Fálkinn - 19.06.1942, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
*
Það hefir verid' npplýsi, að um 1250 enskar herflugvjelar
hafi flogið gfir þýskar borgir ú sömu nóttu og varpað
nið'ur meiri ógrynnum af sprengjum, en clœmi eru til
nokkru sinni áður i þessari styrjöld. Hér er mynd «/
vagnalest á leið frá verksmiðjunni lil enskra flugstöðva
með sprengjur innanborðs.
Fálkinn hefir birt mynd af afleiðingum loftárása Brcta á fíenaultsmiðjurnar við Paris, og hjer
birtist önntir. Á miðri myndinni sjást eyðilagðar verksmiðjubyggingar. Þarna voru smíð-
aðar flutningabifreiðar fyrir Þjóðverja í stórum stíl.
Þetta er hin nýja Stirling-sprengjuflugvjel Breta, sem getur borið 8 tonn af sprengjum frá
Englandi til þýskra borga. llán fer 300 milur á klukkustund og getur flogið til staða i
2000 mílna fjarlægð, en vegur 30 tonn fullhlaðin. Vjelin er mjög vel vopnuð og hefir
fjóra hreyfla. Enginn vissi neitt um fyrirkomulag þessarar vjelar fyr cn i byrjun þessa
árs, en i árásunum á Þýskaland i vor hefir hún reynst einna skæðust allra. Hún er yfir
87 feta löng, 90 feta breið og 22 feta há. Að ofan sjest vjelin á flngi en að neðan á flng-
vellinum.
Fallhlífaher Breta stœkkar óðum og tugir þúsunda af
hermönnum eru þjálfaðir i þeirri list að hlaupa i jall-
hlífum i’it úr flugvjelum, með það fyrir augum, að hægt
sje að láta vopnuðu liði „rigna“ yfir óvinaland. Hjer sjást
nokkrir fallhlífamenn á svifi til jarðar.