----■ —;—i -tfS í. KAPÍTULl. Veðrið var ágætt, vorið var komið og var töfrandi, eins og það getur aðeins verið í mai, þegar það liefir verið að hugsa sig um í margar vikur og hikar eins og ung stúlka, sem veit ekki livað hún vill. En nú var vorið komið í allri sinni dýrð og þvi fögnuðu allir; fuglarnir kvökuðu, sendisveinarnir sungu fullum hálsi, svo að það var ekki um að villast. Þetta var snemma dags. Jack Vane ók gætilega upp krókaveginn frá Blooms- bury-hverfinu upp að „höll“ Jacks Straws í jaðrinum á Hampstead-heiði, og stöðvaði vagninn við tjörnina, sem var fyrir hand- an liúsið. Jack Vane liafði ekki í huga, að heim- sækja hinn fræga veitingastað nafna síns. Hann var í útrjettingum og svo var klukk- an ekki nema tíu. Jack var ekkert sólginn í áfengi, en þó var eins og það óraði fyrir draumsýn í huga hans: lítið borð í Champs Elysées og á því stóð freistandi glas al' köldu öli í vorblænum. Og hann gat ekki að því gert að hann fór að hugleiða hvað það væri, sem liefði komið hinum vitru löggjöfum ættjarðar hans á þá skoðun, að hófsemdinni væri styrkur að þvi að neyða fólk til að flýta sjer að svolgra i sig áfengið á ákveðnum tímum sólar- hringsins, áður en klukkan slæi þetta eða hitt. En hann hrökk upp úr þessum hugleið- ingum, og það var að kenna smástrák, sem hafði lent í slæmri klípu. Strákurinn hafði — sennilega vísindunum til eflingar — veðjað við andlega sk'yldan kunningja um, að gufubátskrílið hans mundi verða fljót- ara en seglbátur hins yfir þvera tjörnina, og lagt undir sjálfskeiðing, sem báða fýsti að eiga. Því miður gerði gufubáturinn verk- fall og eina lífsmarkið, sem hann ljet á sjer sjá var það, að hanh spýtti gufu og hrækti á hendur eigandans. Strákurinn spurði Jack ráða og er hann rannsakaði fleytuna komst hann að raun um, að vatn hafði komist í bulluhvlkið, og að kasthjólið á vjelinni snerist ekki eins og það átti að gera. Jack náði í skrúf- jám og önnur verkfæri úr bifreiðinni og lagfærði þetta, og fleyturnar lögðu út í samkepnina, en útgerðarmennirnir tveir stóðu á bakkanum og hrópuðu húrra og bravó. Þeir báðu Jack að taka að sjer að verða dómari, en því miður gat hann ekki orðið við þeirri bón, og settist inn í vagninn aftur og stefndi til „the Spaniards.“ Þetta var ekki í fyrsta skifti, sem Jack Vane kom til Hampstead, en nú var hann í ákveðnum erindagerðum, og hann v^rð í rauninni iiissa, er hann komst að raun um, hve ókunnugur hann var á þessum slóðum. Hann ók þarna fram og aftur í hálftíma, fór fram hjá „the Spaniards" og sneri við, ók um ýmsar hliðargötur af handahófi. Lokins kom hann að þröngu sundi, sem eiginlega var ekki nema stíg- ur, en þó svo breitt, að vagn gat komist um það, og á horninu tók hann eftir orð- unum „Til leigu“ ásamt ör sem sneri inn i sundið. Stígur lá upp að fornlegu húsi, sem virtist ekki hafa verið notafi lengi. Það stóð eitt sjey í gai’ði, sem náði upp að stig að baka til, er lá upp í heiðina. Jack skrifaði hjá sjer nafnið á miðl- urunum er stóð á auglýsingunni niðri á horninu. Garðshliðið stóð í liálfa gátt og liann lauk því upp og' ók upp að húsinu og sneri bifreiðinni þar við, til þess að komast lijá að aka aftur á bak niður á veginn. Hann lokaði hliðinu eftir sjer og ók svo til Hamjistead í besta skapi og bað lögregluþjón, að vísa sjer leiðina á skrif- stofu miðlaranna. Cranberry, Joyce & Cranberry höfðu viðtalstíma klukkan —5y2 virka daga nema á laugardögum 9y2—1 og á nafnskilti þeirra stóð enn- fremur: fasteignasala, fasteignamat og fasteignaumájón. Jack kom inn í vistlega skrifstofu og sátu þar stúlkur tvær og glömruðu á ritvjel, -en lítill maður og meinleysislegur, með gleraugu, sat við púlt og skrifaði. Hann stóð upp, kom fram að diskin- um og brosti kaupsýslubrosi. Jack bauð góðan daginn og brosti á inóti. „Mig langaði til að tala við mr. Joyce,“ sagði liann svo. „Við hann sjálfan?“ spurði litli mað- urinn. „Já,“ svaraði Jack vingjarnlega. „Mjer gengi víst illa að tala við liann, ef jeg fengi ekki að tala við hann sjálfan.“ Önnur stúlkan fór að skríkja og það var eins og litla manninum sárnaði það. „Já,“ sagði hann, „jeg verð víst að játa það, en sjáið þjer, þegar jeg spurði um það----------jeg meina .... Það stendur nefnilega svoleiðis á, að mr. Jovce hefir verið dauður í fimtán ár.“ „Jæja,“ sagði Jack, „þá er ,víst ekki hlaupið að því, að hafa tal af honum. En jeg skal hreinskilnislega játa, að jeg spurði eftir honum af því að mjer fanst, að hann mundi vera í skugganum af þess- um tveimur Cranberry, skilið þjer?“ Litli maðurinn virtist alls ekki skilja það, en ljet duga að hósta otfurMtið, ræskja sig og brosa. „Það er viðvíkjandi húsi hjerna á lieið- !g| inni,“ sagði Jack. „Jeg sá á auglýsingunni, að skrifstofan yðar hefir umráð yfir því.“ Það birti yfir ásjónunni á litla mann- inum og hann svaraði blítt: „Hús, já, jeg skil það. Jeg lield, að þjer ættuð að tala við mr. Harold — mr. Harold Cranberry.“ „Það skal vera mjer sönn ánægja, að tala við mr. Harold Cranberr>,,“ sagði Jack og nú skríkti hin vjelritunarstúlkan al' einhverjum ástæðum. Litli maðurinn hnyklaði brúnirnar, og stúlkurnar hjeldu nú áfram af kappi. „Viljið þjer gera svo vel, að fá yður sæti, sagði litli maðurinn, „þá skal jeg láta mr. Harold Cranberry vita af yður. Mætti jeg leyfa mjer að spyrja yður til nafns? Jack rjetti honum nafnspjaldið sitt og liann hvarf inn í innri skrifstofuna og birtist aftur eftir dálitla stund. „Viljið þjer gera yður það ómak, að koma með mjer þessa leiðina, mr, Vane,“ sagði liann og fylgdi Jack inn í skrifstofu með myndar- legum húsgögnuni, þar sem feitur maður með rautt andlit stóð upp og kom á móti lionum. Maðurinn var einkar vingjarnlegur og sneri sjer formálalaust að erindinu. „Skrif- arinn minn hefir sagt mjer, að þjer sjeuð að hugsa um húseign, sem jeg hefi á hendi. Setjið þjer og fáið yður sigarettu,“ bætti liann við og skolraði til lians vindl- ingaöskjunni yfir borðið. „Hvaða hús er það, sem þjer hafið augastað á?“ Jack lýsti húsinu, og mr. Harold varð enn alúðlegri. „Notalegt, lítið hús,“ sag'ði hann hvað eftir annað, „notalegt lítið hús.“ Jack skaut fram í: „Almenningur virð- ist þó ekki hafa haft augun opin fyrir því, að það sje notalegt, ef marka má af ástandinu, sem það er í.“ Mr. Harold bandaði hendinni. „Jeg skal viðurkenna, mr. Vane, að umrætt hús liggur dálítið út úr. Jeg vil ekki segja, að það sje afskekt, en það er óneitanlega dálitið út úr. Fólk hefir á síðari árum fengið óskiljanlega tilhneig- ingu til, að hópa sig. Það vill eiga heima i þyrpingum, sjáið þjer — það er aðeins fólk, sem hefir virkilegan smekk sem vill hús eins og þetta. Svo maður vitni í orð skáldsins: „svo fjarri heimsins glauini og glamri“ og þó steinsnar, í orðsins bók- staflega skilningi, frá góðum vegi, þægi- Jega nærri Hampstead og hinum ágætu verslunum þar, og brautarlestum og al- menningsvögnum til allra borgarhluta í London. Jeg fullyrði, mr. Vane, að jeg get með góðri samvisku mælt með „Carriseot“, það er vel bygt hús með ljómandi garði, bílskúr og vermihúsum, ágæt sorpræsing og öll nýtískuþægindi. Það er happagripur, lierra minn, hvort heldur þjer viljið kaupa það eða leigja. í síðara tilfellinu er ekki um að ræða minna en þriggja ára leigu- mála með forrjettindi til fimm, sjö eða tíu ára.“ Hann þagði og hallaði sjer aftur á bak í stólnum, en andlitið ljómaði, og Jack greip tækifærið til að leggja orð í helg. „Jeg hjelt ekki, að það væri leyfilegt, að byggja hús á heiðinni,“ sagði hann. „Alveg rjett, mr. Vane,“ svaraði miðl- arinn. „Þjer hafið alveg rjett fyrir yður

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.