Fálkinn - 24.10.1941, Side 2
2
f ÁLKINN
- GAMLA BÍÓ -
ABE LINCOLN.
Þær eru víst orðnar margar mynd-
irnar, sem gerðar hafa verið af æfi
hins vinsælasta Bandaríkjaforseta,
sem uppi hefir verið — Abrahams
Lincoln. En þar hefir jafnan verið
lögð aðalálierslan á að sýna hetj-
una og rjettlætispostulann, sem sá
aunuir á öllum sem bágt áttu.
Gamla Bíó liefir fengið nýja mynd
og sjerstæða’ af lífi Lincolns, sem
varpar talsvert öðru ljósi en venja
er til á hinn mikla postula. Þarna
er að vísu ekki dregið úr rjettlætis-
kend hans, en hinsvegar er lundar-
fari hans að öðru leyti lýst frá fleiri
hliðum en venjulegt er. Til dæmis
er ekki dregin fjöður yfir, að hann
hafi átt bágt með að taka ákvarðanir,
eins og oft .er um samviskusama
menn, og að hann hafi stundum
brostið hugrekki mjög tilfinnanlega.
Það er hinn frægi rithöfundur
Bobert E. Slierwoöd, sem var höf-
undur að þessari skoðun, eða ljet
liana að minsta kosti fyrstur í Ijós
í leikriti sem hann nefndi „Abe
Lincoln in Illinois“. Þetta leikrit
vakti feikna athygli og fjekk Pulitzer-
verðlaunin svonefndu, en það eru
lrægustu bókmentaverðlaun í Banda-
ríkjunum. Var leikur þessi sýndur
átta mánuði samfleytt á Broadway-
ieikhúsinu í New York og fór sigur-
för þaðan víðsvegar um Bandaríkin.
Höfundur leiksins samdi sjálfur
kvikmyndaleik upp úr leikritinu og
er því fylgt svo ítarlega sem kostur
er. Og sami maðurinn sem ljek
Lincoln í átta mánuði á Broadway,
leikur sama hlutverkið i kvikmynd-
inni. Er ]>að Raymond Massey. Auk
leikhæfileika þykir hann hafa ýmsa
nauðsynlega kosti til að bera í þetta
hhitverk, t. d. munar ekki nema
einum þumlungi á hæð hans og
Lincolns (sem var 6 fet og 8 þuml-
ungar enskir) og sömuleiðis er and-
litsfall þeirra mjög svipað.
Sagan hefst með því er Lincoln,
tvítugur að aldri, tekst á hendur að
l'Iytja svínalióp á pramma eftir
Sangamon-ánni og kynnist Ann Ruth-
ledge (Mary Howard) og verður
ástfanginn af henni. Ann er heitin
öðrum manni, en er hún hefir beðið
lians tvö ár og allir telja liann týnd-
an, lætur liún tilleiðast að játast
Lincoln. En hún veikist og deyr áður
en þau giftast — sama daginn og
Lincoln er kosinn í fyrsta sinn á
fylkisþingið í Illinois. Þessi árin er
Lincoln að vinna sig upp, hann
tekur við ýmsum trúnaðarstörfum
og les lögfræði í tómstundum sínum
og verður málaflutningsmaður. Og
nú segir næst frá kynnum hans og
Mary Todd (Ruth Gordon). Þau
trúlofast og Mary þykist vita, að.
Lincoln " eigi mikla framtíð fyrir
höndum og sjálf er hún dugandi
driffjöður til að knýa hann áfram.
En það er til marks um istöðuleysi
Lincolns, að hann fiýr á burt sama
daginn og hann á að giftast — liug-
ur hans er enn hjá Ann og nú reik-
ar hann um mánuðum saman, uns
hann loks hverfur heim aftur og
biður Mary Todd afsökunar á hringl-
inu og fær hana. Og þau giftast og
10 ár Hða og þau eignast fjóra
drengi ......
Sagan af manninum Lincoln hefir
víst aldrei verið betur sögð en í
þessari mynd og hún er hrifandi.
Auk leikenda þeirra, sem nefndir
liafa verið má nefna Gene Lockhart,
Dorothy Tree og Harvey Stephens.
RKO-Radio Pictures hefir tekið
myndina.
Úr nýjasta leik Leikfjelagsins: Lilla
mynciin sýnir Charleston viUwörð
(Lárus Pálsson) og léeknisdótturina
Bjarni Jónsson vigslubiskup og
dómkirkjuprestur varð 60 ára
þ. 21. þ. m. í tilefni af afmælinu
kjöri guðfræðideild Háskólans
hann heiðursdoktor í guðfræði.
Bókafregn.
SÖGUR PERLUVEIÐARANS.
Sig. Helgason endursagði.
Æskan gaf út.
Æfintýri raunverunnar eru stund-
um eins skemtileg og hin, sem látin
eru gerast í liuga mannsins eða
draumórum, og þau eru altaf fróð-
legri. Sögur perhiveiðarans eru eitt
af æfintýrum raunverunnar, hvort
sem þau eru nú skáldskapur eða
ekki, því að þau hafa á sjer ósvik-
inn blæ raunverunnar. Höfundur
þeirra er Henry \V. Lanier en sögu-
maðurinn er Svíinn ’Victor Berge.
Hvort hann hefir nokkurntíma verið
til eða ekki, skiftir minstu máli —
saga hans er jafngóð fyrir því.
Hann er tíu ára drengur í Gast-
rikelandi i Svíþjóð þegar hann byrj-
ar að segja frá. Hugur hans stefnir
lil hafs, og þegar hann hefir mist
föður sinn fer liann í siglingar til
framandi landa. Hann strýkur af
skipi frá þrælslegum skipstjóra suð-
ur í Afríku, kemst þaðan til Ástralíu
og stundar þar skógarhögg og dýra-
veiðar og næst fer hann til Java og
annara suðurhafseyja og gerist perlu-
veiðari.
Þessar sögur er svo prýðilega
sagðar, að þær hafa heillað æskuna,
sem komist hefir í kynni við þær.
Það ei u þessar sömu sögur, sem Sig.
Helgason hefir endursagt og barna-
blaðið „Æskan“ hefir gefið út i
snoturri bók núna nýlega. Leikur
enginn vafi á því, að ungir drengir
lesa þessa bók sjer til mikillar á-
nægju og fylgjast ýmist með hrifn-
(Lótó Jónsdótlur). Stærri mgndin: og piparmeyna (Soffíu Guðtaiigs-
Briggs verkamann (Br. Jóhannesson) dóttur).
Friðrik Hansson, Bárugötu 5,
varð 75 ára 23. þ. m.
Frú Ólafía Kristrún Magnús-
dóttir frá Brún á Stokksegri,
nú til heimilis í Mávahlíð við
Kaplaskjólsveg, verður 60 ára
á morgun (25. okt.).
Fyrst -
og síðast -
—.__________________________i
ingu eða hluttekningu með liinum
margvíslegu æfintýrum, sem Victor
Berge upplifir í framandi og fjar-
lægum löndum, ^ar sem svo margt
er frábrugðið því, sem hjer er.
MARGRJET EIRÍKSDÓTTIR
píanóleikari efnir lil hljómleika í
Gamla Bíó næstkomandi sunnudag.
Þeir sein hafa haft tækifæri til að
hlusta á þessa ágætu, ungu listakonu
vita, að þar er góð skemtun í boði.
Alt frá því að hún Ijet til sín heyra
sem nemandi á Tónlistaskólanum
hefir hún verið uþpáhald þess fólks,
sem ann góðum píanóleik, og hjá
henni hefir farið saman ágæt hljóm-
listargáfa og óbilandi ástundun, svo
að hæfni hennar fer sívaxandi. Að
loknu námi i Tónlistarskölánum
stundaði hún nám í tvö ár á Royal
Academy of Music í London og
vakti það mikla athygli, er hún,
slúlkan utan af íslandi vann jiar
heiðursverðlaun „Musical Feastivi-
ties“ úr stórum hópi keppenda.
Kennari hennar í London var próf.
Y. Bowen og leikur liún meðal ann-
ars Romance i g-moll eftir hann.
En fyrsti þáttur skemtiskrár liennar
er Preludia og fuga í g-moll eftir
Bach-Szanto, næst kemur Kveðju-
sónata Beethovens (Op. 81a — Kveðj-
an — Fjarveran — Heimkoman), þá
Théme et Variations, op. 72 eftir
Glazounow og loks þrjú stykki:
Conte op. 35 eftir Medtner, Romance
eftir Bowen og Polonaise as-dur,
op. 53 eftir Cliopin.
pyrir tæpum hálfum mánuði hlust-
uðu Reykvíkingar á Rögnvald Sigur-
jónsson, sem vinnur sjer sem óðastvin-
sældir um þessar mundir. Hinn ungi
Tónlistaskóli í Reykjavík hefir á-
stæðu lil að vera upp með sjer, jiví
að þau Margrjet og Rögnvaldur eru
bæði með fyrstu nemendunúm, scm
liann útskrifaði.
fi