Fálkinn


Fálkinn - 30.03.1945, Side 3

Fálkinn - 30.03.1945, Side 3
F Á L K I N N VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM Ritstjóri: Skúli Skúlason. Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested Skrifstofa: Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210 Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6 Blaðið kemur út hvern föstudag Allar áskriftir greiðist fyrirfram HERBERTSprení. SKRADDARAÞANKAR Páskavikan er oft kölluð kyrra vik- an, og yfir henni hvílir alvörublær meðal kristinna þjóða. Þessi blær varð ei minni hér í þetta sinn en endranær fyrir þá sök, að á þriðju- daginn fór fram minningarguðsþjón- usta í Dómkirkjunni, um þá, sem fórust méð „Dettifossi". En nokkru fyrir jólin hafði samskonar athöfn verið haldin til að minnast þeirra sem fórust með „Goðafossi“. Þær eru orðnar margar minning- aratliafnirnar, sem haldnar hafa ver- ið um þá, sem farist hafa á sjón- um. Þessar athafnir til að minnast þeirra, sem sjórinn skilar aldrei aftur, eru engu siður gripandi en útfarir þeirra, sem sjórinn skilar á land, nema fremur sé. Því að oft- ast er það eins og aðstandendum og vinum þyki nokkur huggun að því, að vita sina i þeirri gröf, sem grasið getur gróið yfir, fremur en i hinni votu gröf. Um þau tvö siys, sem hér hefir verið minst stendur þannig á, að þau hafa orðið af völdum ófriðar- ins. Það eru mannaverk en ekki höfuðskepnurnar, sem þeim hafa valdið. Og þessvegna eru þau enn hryggilegri en ella. En þetta er hlut- ur hins hlutlausa íslands i stríðinu. Margar aðrar þjóðir, svo sem frænd- þjóðirnar á Norðurlöndum, óskuðu að vera hlutlausar, en fengu ekki, þær voru troðnar undir hæli liern- aðaræðisins. Hernám kom einnig á ísland, en með öðru móti, svo að segja má, að við liöfum ekki haft annað sorglegt að stríðinu að segja, en mannskaðana á hafinu. Það liefir löngum verið talað um páskaliret hér á landi. Svo liefir reynst að oft bregði til ofsaveðra um páskana, veðra, sem kostað hafa líf margra íslendinga. Hver veit nema að forsjónin hlífi þjóðinni við slíku hreti í þetta sinn. Því að hretsamur hefir þessi vetur orðið mörgum, þó að í annari merkingu sé en hinni venjulegu. En þess er gott að minnast, að skin kemur eftir skúr, og að eftir föstudaginn langa koma páskar. Það er jafnan huggun þeim, sem hafa mætt sorgum og mót- læti. Mætti það og verða svo nú. Og mættu þessir páskar minna á, að öll él stytti upp um síðir. Þeir munu einnig styrkja vonina um, að styrjöldinni sé nú loks að linna. 3 \ Ásgeir Bjarnþórsson hefir um þessar mundir málverkasýningu í Sýningarskála Listamanna. Meðal mcirgra mgnda á sýningunni er þessi altaristafla, máluð út af textanum i Jóh. 8,7: sá yðar, sem er syndlaus, kasti fyrstur steini á hana.“ Kanpmaðurinn í Feneyjuiii sýndur í Reykjavík Það má jafnan heita viðburður í leiklistarlífi Reykjavíkur er leikur eftir Shakespeare er tekinn til með- ferðar. Hér í ganda daga hefði slíkt þótt ógerningur, en Indriði Waage braut ísinn, er hann tók „Þrettánda- kvöld“ til sýningar og sýndi að það var liægt að sýna hin frægu verk mesta leikritaskálds lieimsins á leik- sviði hér. Síðan hefir „Vetraræfin- týrið“ verið sýnt, og í útvarpinu hefir verið farið með „Macbeth“. Leiksviðsmynd úr „Kaupmanninum í Feneyjum". Shylock og Blindi Gokko (Har. Björnsson oy Lárus Ingólfsson). En á föstudaginn var frumsýning á „Kaupmanninum i Feneyjum“ einnm þeirra Shakespearesleikja, sem eiga sér frægasta sögu sein sýningarleik- rit. Það er Lárus Pálsson, sem hefir búið þessa sýningu til leiks, og sjálfur leikur hann Lancelet Gobbo, fylgisvein aðalpersónunnar, Shylocks gyðings. En hann er leikinn af Har. Björnssyni, sém hefir skapað ógleym anlega persónu úr þessu mikla hlut- verki. Þó ekki væri neitt annað en íeikur Haraldar þá nægði liann til að gera hvern þann ánægðan, Frh. á bls. H,

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.