Fálkinn - 05.07.1946, Blaðsíða 16
16
FÁLKINN
íslendingar! j
Það er ekki hálf ánægja að eiga íslendingasögurnar, ef j
Sæmundar edda
Snorra edda og
Sturlunga saga
fylgja ekki með
Hin þjóðkunna íslendingasagnaútgáfa, sem kennd er við Sigurð Kristjánsson bókaútgefanda, vegna þess, að
hann gaf y ð u r fyrstur manna kost á heildarútgáfu af íslendingasögunum, býður y ð u r ekki aðeins ALLAR
fslendingasögurnar strax I DAG, heldur og SÆMUNDAR EDDU, SNORRA EDDU og STURLUNGA SÖGU
við alveg ótrúlega lágu verði.
íslendingasagnaútgáfa Sigurðar Kristjánssonar er 8095
blaðsíður, en kostar samt ekki nema kr. 311.30 heft
Þegar pyngja íslendinga var stórum léttari, en hún er nú, þá þótti íslensku þjóðinni vænt um að geta eignast sinn dýr-
mæta bókmenntaarf — íslendingasögurnar — fyrirhafnarlítið með því að kaupa eina og eina Islendingasögu í einu eða
margar í senn, eftir þvi sem efni leyfðu. Þetta er mögulegt enn í dag! Það er hin þjóðkunna íslendingasagnaútgáfa Sig-
urðar Kristjánssonar, sem hér reið á vaðið — var brautryðjandinn!
Landkynning!
Allt fram að síðustu heimsstyrjöld var íslendingasagnaútgáfa Sigurðar Kristjánssonar einhver besta og traustasta landkynn-
ing, sem íslenska þjóðin átti völ á. Voru þá m. a. merkir bóksalar í Oxford, Cambridge, Leipzig, Oslo og Kaupmannahöfn,
sem höfðu alþýðuútgáfu Sigurðar Kristjánssonar jafnan á boðstólum. Nú síðustu mánuðina eru þessi sambönd að opnast
aftur og hafa þegar verið sendar íslendingasögur til bóksala í flestum þessara borga. svo að enn í dag er íslendingasagna-
útgáfa Sigurðar Kristjánssonar að kynna land og þjóð á erlendum vettvangi, enda má segja, að hún sé eina útgáfan, sem
það getur nú, sakir hins ótrúlega lága verðlags.
í dag
getið þér eignast ALLAR ISLENDINGASÖGURNAR ÓDÝRT ásamt SÆMUNDAR EDDU, SNORRA EDDU
og STURLUNGA SÖGU með því, að hringja í síma 3635, eða koma í
Bókaverzlun Sigurðar Kristjánssonar, Bankastr. 3
ATHUGIÐ!
Þér þurfið EKKI að gerast áskrifandi að Islendingasagnaútgáfu Sigurðar Kristjánssonar, vegna þess að þér
getið eignast allar íslendingasögurnar strax í DAG, eða eina eða fleiri í einu eins og ÞÉR óskið. íslendinga-
j sögurnar ÁSAMT Sæmundar eddu, Snorra eddu og Sturlunga sögu fást KEYPTAR hjá bóksölum um land
allt eða beint frá okkur burðargjaldsfrítt. — Munið: ENGAR ÁSKRIFTIR, EN SELJUM ÓDÝRT.
Þannig lítur hin þjóðkunna alþýðuútgáfa Sigurðar Kristjánssonar af Islendingasögunum út í HANDUNNU SKINNBANDI,
i.í'JIH** , I "<«***■ 1*1.