Fálkinn - 30.03.1945, Side 14
14
F Á L K I N N
Nýkomið
Steypuskóflur, ágætis teg.
Stunguskóflur
Járnkarlar
Hakar
Hakasköft
Kúbein, fleiri stærðir
Gúmmislöngur allar stærðir
Gólfmottur
Handaxir
Klaufhamrar
Kúluhamrar
Sleggjur
Sleggjusköft
Sagir (Disston)
Kranaslöngur
Stiftasaumur
Eldhúshnífar
Flökunarhnífar
Stálnaglar
Hengilásar
Borsveifar
Stálull
Fægiskúffur
Naglbítar
Skrúfjárn
Stálbrýni
Dyratjaldahringir
GEYSIR H.F.
Veiðarfæradeildin.
Skáldsaga um ástir og frumskógalif, villidýr og njósnir
Töfrar Afríku
eftir Stuart Cloete
Þessi litríka og blóðheita
skáldsaga verður hverjunt
sem Ies hana, umhugsun-
arefni í langan tíma. —
Persónur hennar eru sterk-
ar og mikilúðlegar, leik-
soppar sterkra kennda og
óstýrlátra ásthneigða og þó
fær maður samúð með
þeim öllum. — Lesið
þessa bók um töfrana í
myrkviðum Afríkulanda,
þar sem hvítt samfélag
hefir myndast meðan heim
urinn logar af ófriði og
eldi.
TÖFRAR AFRÍKU
fást hjá öllum bóksölum.
HALDIÐ SUNLIGHT SÁPU ÞURRI
bá endist hún lengnr
Aldrei hefir það verið nauðsyn-
legra en nú, að spara Sunlightí
sápuna á þvottadaginn. Núið
ekki sápunni á allan þvottinn
heldur á óhreinustu blettina, og
þá kemur nægilegt löður til að
hreinsa allan þvottinn. Skiljið
aldrei sápustykkið eftir i valn-
inu.Látið það standa á endann
í þurri sápuskál. .Vlunið að þa
kemur Sunlight sápan að ý(r-
ustu noluin.
LEVER framleiðsla.
X-S 1368-814
Kanpmaðurinn ( Feneyjum
FramJiald af bls. 3.
Shijlod; og kaupmaðurinn (Har.
Björnsson og Valur Gíslasbn).
sem gaman hefir af leiklist. Aðal-
kvenlilutverkið leikur frú Alda Möll-
er prýðilega og af miklum skiln-
ingi. Og yfirleitt eru leikendurnir
svo samhentir og leikstjórnin svo
örugg, að það er ánægja að horfa
á leikinn. Meðal annara leikenda en
þegar hafa verið nefndir ber einkum
að minnast á Val Gíslason, Jón Aðils
Brynjólf Jóliannesson og Lárus Ing-
ólfsson.
Leiksviðsútbúnaðurinn, sem notað
ur er við sýningu leiksins,, er með
líku fyrirkomulagi og notaður var
í öndverðu á ensku leikhúsunum,
áður en leiksviðstæknin komst í það
horf, sem hún var síðar. Þarna eru
engar leiksviðsbreytingar, en eigi að
síður nýtur maður fyllilega þessa
ágæta Jeiks. Þar fer saman gaman
og mannviska og leikurinn „fer vel“
sem kallað er, þó að stundum virð-
ist svo sem þær persónurnar sem
áhorfandinn hefir samúð með, séu
að lenda í ógöngum.
Leiknum var tekið með miklum
fögnuði og mun verða langlifur á
leiksviðinu. Sigurður Grímsson hef-
ir þýtt hann á einkar viðfcldið mál.
Bókaíregn
Tvær stórmerkilegar bækur koma
út hjá Tónlistarfélaginu i dag. Eru
það Ijósprentaðar útgáfur af íslands-
vísum Jóns Trausta með teikning-
uni Þórarins sál. Þorlákssonar, braut-
ryðjandans í íslensltri málarálist,
og útgáfa sú af lögum við Passíu-
sálma Hallgríms Péturssonar er Jón-
as Jónsson safnaði skömmu fyrir
síðustu aldamót. Báðar munu þessar
bækur aðeins í höndum sárfárra
manna, voru enda gefin út í mjög
litlum upplögum, Íslandsvísurnar að-
eins í 150. í formála sínum að Pass-
íusálmunum segir Jónas meðal ann-
ars: „Úr Hólabókinni og Grallaran-
um liefir séra Hallgrimur valið lög-
in við Passíusálma sína, og eru þau
svo meistaralega valin við efni sálm-
anna, að óhætt er að fullyrða, að
livergi fari betur saman orð og
tónar í söngbókum vorum en einmitt
þar.“
í þessu safni er fjöldi laga er nú
munu sjaldan sungin, en eru með
þvi fegursta sem sungið hefir verið
á íslenskum heimilum í hundruð ára.
Fer vel á því að brautryðjandinn í
íslenskri tónmenningu liin siðari ár,
Tónlistarfélagið, beiti sér fyrir því
að Passíusálmarnir séu sungnir.
SYSTURNAR.
Framhald af bls.
En þá liafði Iiún ráðstafað öllu
sínu. Þau áttu að fá jörðina og
allt, sem hún lét eftir sig. Og
þau lifðu lengi eftir þetta.
Það var haft að orðtaki í
sveitinni um hríð, að sá sem
vildi dæma Yalborgu yrði að
vera Valborg. Ætti maður að
geta hatað eins og hún, yrði
maður að geta elskað eins og
hún.