Fálkinn


Fálkinn - 25.02.1944, Side 4

Fálkinn - 25.02.1944, Side 4
4 F Á L K I N N FLUGIÐ A FYRSTU ÁRUNUM EFTIR 1918 í síðasta jólablaði Fálkans var sagt frá sögu flugsins, frá því að Wright-bræður flugu fyrsta flugið sitt 19. desember 1903 og fram til þess að fyrst var flogið yfir Atlandshaf. — Hjer seg- ir frá fluginu næstu árin eftir síðustu styrjöld. NÚ ER ÞAÐ ORÐIÐ SAMGÖNGUTÆKI FRAMTÍÐARINNAR. AÐ voru þrjár sæílugvjelar af Curtiss-gerð, sem Bandaríkja menn völdu til þess að reyna að komast austur yfir Atlanlshaf. Þetta voru tvíþekjur og höfðu verið smið- aðar i þeim tiigangi, að þær gætu varpað sprengjum i hernaði. Hver þeirra liafði fjögra manna áhöfn og fjóra fjögur hundruð lia. Liberty- hreyfla, og gat vjelin flogið þó einn hilaði. — Með fullri hleðslu og 8200 lítra af bensini vóg hver vjel 28500 pund. Breiddin milli vængjahrodda var 38.4 metrar og lengdin 20.9 metrar. Nokkra hugmynd geta menn gert sjer um hurðarmagnið af því, að i reynsluferðinni l'laug NC 1 með 01 manns. En vjelar jiessar voru merktar NC 1, NC 3, og NC 4. Þessi reynsluför var farin í nóvembe. 1918 og tíu ár liðu jiangað til flug- vjel lyfti fleira fólki. Á leiðinni, sem vjelarnar áttu að fljúga voru sett varðskip frá amer- ikanska og breska flotanum: milh New Foundlands og Azoreyja voru 21 ameríkanskir tundurspillar með 60 mílna millibili, og milli Azor- eyja og Portugal hjeldu Bretar vörð. Þrátt fyrir allar varúðarráðstafanir komst aðeins ein fiugvjelin alla leið. Það var NC 4. NC 1, nauðlenti 200 mílum fyrir vestan Azoreyjar og var skilin þar eftir, flugmönnunum hafði verið hjargað. NC 3 hrapaði 205 mílur frá Ponta Delgada á Azoreyjum en gat siglt til lands. NC 4, vjelin sem komst alla leið undir stjórn A. C. Read sjóliðsfor- ingja, fór frá New Foundland 10. maí 1919 og kom til Azoreyja eftii hádegi næsta dag, eftir að liafa flog- ið 1380 milur á 15 tímum og 15 mín. Þar stóð hún við í 10 dága og konst til Lissabon, i 800 milna fjariægð, 2. maí. MAÐURINN, SEM HVARF. Hinn 18. maí, tveimur dögum eft- ir að ameríkönsku vjelarnar þrjár lögðu af stað, ljetu Englendingarn- ir Harry Hawker og Kenneth Mac- kenzie-Grieve i loft í St. Johns á New Foundland í þeim tilgangi að vinna 10.000 punda verðlaun fyrir viðkomulaust ftug yfir Atlantshaf. Vjel þeirra var Sopwith tvíþekja, sjerstaklega bygð, með 350 lia. Rolls Royce hreyfii og vóg nálægt 5000 pund. Næstu átta daga eftir að vjelin ljet í loft heyrðist ekkert af henni og var talið að hún hefði farist með báðum mönnunum, en 26. maí frjettist að þeir hefðu bjargast 19. maí um jiúsund mílur austur af New Foundland. Danskt skip. sem ekki liafði loftskeyti, hafði fundið þá. Varð uppi fótur og fit í Bret- landi er þetta frjettist að mennirnir væru lífs. Konungurinn sæmdi þá R. A. F.-krossinum og þeir fengu 5000 sterlingspunda verðlaun fyr’m afrekið. BEINT YFIR ATLANTSHAF. Það voru þeir John Alcock og A. Whitten Brown, sem unnu verðlaun- in, i næsta mánuði, og flugu beint frá St. Johns á New Foundland til Clifden í írlandi, 1963 mílna leið, á 15 tímum og 57 mín. Þeir ftugu á Vickers Vimy sprengjuflugvjel, er hafði verið breytt undir ferðina. Vjelin var knúð tveimur Rolls-Royce hreyflum, 350 ha. og gat livor þeirra um sig haldið vjelinni á lofti eftir að helmingur eldsneytisins var hú- inn. LENTU í FENI. Er þeir höfðu flogið lengi „blind- andi“ tókst þeim að gera staðar- ákvörðun sem sýndi að þeir væru nálægt írlandsströnd. Skömmu síð- ar sáu þeir loftskeytastengurnar i Clifden. Þeir flugu í kring þarna til þess að gera vart við sig, en enginn tók eftir þeim og loks neyddust þeir til að lenda leiðbeiningarlaust. Skamt frá sáu þeir stað, sem þeim sýndist vera sljett flöt og ákváðu að lenda þar, en þegar til átti að laka var þelta mýri. — Flugvjelin skemdist alvarlega þegar lnin stakst á nefið, en flugmennirnir voru ó- meiddir. Þeir liöfðu flogið fyrsta beina flugið yfir Atlantshal'. Alcock og Brown fengu báðir sirs-nafnbót og flugvjelin var sett á visindasafnið enska, í South Kens- ington og er þar enn. Alcock, sem var aðeins 27 ára gamall, naul ekki lengi ávaxtanna af afreki sínu. Skömmu eftir að liann liafði verið aðlaður slasaðist liann í flugvjel, sem varð að nauð- lenda á leiðinni til París og beið bana af. Hann andaðist 18. desem- ber 1919. — Nú liafði bæði sjó-* og landflug- vjel flogið austur yfir Atlantshaf, en loftskip flaug vestur milli 2. g 6. júlí 1919. Þetta skip, R. 34, liafði ásamt systurloftskipi sínu, R. 33, verið smíðað til þess að gera loft- árásir á Berlín og var verið að reyna það þegar vopnahljeð kom, 11. nóvember 1918. SIGURFÖR R. 34. Loftskipið var 196 metra langt, 24,5 metrar í þvermál og tók tvö mil- jón rúmfet af gasi. Það hafði fimm Sunbéam-hreyfla og gat flogið 90— 100 km. í logni. Það rúmaði 255.000 lítra af eldsneyti og gat flogið 8000 km. lendingarlaust og komst I 4200 metra hæð. Gasbelgirnir, 18 samtals, gálu lyft 30 smálestum af flutningi. Allt var vandlega undir ferðina búið. Þarna voru tvöföld stýri, loft- skeyti, rafljós og símar. Tvö beiti- skip, Tiger og Re.nown voru send vestur á haf til þess að senda veður- fregnir og hjálpa, ef með þyrfti. Aðaltilgangur fararinnar var að safna gögnum um veðurslcilyrði yfir hafinu, með tilitt til væntanlegra loftsiglinga. R. 34 lagði af stað úr Fortli-firði snemma morguns 2. júlí 1919. Fyrstu klukkustundirnar voru erfiðastar. Mikil þoka og ómögulegt að koma loftfarinu hærra en þúsund metra vegna þess live það var þunghlaðið. En þegar komið var vestur yfir fjöll Skotlands Ijetti skipshöfninni. Eftir hádegi 4. júli sást Trinity Bay á New Foundland og snemma morguns þann 6. júlí sást strönd Massaschusetts. Daginn áður hafði R. 34 lent í þrumuveðri og loftróti, sem lá við að kostaði einn vjela- manninn lífið. Það hafði verið afráðið að R. 34 ætti að fljúga hringflug yfir New York áður en Jiað lenti, en af Jiví að ekki var meira eldsneyti en til 5 stunda eftir, Jiegar skipið kom i landsýn var liætt við Jietta, og flaug skipið beint á Roosevelt-l'lugvöllinn og lagðist liar við stjóra kl. 9.20 f.li. Jiann 6. júlí. Þá var eftir eldsneyti til 40 míuútna. Hafði R. 34 þá flogið 5100 km. á 108 tímum, eða með 53 km. meðalhraða á tímanum. Til baka fór loftfarið 10. júlí að kvöldi og flaug Jjá með 120 km. hraða að meðaltali. Og eftir þessa ferð fram og aftur var mikils vænst af R. 34, en það varð ekki langlíft. í janúar 1921 rakst Jiað á hæð í Yorkshire, komst Jiaðan á flugvöll en gereyðilagðist. Varð þetta til Jiess að Bretar liættu að hyggja á loft siglingar yfir Atlantsliaf í bráð. LINDBERGHSFLUGIÐ. Frægast allra hinna fyrri fluga yfir Atlantsliaf varð flug Lindberghs ‘J0. maí 1927. Hann flaug beint frá New Yorlc til París, 5760 km., á 33. tímum 20 mín., og vann Orteig- verðlaunin, 25.000 dollara. Þessi verðlaun voru fyrst hoðin fram 30. mai 1919, en engin hafði unnið í þessi átta ár. Sá fyrsti reyndi, í sept. 1926, það var René Fonck og hafði hann Sikorsky-flugvjel. Hann var aðeins í lofti í nokkrar sekúndur, og tveir af þrem farþegum hans brunnu til bana í vjelinni. Þremur vikum áður en Lindbergh lagði í för sína reyndu frönsku flugmennirnir Nungesser og Coli að vinna lil Orteig-verðlaunanna, en aldrei spurst til Jieirra. Þeir ætluðu að fljúga vestur um. Cliarles Au- gustus Lindberg var 25 ára og liafði verið áæthinarflugmaður á leiðinni milli New York og San Francisco. Hann kom vestan frá kyrrahafi 12. maí og hafði Jiá sett nýtt með á leið- inni frá San Diego í California lil New York, en hún var 400 km. löng. Þegar liann lenti á Rosevelt-flug- vollinum á RyanV-'inþckju sinni, sem hann nefndi Spirit of St. Louis, hitti liann þar fyrir tvær flugvjelar, scm verið var að búa í Parísarflúg- ið. Önnur þeirra var Bellancavjel, er nefndist Columbia, hin Jjrílireyfla Fokker-einþekja, sem nelndist Am- eríca, og stjórnaði henni R. E. Byrd sjóliðsforingi í flota U. S. A. Þarna voru þá þrír keppinautar og fólkið talaði ekki um annað eii flugið. Hver mundi verða fyrstur? Þetta var rætt af kappi í blöðum og á strætum og gatnamótum. Fólk hafði lilla trú á að það yrði Lindbergh. Hann var fífldjarfur ofur- hugi og hafði fengið viðurnefnið „Fíflið fljúgandi”; Ennfremur var vjel hans talin óhentug til svona flugs. Allt hafði verið sparað til Jiess að hún gæti borið sem mest af elds- neyti, en ekki litið á annað. Hún vóg 4135 pund, har um 1900 litra af bensini, sem átti að nægja hreyfl- inum alla leið, en Jjað var Wright Whirlwind, 225 ha. Vjelin var aðeins 14 metrar milli 'vængjabroddana. Hreyfillinn var loftkældur vegna Jjess að vatnskælingin jók á ljyngd- ina. Þarna voru ekki ýms mælitæki, sem annars eru talin nauðsynleg, og engin loftskeytatæki. Og þarna var hvorki siglingarfræðingur nje vjela- maður; Lindbergh flaug aleinn. — Fólkið liristi höfuðið. „Það ætti að banna þessu flóni að fara,“ sagði það. En langi, ljóshærði flugmaður- inn með bláu augun brosti og hjelt undirbúningnum áfram. ÍSING Á VÆNGJUNUM. Morguninn 20. mai kl. 7.52 brun- aði Spiril of St. Louis af stað yfir flugvöllinn og áhorfendurnir þótt- ust mega sjá flugmanninn í síðasta sinn. Alinennt álitið liöfðu þeir rjett fyrir sjer — ef ljessi eini lireyf- ill sviki þá þurft kraftaverk lil að bjarga Lindbergh. Það gekk á skúrum og ekki bjart í lofti, en að öðru leiti var veður- útlitið sæmilegt og veðrið var gott þangað til liann kom til New Found- land. Um klukkutima leið frá St. Johns lenti vjelin i svarta þoku. — Lindbergh reyndi að komast upp yfir Jiokubakkan en þá kom ising á væng- ina og liann varð að lækka flugið

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.