Fálkinn


Fálkinn - 10.01.1941, Blaðsíða 14

Fálkinn - 10.01.1941, Blaðsíða 14
14 F Á L K I N N BÖLVUN EITURSINS Ólafur Lárusson: Landnám i Skagafirði. Skagfirsk fræði II. Sögufélag Skagfirðinga. Reykjavík 1940. Sögufjelag Skagfirðinga hefir ný- lega sent frá sjer II. bindið af Skag- firskum fræðum. Nefnist það Land- núm í Skagafirði, og er höfundur þess Ólafur Lárusson prófessor. Fyrsta bindið var, eins og menn muna, rit dr. Magnúsar Jónssonar prófessors um Ásbirninga. Höfundur skiftir riti sínu í 6 kafla, og skal lijer i stuttu máli gera grein fyrir aðalefni þeirra. Fyrsti kafli nefnist: Mennirnir konva, og eru það almenn inngangsorð um byggingu landsins og hverjir hafi fyrst komið i Skagafjörð og gefið firðinum nafn. Annar kafli fjallar um Jieimildir þær, er landnámssaga hjeraðsins (og jafn- fram einnig annara lijeraða) bygg- ist á. Heimildir þessar eru fornleifar, kveðskapur, örnefni og sagnarit vor hin fornu, og skipar Landnámsbók þar auðvitað öndvegi. Þriðji kafli nefnist: Hvenœr bygðist Skctgafjörð- ur? Andmælir höfundur þar kenningu Guðbrands Vigfússonar, að Skaga- fjörður muni hafa byggst siða^t hjer- aða á Norðurlandi. Það, sem fyrst og fremst mun hafa vakið þessa hug- mynd hjá Guðbrundi, er höfðingjatal Grettis sögu, 70. kap., þar sem taldir eru þeir höfðingjar, er verið hafi í Skagafirði, er Grettir kom í Drangey (1028). En síðan menn liafa öðlast rjettan skilning á aðferðum Grettis sögu höfundar og mannfræði sög- unnar, verður sú heimild liarla ljett á metunum, enda kemst liöf. að þeirri niðurstöðu, að ekki sje nein gild rök til þess að ætla, að Skagafjörður hafi byggst síðar en önnur hjeruð lands- ins. Fjórði kafli heitir Landnúms- mennirnir. Ræðir þar um nöfn og þjóðerni landnámsmanna, ætterni þeirra og hvaðan komið hafi til ís- lands, þjóðfjelagsstjett þeirra í heima- landinu, trúarbrögð þeirra og trúar- siðu o. fl. Fimti kaflinn er um Land- númin. Er þar rakin saga og lýsing hvers einstaks landnáms í hjeraðinu og greint frá takmörkum þess, eftir þvi sem föng eru á. Takmörk land- námanna í Skagafirði eru víða ó- glögg, og til eru bygðalög þar í hjer- aði, sem alveg er hlaupið yfir í Land- námu. Rekur höfundur það efni mjög ýtarlega, svo að honum tekst að fá samfelt yfirlit um landnámsröðina. Sjötti kafli fjallar um fgrstu kynslóð- irnar, og eru þær raktar ættir frá ýmsum skagfirsktnn landnámsmönn- um, bent á tengdir þeirra milli inn- byrðis og utan héraðs, getið þess, er Skagfirðingar koma við sögur á 10. öld. Að lokum er yfirlit um það, livað um bygðina má ráða af bæjarnöfnum í hjeraðinu. Rilinu fylmr uppdráttur, er sýnir landnám í Skagafirði og nokkura fleiri sögustaði þar. Rit þetta er, eins og vænta má af hinum fjöllærða höfundi þess, samið af vandvirkni og lærdómi. Ilinar mjög svo brotakendu heimildir um landnámsöldina og tímann þar á eftir eru notaðar af glöggskyggni og þekk- ingu, svo að höfundi verður furðu mikið itr þeim, án þess þó að fara út i hæpnar getgátur eða hugaróra. Sjónarmið rannsóknarinnar er heil- brigt og viturlegt: Þekkingu vorri eru takmörk sett, og það er sjálf- sagt að játa það fúslega og viður- kenna, að margt mun æ verða myrkri hulið um sögu þessa tímabils vegna þess, hve einhæfar lieimildirnar eru og þó fátæklegar. Skagfirðingar hafa farið vel á stað með sögu sina, og vildi jeg leyfa mjer að óska þeim til hamingju með fram- haldið. Guðni Jónsson. (Af vangú lxafði niðurlag þessarar greinar fallið niður í síðasta blaði, og birtist greinin því hjer í heild). Ilollenski blaðamaðurinn Hendrik de Leeuw er fyrir nokkru kominn heim úr langri ferð um veröJdina. Ilann hefir verið í London, Hamborg, Berlín, París,. Marseille, Sofia, Istam- bul, Kairo, Port Said, Singapoore, Indlandi, Kína, Mandsjukuo, Japan New York og víðar. Og aðaltilgang- urinn með ferð lians var sá að rann- soka, hve notkun eiturlyfja væri út- breidd i heiminum. Það var margt sem hann heyrði og sá í þessu ferðalagi. Hann kyntist allskonar eitri, morfíni, opíum, kóka- íni heroini, marijuana, liasjis og mörgu fleiru. Og han sá aumingjana, sem liöfðu buggst undir eiturnautn- inni: eta eitrið, drekka það, taka það í nefið, reykja það eða sprauta því inn í handlegginn á sjer. Hann* vildi í fyrstu ekki trúa að það væri satt, sem hann hafði heyrt sagt um indverskar mæður, að þær gæfi börnum sínum deyfandi lyf.þeg- ar þau væri óþæg, en síðar sá hann sjálfur mörg dæmi þessa. Það var afar algengt. í Kína sá hann, að flest- ir sem liafa ástæður til þess, reykja ópíum. Það var jafn algengt að kin- verskur kaupmaður fengi sjer ópium- umpípu eftir miðdegisverðinn og það er á ve^turlöndum að fá sjer vindil eftir mat. í Singapore var hann viðstaddur á „reykingarfundi"; hann sá egyptsk- ar blómarósir deyfa sig á eitri og unga pilta og stúlkur dansa eins og vitfirringa í eiturvimu austur á Bali. Og liann átti tal við margt af fólkinu, sem var háð eiturnautninni og fjekk hjá því upplýsingar um, hvernig það hefði komist upp á eiturnotkunina og hvernig hún verkaði á líkama og sál. Hann sá fólk, sem hafði gerspilt heilsunni á eiturnotkun, svo að það átti ekki neina batavon. Og liann seg- ir, að eiturnotkun ,fari mjög vaxandi í Bandaríkjunum. Hendrik de Leeuw segir einnig frá því, hvernig farið sje að smygla eitri til ýmsra landa. Smyglararnir beita allskonar brögðum. Þeir fela eitrið í kolapokum, hafa tvöfalda botna í ferðakistum, fela það í kælirum á bifreiðum, í tunnum og pokum innau um allskonar vUrning. Það er líka al- gengt að blanda eitrinu saman við ýmislegt annað: sykur og sóda eða önnur efni. Þegar það er komið á ákvörðunarstaðinn er það skilið frá efninu, sem það var saman við. Ofur meinleysislegur Jaþani notaði skrítna aðferð. Hann hafði með sjer sundbelti á skipinu sem liann fór með, og það var fult af ópíum. Annar hafði með sjer kanarífugl í búri. Það kom á daginn að botninn í búrinu yar tvöfaldur og ópium á milli laga. Ýmsir smygla eitri í hattinum sínum eða eldspítustokknum, en þau brögð eru svo algeng, að þau þykja ekki örugg lengur. Sumir blása úr eggjum og fylla þau með eitri, líka eru epli, appelsínur, hnetur og sápustykki not- uð til að fela eitur í. Gömul kínversk kona kom um borð í skip með körfu, sem í var köttur og fimm nýfæddir ketlingar. Það komst upp af tilviljun, að ketlingarnir voru dauðir og fyltir með ópíum. Ann- ar Kinverji kom um borð með gler- ker með guílfiskum í. En nú vildi svo til, að það var sjerstaklega mikið um gullfiska á staðnum, sem Kínverjinn var á leið til, og þessvegna fór toll- vörðurinn að linýsast í þetta. Það reyndist svo að kerið var með tvö- földum botni og lieróín milli laga. Það er ekki alveg eins mikið af kvenfólki, sem hefir orðið eitrinu að bráð, og karlmönnum. Hendrik de Leeuw telur að af hverjum 100 eitur- notendum sjeu um 40 konur og 00 karlar. Á einni af ferðum mínum sá jeg unga stúlku, sem hafði fallið í hend- ur ópiumsreykjara, segir liann. — Það var um borð á skipi, sem var á leið til Indó-Kina. Einn al' farþegun- um var franskur liðsforingi, nýgiftur laglegri, ungri stúlku, rúmlega tvít- ugri. Þau voru á leið til Indó-Kína, því að liðsíoringinn átti að' starfa þar. Hann var um 55 ára eða rúmum 30 árum eldri en konan. Hann hafði oft verið í Indo-Kina en brugðið sjer til Frakklands í leyfinu og gift sig. Þetta sagði unga frúin mjer sjálf. ----Eitt kvöldið sat jeg og var að skrifa i klefanum mínum og glugginn stóð opinn út að þilfarinu. Sá jeg þá að frúin stóð fyrir utan gluggann og horfði á mig. Það var auðsjeð að hún vildi tala við míg. Hún fór að segja mjer frá hjónabandi sínu og að hún væri í vandræðum. Hún hafði upp- gölvað að maðurinn hennar var ópi- umreykjari. Hann hafði beðið hana um að reykja með sjer — skipað lienni það. — Hún var svo hrædd. Spurði ntig ráða og livort hún ætti ekki að reyna að komast af skipinu í Singapore og strjúka heim. Jeg var- aði liana við þessu þvi að jeg vissi, að þá mundi hún verða tekin og send til mannsins aftur og það mundi gera ilt verra. Jeg veit ekki hvernig fór fyrir henni að lokum, en sennilegast er að hún hafi orðið að láta að ósk- um mannsins síns og orðið forfallin líka. Það tekur tima að venjast eitrinu. Sumstaðar eru börnin vanin á það ung. Víða i Indlandi er börnum gefið eitur til að róa þau, og strákunum í Nanking þykir mannalegt að reykja lieróinpillur, alveg eins og strákum vesturlanda að láta sjá sig með vind- linga. Þessar heróínpillur eru vafðar í tóbak og reyktar eins og aðrir vindlingar. Stubbarnir af þeim liggja þúsundum saman í rennusteinunum í Nanking. Burmesar venjákt á eitur frá blautu barnsbeini. Þar er jafn algengt að reykja eitur eins og að reykja tóbak. Það hefir að vísu verið reynt að draga úr ópíumreykingum þar síð- uslu árin með því að skamta eitriá. Það er ekki hugsandi, að svifta ópí- umreykjaca^eitrinu í einni svipan. Þá mundi hann sálast. Líkaminn er orð- inn svo háður eitrinu að hann má ekki niissa það alt í einu. Sá, sem hefir vanið sig á ópíum fær því skírteini, sem gefur honum rjett til að kaupa skamt á hverjuin degi, en sá skaintur fer smáminkandi. ópíumnautnin er úlbreiddust meðal kínversku essreka'nna, skógarhöggs- mannanna og götusóparanna. Bæði menn konur og börn þurfa daglegan skamt af eitrinu, en þó lítur sumt af þessu fólki vel út. Margar indverskar konur nota eitrið til dægrastyttingar og til að gleyma ambáttarstöðu sinni i mannfjelaginu um stund. Þvi að indverskar konur eiga verri daga en nokkrar aðrar konur i veröldinni. En jafnvel þó að þær dreymi sig um stund inn i, betri heima þá eru afleiðingarnar að þvi skapi verri. Þjáning dagsins hverfur fyrir. ópí- umsvímunni, en morgundagurinn er þeim mun verri. er miðstöð verðbrjefavið- skiftanna. Ekkert er njrttnndir sólinnl Fólk dáist að hinum miklu hellis- göngum undir Alpafjöllum, sein gerð hafa verið handa járnbrautunum, og að þeim, sem lagðar hafa verið und- ir ár stórborganna, til þess að ljetta umferðina af brúnum. En liitt er fá- um kunnugt, að nálægt 2000 árum f. Kr. ljet Semiramis drotning í Babýl- on leggja hellisgöng undir Efrat-fljót- ið. Sumir telja að vísu, að Semiramis liafi aldrei verið til — en hitt varðar meiru, að hellisgöngin eru til. Þau eru einn kílómetri á lengd og liggja frá höllinni að Jupitermusterinu á liinum fljótsbakkanum. Eru þau 4 m. breið og 5 metra há, gerð úr múr- steini, og feldum saman við jarðbiki. — Svo liðu um 4000 ár þangað til næstu hellisgöng undir vatni voru gerð: göngin undir Thames árið 1842. Sumir vilja lialda því fram, að múr- ar Jeríkóhorgar hafi hrunið vegna þess, að umsátursmennirnir grófu jarðgöng undir þá, á sama hátt og jarðgöng voru grafin undir virki ó- vinanna i kyrstöðustríðinu á vestur- vígstöðvunum árin 1914—18. Rómverjar bygðu ekki aðeins vatns- leiðslubrýr (akvadukta) heldur og jarðgöng fyrir vatnaveitur. Hadrian keisari gerði vatnsveitu ofan úr fjöll- um á 2. öld e. Kr. og lá hún sumpart undir jörðu. Meðan Tyrkir rjeðu Grikklandi varð vatnsveita þessi ó- nýt, en 1840 var henni komið i lag á ný og er liún notuð enn i dag. — Katakomburnar í Róm má nefna i þessu sambandi. Þelta eru jarðgöng, sem byrjuðu með ofurlitlum grafhelli og fylgsni, en jukust smámsaman, svo að þar livíla nú leifar 6 miljón framliðinna. Svo komu miðaldirnar og þá voru engin hellisgöng gerð nema milli virkja og í jarðhús þau, sem notuð voru til fangelsunar og pyntinga. Eru þau víða til enn. Hellisgöngin voru fyrrum gerð á þann hátt, að hglur voru klappaðar i bergið og steinninn svo brotinn l'rá með vogarstangaafli. Egyptar notuðu aðra aðferð: að sjóðhita klöppina og hella svo á liana köldu vatni. Klofn- aði þá oft kletturinn við þenslumun- inn, sem stafaði af hitabreytingunni. Púður var notað í fyrsta skifti til klappasprenginga þegar Languedoc- göngin voru gerð, 1079—81. Hann er 7 m. breiður og 10 metra hár og not- aður sem skipaskurður. Ein kola- náina í Englandi, Worsley IIill, er þannig gerð, að liægt er að fleyta flatbytnum inn I hana eftir skurðum, og eru þær notaðar í stað vagna, til þess að flytja kolin til Manchester. í þessari námu eru nú um 00 km. skurðir, a.llir í hellisgöngum. Þar sem hellisgöng liggja um sam- felda og vatnshelda klöpp þarf ekki að „fóðra“ hann að innan. En við- as't er óhjákvæmilegt að gera hólk innan í jarðgöngin. Er það algengast nú á dqgum að hafa þennan liólk úr stáli eða járnbentri steypu. Sá lijet Greathead, sem fyrstur gerði þessa endurbót, þegar verið var að gera göngin undir Thames, en þau voru 35 ár í smíðum og kostuðu um tíu miljón krónur. Greathead varð lika fyrstur til þess að noia þrýstiloft til að knýja steinborana. Frumkvöðullinn að fyrstu hellis- göngunum undir Alpafjöll var italski stjórnarforselinn Cavour. Hann bar fram tillögur sínar um að gera Mont Cenis-göngin árið 1857. Verkfræðing- ar sögðu, að bergið væri svo hart, að fimtíu ár þyrfti til að fullgera verkið. En þá bjó franski yfirverk- fræðingurinn til vjelbor, og verkinu var lokið á tífalt slyttri tíma og jarð- göngin — tólf km. á lengd — voru vígð árið 1871. Rann eimreið með 3 menn um göngin. Tveir þeirra köfnuðu á leiðinni. Þá fyrst liug1, kvæmdist mönnum, að láta eimreið- ina notn reyklaus kol.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.