Fálkinn - 04.12.1942, Qupperneq 1
16 aíOur
Svo sem vikið er að á öðrum stað hjer í blaðinu fjallar síðasta árbók Ferðafjelags íslands um Kerlingarfjöll, þennan ónumda
en undurfagra fjallaklasa og einn þeirra, sem hægast er að ná til nú orðið, vegna þess að þangað er bllfært og þar er sælu-
hús. Er sennilegt að á næstu árum verði ekki meiri straumur annað i sumarleyfinu en einmitt þangað, og er þá gott að grípa
til hinnar vönduðu og fræðandi árbókar. Loðmundur hefir til þessa verið- frægasta fjall Kerlingarf jalla og mun verða það
framvegis sökum hinnar einkennilegu lögunar sinnar. En hann hefir verið sviftur þeim heiðri að vera hæst fjallið á þeim
slóðum. Það hefir sem sje komið upp að Snækollur i Hánúpum er U78 m. en Loðmundur ekki nema U32. — Hjer á mynd-
inni, sem er eftir Þorst. Jósepsson, sjest Loðmundur t. v., en fjær t. h. sjást Hánýpur með Snækolli, snævi þöktum.
Undir Loðmundi