Fálkinn


Fálkinn - 04.12.1942, Page 14

Fálkinn - 04.12.1942, Page 14
14 F Á L K I N N FRÁ SVÍÞJÓÐ. Frh. af bls. 3. hóttar í Ungverjalandi, Rúmeníu og Frakklandi. Þessar x ijósprentuðu útgáfur eru nokkuð dýrar og hygst ]>vi forlagið að gefa út nýjan bókaflokk, ódýr- ari, sem lieitir „Zephyr Books“, og verður frágangurinn líkur og á Tauchnitz-bókunum Og „Pocket Books“. Þar eiga að koma enskar og ameríkanskar klassiskar bækur og lögreglusögur. Gerir forlagið ráð fyrir að halda þessari útgáfu áfram eftir stríðslok, en „Clipper Books“ eiga að hætta að koma út undir eins og samgöngur komast í lag aftur. — Annað forlag sænskt, Ljus hef- ir einnig í hyggju að hefja útgál'u enskra og amerískra bóka, í flokki sem nefnist „Ljus Englisl) Library". Einnig hefir enska vikublaðið „Eco- nomist" verið gefið út í ljósprent- aðri útgáfu í Sviþjóð. Þó að sænsk bókaforlög geti ekki að fullu bætt um þanri bókakost enskra og ameríkanskra bóka, sem l'jekst í Sví])jóð fyrir stríðið munu þessar ráðstafanir sjá langt til að fullnægja þeim áhuga, sem er fyrir enskum bókum i Svíþjóð. MIHAILOVITCH HERSHÖFÐINGI og hermálaráðherra Júgóslavíu hefir getið sjer einn binn mesta orðstír í þessari styrjöld. Þegar Júgoslavar urðu að gefast upp fyrir ofurefli liðs, er þýskar, rúmenskar og ítalsk- ar hersveitir streymdu inn í land þeirra í fyrra, flýði Mihailivitch með her sinn upp til fjalla og bætt- ist þar nýr liðstyrkur. Síðan hefir hann haldið uppi látlausri baráttu við kúgarana og gert þeim margar skráveifur, og verða Þjóðverjar jafn- an að hafa mikinn her i landinu til þess að standast lionum snúning. Þegar júgoslaviska stjórnin var endurskipulögð í London í febrúar siðastliðnum, var Mihailovitch skip- aður hermálaráðherra hennar, þó að hann væri fjarverandi liinni útlægu stjórn. Fæstir munu hafa búist við, að liann gæti veitt viðnám tli lengd- ar í Júgoslavíu, en hann er ósigrað- ur enn og allar líkur til að svo verði til stríðsloka, þvi að Þjóðverjar hafa nú í fleiri horn að líta en áður. Egils ávaxtadrykkir Ný bók frá Máli og menningu: TÓNÍÓ KRÖGER, eftir Nóbelsverðlaunahöfundinn THOMAS MANN, ein fegursta perlan í þýskum bókment- um er nú komin á íslensku í þýðingu Gísla Ásmundssonar. Viðfangsefni höfundarins er borgarinn- og skáldið, en jafnframt andstæðurnar í eðli hans sjálfs. Sagan ier fingerð, listræn, verður að lesast oftar en einu sinni, eins og allar góðar bækur. Nýtt hefti af Tímariti Máls og menningar er einnig korniö út. , Fjelagsmenn eru beðnir að vitja bókanna M Á L O G M E N N I N G. Laugavegi 19. Sími: 5055. riý bók eítir Uilhj. Þ. Gíslason: SNORRI STURLUSON..GOÐAFRÆÐIN I þessari bók er sagt frá Snorra Sturlusyni og goðafræði hans. Hjer er í aðgengilegu formi rjettur og ná- kvæmur texti og fjölbreyttar skýr- ingar við eitt skemtilegasta og glæsilegasta rit íslenskra bókmenta, Gylfaginningu, og lýst á fræðilegan og skemtilegan hátt ritstörfum og ævi hins merkasta höfundar og höfð- ingja. — I bókinni er fjöldi mynda efninu til skýringar, og einnig ýmis- konar annað bókaskraut. Myndirn- ar eru litmyndir og nýjar teikning- ar, gerðar sjerstaklega fyrir þessa bók, eða sýnishorn af myndum eldri listamanna og teikningum. Einnig eru myndir af fornum gripum, stein- smíði og málmsmíði, trjeskurði og vefnaði, þar sem efnið er tekið úr goðafræði. Myndirnar eru því sýnis- horn þess, hvernig skilningurinn á goðsögum og trú hefir þróast í nor- rænni og germanskri list frá alda öðli og fram á þennan dag. Nýjustu myndirnar eru eftir Einar Jónsson, Ossian-Elgström og Jóhann Briem, þær elstu úr helluristum og af rúna- steinum. Margar þessar myndir eru sjerkennileg og ágæt listaverk. Þá eru þarna og myndir úr handritum og gömlum útgáfum. Bókarskraut, titil- síður, stafir og hnútar eru gerðir eftir fornum fyrirmyndum. Nákvæmar skrár eru um efni og myndir. Bókin er prentuð á fallegan skrifpappír og bundin í skrautband. Upplag bókarinnar er lítið. flý bók dtir 5fEfán Jónsspn: Skóladagar Stefán Jónsson er einn af bestu yngri rithöfundum okkar. Hann er greindur maður og yfirlætislaus, og fer því minna fyrir honum en ýmsum öðrum. En bækur hans hafa hlotið einróma dóma. I fyrra kom út bókin Vinir vorsins, sem vakti mikla eftirtekt og seldist upp á skömmum tíma. Skóladagar er fram- hald þeirrar bókar. Má hiklaust ráða foreldrum til þess að gefa unglingum þessa bók. Hún er vel skrif- uð og falleg. Bókaverslun ísafoldar og útibúið Laugavegi 12.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.