Fálkinn


Fálkinn - 30.03.1945, Page 7

Fálkinn - 30.03.1945, Page 7
F Á L K I N N 7 ÉpPilP® ' f 'V'. i íhhi ISiíiaiíSíÍIÍi siisiiiiiiWiiii wmm : LlTIL „STJARNA". Fúlkinn hefir áðnr sagt frá Margaret O’Brien, sem lék aðalhlutverk i kvikmyncl aðeins sex ára gömul. Hér er góð mgnd af telpuhnokkanum. MÓTMÆLI. Leikarinn Robert Donat, sem er bretskur, er hér á leið í enska þingið, til þess að mótmæla þvi, að ensku leikhúsin hafi sýning- ar ú sunnudögum. — GINGER ROGERS og nýi maðurinn hennar, JACK BRIGGS. Ekki vitum vér hvort hjónaband þetta er enn þá í gildi. r"=r~- END UliREISNARRÁÐHERRA BRETLANDS. Síðan í nóvember 19/f3 hefir maðurinn hér að ofan gegnl endurreisnarráðhérrastarfi Breta, en áður hafði hann veriff mat- vætaráðherra síðan lO'iO, en mun hvorugt þessara embætta auk- visum lient, því að auk þess á maðurinn, sem er Woolton lávarð- ur, sæti í fjölda nefnda og ennfremur í stríðsráðuneytinu. Lord Woolion er nú 61 árs. Hann ólst upp í Manchester og hlaut menntun sína þar. Árið 1935 var hann h&rraður (sir Frederick Marquis) en lávarður varð hann árið 1939. Lord Woolton mufi gegna þvi starfi innan bretsku stjórnarinnar, sem einkum veit að öllum þorra þjóðarinnar. Sem matvælaráðherra réð hann t. d. mestu um skömintun allra nauðsynja til almennings, og sættu ráðsafanir hans á stundUm allmikilli gagnrýni. En eigi að síður nýtur hann óskoraðs trausts. Og meðal verkefna hai.s í núver- andi cmbœtti er m. a. það, að sjá uim endurbyggingu alls þess, sem eyðilagst hefir af völdum loftárása Þjóðverja í Englandi. Nýjung i tækni. A'ð skerpa og skekkja sagarblöð mun fram að þessu hafa verið handa vinna laginna manna, og munu tré- smiðir jafnan liafa orðið að kunna að skerpa sögina sína. Með vaxandi vélaiðn hefir gerðin á sögum orðið fjöibreyttari en áður; nú er ekki um að ræða handsagir (strengsagir, „fuxsvansa* o. þh.) heldur hjólsagir og bandsagir, eigi aðeins fyrir tré lieldur og allskonar málma, fyrir bein og ket og fleira. Sagaskerp- ingin er því orðin flóknara verk en áður var, og vandasamara. Nú hefir Baldvin Jónsson, eigandi verksmiðjunnar ,,Sylgju“ á Laufás- vegi 19, fengið sér fullkomnar vél- ar til þess að skerpa og skekkja sagir. Eru þær gerðar i Minnea- polis og vitanlega rafknúnar. Þrenns konar vélar skerpa sagirnar, eflir því livort um er að ræða venju- legar handsagir, eða bandsagir eða hjólsagir. En sameiginlegt er það fyrir allar vélarnar að þær færa tannaröðina fram um ákveðið bil í einu, eftir tannastærð sagarinnar, en skerpiþjöl gengur yfir tann- grópina eftir hverja tilfærslu. Á þennan liátt gengur verkið liralt og nákvæmlega. Vélin fyrir venjulegar sagir getur skerpt tennur, hvort heldur þær eru svo smáar að 20 tennur lcomi á livern þumlung sag- arblaðsins eða svo stórar að aðeins komi þrjár, og allar stærðir þar á milli. Sérstök tannskekkingarvél er fyr- ir hverja tegund sagarblaða. Er þá 3. liver tönn fyrst skekkt á annan veginn og söginni síðan snúið og þriðja hver tönn skekkt á hinn, en 3 hver heldur beinni stefnu fram. Að lokinni skekkingu er sögin skerpt á ný. Kvikmyndastjarnan Jinx Falkenburg nýtur baðlifsins á Floridaströnd. Það er ekki aðeins flýtirinn, sem er ávinningur af þessum vélum. Hitt er eigi minna um vert, að verk- ið er unnið betur og með miklu meiri nákvæmni, þannig að sagar- blöðin geta enst miklu lengur en ella mundi, og að þau vindast siður svo að söginni hættir ekki til að „sækja“ sem kallað er.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.