Fálkinn - 04.08.1944, Blaðsíða 2
I
2
Björn Ólafs, skipstjóri, Mijrarhús-
um, verður 65 ára JO. j). m.
Eden málfróður maður
Enginn breskur ráðherra er jafn
vel að sjer í málum og Antony
Eden. Sir Jolin Anderson lærði að
vísu um skeið í Þýskalandi og er
talin betri þýsku- og frönskumaður
en nokkur liinna ráðherranna. —
Crookshank póstmálaráðlierra, Hud-
son landbúnaðarráðherra, og Dun-
can Sandys birgðamálaráðherra,
tengdasonur Churchills eru einnig
allir miklir málamenn.
En Eden utanríkismálaráðherra
talar öll algeng mál mjög vel en
hafði það fram yfir hina að Iiann
talar bæði persnesku og arabísku.
Þessi mál lærði hann í Oxford.
Slyngasti málamaður neðri mál-
stofunnar er Burgin, sem var birgða-
málaráðherra 1939-40. Hann getur
haldið ræðu svo að segja á livaða
Evrópumál sem er, að undanteknum
Norðurlandamálum og málum Eystra
saltsrikjanna.
Ný Vicky Baum-mynd.
Warner Brothers eru byrjaðir að
kvikmynda söguna „Hotel Berlín
1943“ eftir austurrísku skáldkonuna
Vicky Baum, en þessi saga er ný-
lega komin út á íslenzku. Ein fræg-
asta af eldri sögum þessarar skáld-
konu, „Grand Hotel“ kom einnig út
á íslenzku fyrir nokkrum árum.
F Á L K 1 N N
Gladstone talaði Grískn
Breskir ráðherrar þóttu sjaldan
fróðir um erlendar tunjgur hjer
áður fyrr og þesvegna vakti sú
frjett atbygli, að Gladstone hefði
haldið ræðu á grísku suður i Aþenil-
borg. En ljóminn fór von bráðar
af þessu afreki, þvi að Gladstone,
sem var góður í forngrísku, kunni
engan framburð í nútíðargrísku.
Þegar Grikki einn, sem hlustaði á
ræðuna, var spurður hvernig honum
hefði þólt Gladstone segjast, svar-
aði liann, að auðvitað hefði þetta
verið falleg ræða, en því miður. hefði
hann ekki skilið eitt einasta orð,
sem heldur ekki væri von, því að
hann kynni ekki ensku.
Ruth Hussey
Robert Young
Lee Bowman
Laolegt hús þótt lítið s]e
Húsið hjer á myndinni er eitt af
3.000, sem verið er að byggja í Eng-
landi lianda fólki, sem stundar sveita
vinnu. Eru þau miklu hagkvæmari
en gömlu sveitabýlin. — Eldliúsið,
sem Bretar nota mest allra herbergja
á heimilinu, nær eftir endilöngu hús-
inu og er 5.18x3.50 metrar. Þar er
nægilegt rúm lil að matast og fyrir
börnin að leika sjer í. Eldavjelin
hitar upp vatnsdunk, sem nægir fyrir
bað og til uppþvotta. Gluggarnir erp
með steypustálsumgerð og næðir ekk
crl frá þeim. Eldavjelin hitar líka
loft i þurkskáp, þar sem hægt er
að þurka þvott í fljótu bragði.
NEITAÐI LEYFINU.
Hubert Miller major, sem sjesl hjer á myndinni og hef'ir fariö 25 árásar-
ferðir til meginlandsins sem framskytta i flugvirki, fjekk tilboð um að fara
um stund heim til fíandaríkjanna og hvíla sig. Hann þvertók fyrir það og
sagði það vera miklu skemtilegra en að slæpast að halda áfram starfinu. —
Miller er sex fet og 4 þumlunga (enskra) hár, og vegitr 240 pund. Ilann er
meðal hæstu flugmanna i 8. flugher Bandaríkjanna, en sá her hefir verið
lengst allra ameríkanskra „i eldinum".
VINSÆLiR
KVIKMYNDALEIKARAR
Simone Simon
Kent Smith
Mickey Rooney
Judy Garland