Fálkinn - 19.06.1942, Side 10
10
JF Á L K I N N
VNG/9V
U/SNMIRHIR
Jónsmessuæfintýrið.
Það var yndislegt veður, enda var
þetta rjett fyrir Jónsmessuna. Skóg-
urinn var orðinn grænn og garð-
arnir þaktir í . blómum, fuglarnir
tístu og kvökuðu og lömbin ljeku
sjer í haganum og háfættu folöldin
hlupu og settu upp rassinn.
Það var svo sem nóg skemtilegl
að sjá úti, en samt lá ekki vel
á henni Elsu litlu. Hún sat á græn-
um bala fyrir norðan garðinn og
var svo raunaleg. Það stóð svoleiðis
á þessu, að henni leiddist svo eftir
henni ömmu sinni, en nú var amma
langt í burtu og Elsa vissi ekki hve
nær hún kæmi heim. — Þetta var
í gamla daga, löngu áður en gufu-
skipin og bílarnir kornu til sögunn-
ar, og þá var maður marga daga
að komast leið, sem nú er hægt að
fara á nokkrum klukkutímum.
„í kvöld er Jónsmessukvöld,“
sagði mamma liennar. „Ætlarðu ekki
út og horfa á brennurnar, Elsa
mín?“ (Þessi saga gerist í Dan-
mörku, og þar eru altaf einskonar
álfabrennur á Jónsmessunótt).
„Bara að hún amma væri komin.
Á síðustu Jónsmessu fórum við sam-
an að sjá brennur, en mig langar
ekkert til þess núna, fyrst hún
amma er ekki heima.“
„Hver veit nema hún komi þá
og þegar; vertu ekki að setja það
fyrir þig,“ sagði mamma liughreyst-
andi, en hún hafði svo mikið að
hugsa, því að börnin voru mörg
og nú var hún að sjóða matinn.
Það átti að vera veislumatur um
kvöldið, svo að hún mátti ekki vera
að því að sinna Elsu.
Elsu fanst hún eiga skelfing bágt.
Hún læddist upp í kamersið henn-
ar ömmu sinnar og settisl þar við
gluggann og horfði út.
Það var farið að skyggja — eins
mikið og skygt getur um Jónsmess-
una — en svo sá liún alt í einu
að grá ský þokuðust upp á himin-
inn. Elsa varð lirædd við þetta, þau
voru svo geigvænleg þessi ský, nú
urðu þau blásvört, en með glóð-
rauðum rákum, eins og eldur væri
bak við þau. Skyldi þetta ætla að
verða þrumuveður?
Hún gat ekki hreyft legg eða lið,
en sat þarna grafkyr og horfði á
skýin. Alt í einu gægðist tunglið
fram bak við þau, gríðarlega stór
hálfmáni og andlit á honum eins
og á gömluin geðvondum karli.
„Nú get jeg sjeð sjálf, að það er
gamall karl i tunglinu,“ hugsaði
Elsa, því að þetta hafði hún aldrei
sjeð áður. En í sama bili sá hún
lika annað: allar rákirnar í skýjun-
um urðu eins og vegir á landsupp-
drætti, og eítir þessum vegum komu
nornir riðandi, hver eftir aðra. Sum-
ar voru gamlar og kengbognar, aðr-
ar sátu þráðbeinar og skimuðu i
allar áttir, en þó fóru þær allar i
sömu áttina — þær voru að fara
til Blokksbjargs, því að þar ætluðu
þær að haída Jónsmessuhátíð.
Æ! Elsa varð lafhrædd. Aldrei
hafði henni dottið í hug, að svona
margar nornir væru til í heiminum!
En svo sá hún alt í einu, að hrífu-
skaft kom þjótandi í gagnstæða átt
— og á því sat gömul kona. Og
þegar Elsa atliugaði þetta betur, þá
gat liún ekki betur sjeð, en að þetta
væri hún amma hennar.
„Amma!“ hrópaði Elsa í angist,
„getur þú flogið — ert þú norn?“
„Hvað ertu að segja, blessað
barn?“ heyrðist sagt, og þetta var
röddin hennar ömmu hennar, þarna
alveg við hliðina á henni. Elsa leit
við og þá stóð amma hennar þarna
alveg fyrir aftan hana, í hálfdimmri
stofunni. Elsa gleymdi alveg skýjnn-
um og tók báðum höndum um háls-
inn á ömmu sinni.
„Hvernig gastu komið heim?“
spurði hún og leit svo út um glugg-
ann aftur, til að vita livort hún sæi
ekki fleiri nornir. En nú var him-
ininn orðinn heiður aftur og langt
í fjarska sá hún nokkur bál bera
við sjóndeildarhringinn, eins og of-
urlitlar stjörnur.
„Jeg var orðin svo óþolinmóð
ei'tir að sjá hana Elsu mina og ykk-
ur öll,“ sagði amma, „og svo fjekk
jeg ferð með skipi, og við fengum
svo góðan byr, að okkur gekk fljótt
að komast heim.“
„En, heyrðu amma, jeg sá þig
áðan ríðandi á hrífuskafti þarna
uppi í skýjunum, og jeg sá marga
fleiri — og skýin og bjarmann.“
Og svo reyndi Elsa að segja ömmu
sinni l'rá þvi, sem hún jióttist hafa
sjeð. En amma hennar fór að hlæja.
„Veistu ekki, að það eru engar
nornir til, væna mín. Þetta er bara
göinul og bjánaleg hjátrú. Og ekki
kallar þú mig víst norn, er það?
En þú liefir sofnað af þvi að þú
varst þreytt, og að visu dró saman
skýjaþykni fyrir rúmum klukkutima
og það hefirðu sjeð rjett áður en
þú sofnaðir, en svo hefir jiig dreymt
alt hitt.“
Elsa hló. Nú var liún glöð og svo
hljóp hún við hönd ömmu sinnar
að Jónsmessubálinu þeirra með öllu
liinu fólkinu, og bálið var svo stórt
'að það sást úr heillar mílu fjar-
lægð.
„Það var meira Jónsmessuæfintýr-
ið, sem jiú upplifðir,“ sagði amina.
— Mamma, ó, að við hefðum al-
drei gifst honum pabba!
Læknirinn: — Þjer þurfið a'ð
hreyfa yður hressilega undir beru
lofti.
Sjúklingurinn: — Jeg er sprett-
hlaupari.
Læknirinn: —Jæja, þá verðið þjer
að hlaupa hraðar.
— Hvað verður hann sonur yðar,
þegar hann hefir lokið náminu sínu?
— Gamall maður, er jeg hræddur
um.
— Ætlarðu strax að fara að kertna
henni að nota andlitsduft?
— Er það alvarlegt, sem qengur
að konunni minni, leeknir?
— Já, bað kostar yður minst nýj-
an kjól, eða tvo nýja hatta.
— Ef tveimur eggjiun hefir verið
verpt í hreiður, og jeg bœti tveim-
ur við — hvað mörg verða eggin þá?
— Getið þjer verpt eggjum?
!>egar reipdráttarkappinn œtlaði
að draga inn akkerið.
— Jeg lieyri, ungfrú,, að þjer
hafið opinberað trúlofun yðar.
— Já, en því miður er slitnað
upp úr trúlofuninin aftur.
— Það er leitt að heyra! Hver er
sá hamingjusami?
í dýragarðinum: — Þetta er ind-
verskur fíll og þessi er afríkanskur.
-—• Hver er munurinn á lieim?
— Annar þeirra heitir .Tumbo,
cn hinn heitir Gudda.
— Ilvar er best að ’wra að sytida?
— / vatni.
— Ilana nú, þarna misti Pjetur
brauðsneiðina sína einu sinni enn
— og smjerið vitanlega niður.
Mundu, Stína, að smyrja hinumegin
handa honum.
— Jeg ætla að segja þjer eina
fyndni, en jeg er ekki viss um nema
að jeg hafi sagt lijer hana áður.
— Er hún góð?
— Afbragð.
— Þá hefirðu áreiðanlega ekki
sagt mjer hana áður.
Listdómarinn: — Hafið jjjer vil
á músík?
Sessunauturinn: — Ójá, dálítið.
Listdómarinn: — Hvað var það
þá, seimmaðurinn var að spila núna?
Sessunauturinn: Slagharpa.
Ferðamaðurinn (við bílstjórann):
— Fljótur nú, bílstjóri! Ef þjer ak-
ið mjer í hvelli niður að „Esju“ þá
fáið þjer ......
Bílstjórinn: — Ójá, jeg veit hva'ð
jeg fæ. Ætli það verði ekki sekt
hjá lögreglunni.