Fálkinn - 24.10.1941, Side 6
ö
F Á L Iv I N N
LITLA S AQ AN. —
Herbert C. Minter:
SVARTI
SAUÐURINN.
T ÞRJÁR VIKUR haföi Stuart Wood
haft nánar gætur á öllu, sem
SibyJ Brandon tók sjer fyrir liend-
ur, dag eftir dag og klukkutíma eftir
klukkutíma. Ilann gætti þess vel að
missa ekki af neinu og varðist að
láta hann taka eftir sjer. Hvað eftir
annað liafði liann tekið upp vasa-
bók og sJu-ifað í liana stuttar setn-
ingar, nafn, stund og stað.
Þetta yrði legleg skýrsla — og ó-
makslaunin eftir því! Á morgun stóð
til að leggja skýrsluna fyrir Mark
Brandon, klukkutima fyrir fundinn
á skrifstofunni hjá málaflutnings-
manni Brandons, en þangað átti
Sibyl Brandon að koma með sinn
málaflutningsmann til þess að semja
um skilmálana fyrir hjónaskilnað-
inum. Þeir mundu verða öðruvísi
en hún hafði hugsað sjer. Þvi að
vitanlega hafði hún hugsað sjer, að
jafn ríkur maður og Brandon var,
yrði að borga drjúga fúlgu til að fá
frelsið aftur.
Ef Sibyl Brandon hefði vitað, livað
Stuart AVood vissi, mundi liún ekki
-liafa verið svona óvarkár. En hún
hafði auðsjáanlega engan grun um,
að það var Grace Garvey Jeikkona,
sem stóð á bak við óskir Brandons
um að losna úr hjónabandinu. Það
voru ekki nema blóðsugur, eins og
miss Garvey, sem gátu komið manni
eins og Brandon til að slá striki
yfir allar siðferðilegar grundvallar-
reglur, sem þau höfðu liaft í heiðri
áður, og verða óvandir að meðulum
og samviskulausir. Það nnin líka
Jiafa verið miss Garvey, sem átti
]>essa hugmynd að fá einkanjósnara
til að liafa gát á, hvað frú Brandon
hefðist að.
Stuart Wood var ekkert liissa á,
þó að yfirgefin eiginkona leitaði
samvista við Jaglegan ungan mann,
—- liann hafði oft reldst á slikt um
æfina. En hann liafði sjaldan vitað
konu fara eins óvarlega. Oftast nær
reyndi þesskonar fólk að fara í
launkofa. En Sibyl Brandon gerði
enga tilraun til að dylja sífelda sam-
fundi sína með Jim Tract. Eins og
nú i kvöld — hann fór með henni
inn í ibúðina hennar svo allir sáu.
Stuart Wood umlaði af ánægju, er
hann skrifaði síðustu minnisgreinina
í vasabókina sína, áður en hann fór
heim til að skrifa skýrsluna.
Morguninn eftir sat hann ásamt
Brandon á skrifstofu málaflutnings-
mannsins og beið. Kveðjurnar voru
formlegar og stuttar, þegar frú
Brandon kom inn ásamt málaflutn-
ingsmanni sínum.
— Jeg hjelt, að það væru ekki
aðrir en málsaðilarnir og Jögfræði-
legir ráðunautar þeirrar, sem ættu
að vera hjer viðstaddir, sagði mála-
fJutningsmaður frú Brandon og leit
ltornauga til Stuart Wood.
— Fáið þjer yður sæti, sagði mála-
fiutningsmaður Brandons ærið borg-
inmannlega. — Þetta er herra Wood,
einkanjósnari. Hann er viðstaddur
Theodor Árnason
Merkir tónsnillingar lífs og liðnir:
lijerna í tilefni af skýrslu, sem liann
liefir gefið lir. Brandon, og sem
liann ætlar að stáðfesta að ykkur
viðstöddum. Þjer liafið verið mikið
með ungum manni, sem lieitir Jim
Tract, upp á síðkastið, frú Brandon?
— Já, svaraði Jiún liiklaust. —
Mikið!
— Jæja, þjér kannist við það. Þjer
Iiafið hitt hann svo að segja daglega
á ýmsum stöðum ■— jeg sje lijer
nöfn á ýmsum litlum, afsíðis veit-
ingaliúsum, sein —- hm — leynilega
trúlofað fólk er vant að hittast á.
— Alveg rjett.
— Þessi ungi maður liefir tvívegis
verið hjá yður alla nóttina.
— Þrívegis, leiðrjetti luin. — Hann
var hjá nijer I nótt líka. Hann héfir
verið hjá mjer, þegar mjer hefir liðið
illa og jeg hefi verið hrædd við að
vera ein.
— Frú Brandón -— ])etta veit jeg
ekkert um, sagði málaflutningsmað-
ur hennar órór og þurkaði sjer um
ennið. —■ Jeg —■ jeg sting upp á,
að við frestum þessum fundi, þangað
til jeg liefi fengið ítarlegri upplýs-
ingar í málinu.
— Jeg kýs, að við höldum áfram,
sagði frú Brandon hátt og skýrt. —
Ungi maðurinn, sem skýrslan snýst
um, situr hjerna úti í biðstofunni.
Hann átti að koma hingað og bíða,
ef jeg þyrfti á honum að halda.
Viljið þjer biðja hann um að koma
inn.
— Góðan daginn, herrar mínir,
sagði ungi maðurinn og glotti. —
Þið vitið allir, hvað jeg heiti, svo
að jeg þarf ekki að segja ylckur það.
Jeg skal bara bæta þeirri skýringu
við, að jeg er svarti sauðurinn í
fjölskyldunni. Komdu sæl aftur, Si-
byl! Jeg þykist vita, að þorparinn
hafi byrjað atlöguna.
— Það er annað, sem þjer þurfið
að gefa skýringu á en ])að, að þjer
sjeuð svarti sauðtirinn í fjölskyldu
yðar, sagði Brandon reiðilega. •—
Það keniur mjer ekkert við, en það
er ýmislegt annað, sem mjer kemur
við.
— Jeg hjelt að það væri fullnægj-
andi skýring, sagði ungi maðurinn
og brosti. — En jeg skal fúslega
útskýra þetta nánar. Jeg er svarti
sauðurinn i fjölskyldu konunnar yð-
ar. Afar ljettúðugur ungur maður,
sem gerði svo margt fyrir sjer, að
það varð að koma honum á burt
og fá hann til að skifta um nafn.
Og sjerstaklega mátti jafn siðavand-
ur maður og Mark Brandon ekki
fá að vita, að hann væri til. Eigi að
síður er hann albróðir frú Sibyl
Brandon.
— E-eruð — þjer — —• bróðir
liennar?
— Já, bróðir, sem hún gerði orð,
þegar maðurinn hennar brást henni
verst. Og svarti sauðurinn kom undir
eins, því að Sibyl systir lians var
cina manneskjan, sem mundi eftir
honum eftir að liann var farinn.
Svarti sauðurinn hefir lært að hafa
augun hjá sjer og hann ■ tók brátt
eftir njósnunum, sem herra Brandon
liafði úti. Hann sagði systur sinni,
að lnin skyldi ekki láta á neinu
bera. Þau liittust á stöðum, þar sem
auðvelt var að njósna um þau. Það
var bara leitt, að njósnarinn skyldi
ekki lieyra, hvað þau töluðu saman
um — leitt fyrir hann sjálfan og
herra Brandon. Jeg gaf henni nefni-
lega skýrslur um mínar eigin njósnir.
Jeg liefi líka skrifað skýrslur. Þar
koma nöfnin Marlc Brandon og Grace
Garvey afar oft fyrir. Þegar sú
skýrsla hefir verið lesin, herrar
mínir, geri jeg ráð fyrir, að rjetti
timinn verði kominn IH, að nefna
fjárupphæðir.
HarnEmann- íeögarnip
i.
Johan OIc Emil Horneman. Ekki
er þessa heiðursmanns getið í þessum
þáttum vegna þess, að hann væri stór-
brotinn lónshillingur eða víðfrægur.
En rjett þykir þó að nefna hann
vegna þess að þeir eru æði margir af
hinni eldri kynslóð vorri, sem eiga
lionuni gott að gjalda frá bernsku-
árum sínum og æsku, þó að þeir viti
annars engin deili á honum önnur
en nafnið og það, að á „píanóskóla"
hans lærðu þeir og þær að stauta
stafróf hljómlistarinnar fyrst. „Píanó-
skóli Hornemans" mun mörgum vera
minnisstæð bók, því að lnin var um
langt skeið og til skannns tima notuð
því nær eingöngu við kenslu í pianó-
leik hjer á landi eins og í Danmörku.
Og með þessum „skóla“ var svo þeg-
ar fram í sótti, notað ýmislegt fleira
eftir Horneman við kensluna, eins og
„Femtonige Smaastykker“, „Vilde
Roser“ og fleira þess háttar, alt
prýðilegar tónsmíðar á sínu sviði, og
ágætlega frá þeim gengið til kfenslu-
nota, þó að nú þyki þær líklega úr-
eltar. Nú, — og svo kannast margir
við smálögin eftir Horneman, sem
einu sinni voru á hvers manns vörum
hjer á landi, eins og t. d. „Höjt fra
Træets grönne Top“, „Natten breder
sine Vinger,“ „Kongernes Kohge“,
svo að nokkur sjeu nefnd af lianda-
hófi, — og enn má nefna „Den gang
jeg drog afsted.“
Og enn er sú ástæða til þess að jeg
vil kynna Horeman gamla hjer, að
mjer er ekki grunlaust um að þeim
sje ruglað saman, feðgunum. En
Horneman liinn yngri var miklu stór-
brotnara tónskáld en faðir hans og
naut alhnikillar virðingar erlendis
einkum í Þýskalandi. En það er til-
gangurinn með þessum þáttum, að
þeir geti orðið mönnum tii nokkurs
fróðleiks.
Johan Horneman var sonur mikils-
virts málara (Christian H. — 1765—
1844) í Kaupmannahöfn, fæddur 1809.
Var upphaflega lil þess ætlast að
hann yrði listmálari eins og faðir
lians, en hann fjekk jafnframt til-
sögn í píanóleik hjá föður sín-
um og síðar hjá tónskáldinu Kuhl-
au og varð brátt all snjall píanó-
leikari, enda hneigðist hugurinn
fremur að hljómlistinni en málara-
listinni og var það ])á látið gott
heita, að hann gerðist hljómlistar-
maður. Hann hafði ofan af fyrir sjer
með kenslu um langt skeið og gat
sjer góðan orðstýr sem kennari, enda
var liann um nokkurra ára bil liljóm-
listarkennari við konunglega leik-
húsið í Kaupmannahöfn. Tónsmíð-
arnar fjekkst hann við í tómstund-
um sínum, rjett eins og þeir Árni
Thorsteinsson og Sigvaldi Kaldalóns,
enda varð hann aldrei miklu stór-
brotnari en þeir, þó að hljómfræði-
mentun og leikni hefði hann meiri.
En þegar hann var tæplega fertug-
ur, hætti hann kenslustörfunum og
stofnaði listverslun (málverka- og
nótnabúð) í fjelagi við annan mann.
Þetta fyrirtæki dafnaði sæmilega, cn
á öðru braski tapaði H. stórfje, og
gekk þá úr fjelaginu um verslunina.
Nokkru síðar stofnaði hann svo nýtt
verslunarfyrirtæki, í fjelagi við son
sinn, Christian, og stjórnaði því til
dauðadags (1870).
Nokkru áður en hann byrjaði fyrra
verslunar-fyrirtækið, birtust fyrstu
tónsmíðar hans á prenti (1842) frá
þýskum nótnaútgefanda: Douze Cap-
rices pour le Picmo. Þessum tónsmíð-
um var svo vel tekið, að Horneman
mun hafa hugsað sjer, að búa svo i
haginn, að liann gæti gefið sig sem
mest að skáldskapnum eftirleiðis, og
það verið ástæðan til þess að haiin
hætti hinum þreytandi kenslustörf-
um og lagði út i verslunarfyrirtækið,
þar sem hann hugðist með því fá
meiri tíma aflögu til þessara uppá-
halds iðkana sinna. Enda var það
mál fróðra manna, sem kyntu sjer
þessar fyrstu pianó-tónsmíðar lians,
a^ þær lofuðu miklu. T. d. hafði
Schumann skrifað um þær mjög
lofsamleg ummæli. Mun liafa verið
ætlan Hornemans að leggja út í
stórvirki á þessari braut, — en af
því varð þó aldrei. Jeg er ckki svo
fróður, að jeg geti um það sagt, liver
orsökin var. En eitt sinn hlýddi jeg
á tal gamalla tónlistarmanna danskra,
á námsárum mínum í Kaupmanna-
höfn, sem voru að ryfja upp liitt og
þetta um Horneman gamla. Um skáld-
gáfu hans voru þeir ósammála. Iljelt
annar því ’fram, að hún hefði aldrci
mikil verið, — eða ekki stórbrotnari
en það sýndi, sem hann hefði eftir
sig látið. Hinn var mjög á annari
skoðun. Hann hjelt því fram að
Horneman liefði í rauninni verið
miklu meira tónskáld en nokkurn
grunaði, og frábærilega vel að sjer
í hljómfræði. En að ])að hefði verið
„braskið“ og verslunaráhuginn, sem
alt eyðilagði, svo að hann kom aldrei
neinu í verk af því, sem honum var
þó hugleiknast, og sem hefði verið
honum Ieikur einn að verða frægur
fyrir, ef liann hefði gefið sjer tíma
til þess frá fjármála-„stússinu“ og
verslunar-áhyggjum.
Hvað sem um þetta er, þá birtist
aldrei annað eftir hann en „smá-
perlur“, en margt af því eru clýrar
perlur þó að þær láti ekki mikið
yfir sjer.
Einhvefntíma heyrði jeg það um
Horneman sagt, að hann væri „dansk-
astur“ allra danskra tónskálda. Það
er liklega nokkuð til i þessu, og eru
þetta góð eftirmæli.
ÞAÐ ER HOLT AÐ FASTA.
Gerir fastan líkamanum gagn eða
ógagn? spyrja menn. Læknarnir
svara þessu þannig: Fyrstu klukku-
tima föstunnar hætta meltingarfæri
likamans að starfa og eðlilegur sult-
ur gerir ekki vart við sig. Takist
m^nni að vinna bug á sultinum
fyrstu 24 tímana langar mann ekk-
ert í mat fyrst um sinn. Því að nú
er líkaminn byrjaður að eyða forða
þeim af næringarefnum, sem í lion-
ura býr, fitu og vöðvum.
í þessum forða eru geymd öll þau
eiturefni, sem safnast hafa fyrir í
likamanum. Þau eyðast um leið og
eytt er af forðanum. Líkaminn eyð-
ir þeim um leið og íiann eyðir nær-
ingarefnunum. Þessvegna er heilsu-
bót að föstunni, sje hún gerð með
skynsamlegum hætti og undir lækn-
iseftirliti.
Meðan eiturefnin eru að eyðast
kemur oft skán á tunguna. En þeg-
ar eðlilega liungrið byrjar aftur, þá
hverfur skánin. Þá má ekki fasta
lengur. Þvi að nú er varasjóður lík-
amans tæmdur og eiturefnin horfin
úr likamanum. Og sje þá lialdið
áfram að fasta, er ekkert fram-
undan nema hungurdauðinn. Það
cr mjög misjafnt, hvc líkaniinn er
auðugur að næringarforða og þess-
vegna er það líka mismunandi, hve
langar föstur fólk þolir sjer að
skaðlausu.