Fálkinn - 06.12.1946, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Ritstjóri: Skúli Skúlason
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6
Blaðið kemur út hvern föstudag
Allar áskriftir greiðist fyrirfram
HERBERTSprení
SKRADDARAÞANKAR
Nú ganga allir á skóla. Skólarnir
taka við börnunum ólæsum og ó-
skrifandi; það er rétt svo að heim-
ilin, sem áður voru aðal skóli
barnanna, fá að kenna þeim að tala.
Skólarnir eru góðir og sjálfsagðir
og veita betri kennslu en allur
þorri heimila getur veitt.
En það. er ástæða til að íliuga,
hvort ekki væri hægt að breyta
námsgreinum skólanna, að minnsta
kosti hinum svonefndu framhalds-
skóla, og' gera þær fjölbreyttari en
verið hefir. Fræði skólanna eru
nefnilega að sumu leyti hálf utan-
garna Við lífið sjálft. Þetta hafa þeir
fundið, sem komu á þeirri þörfu
umbót að kenna telpum i barna-
skólum svolitla undirstöðu í mat-
reiðslu, og drengjum að saga og
hefla spýtu.
En hversvegna er drengjunum i
skólum sveitanna ekki sagt neitt um
búskapinn, sem þeir i flestum til-
fellum ætla að leggja fyrir sig þeg-
ar þeir eru orðnir stórir. Og hvers-
vegna fá drengirnir í skólum bæj-
anna ekki að vita neitt um sjó-
mennsku. Þetta eru þó greinar, sem
i hag koma síðar. Flestir sjómenn,
sem koma í fyrsta sinn um borð
í skip, vita sáralítið um starf sitt.
Sveitadrengirnir eru betur staddir
að því leyti að þeir kynnast bú-
skapnum í daglega lífinu. En þó
hefðu þeir eflaust gott af að fá
nasasjón af ýmsum almennum und-
irstöðuatriðum búskapar í skólan-
um. Þar eig’a þeir að fá ráðningu á,
hversvegna bóndinn gerir þelita
svona eða svona, og hvað hann ger-
ir rétt og hvað rangt.
Skólafræðsla um lífsstarfið á að
sitja fyrir allri annari fræðslu. Hún
gerir einstaklinginn færari um að
leysa af hendi það starf, sem fyrir
honum liggur, og liún vekur áhuga
hans fyrir því. Það er svo oft talað
um að unglingarnir í skólanum læri
margt, sem þau liafa aldrei not af.
Þvi þá ekki að kenna þeim það
"sem næst liggur — lcynna þeim
það áþreifanlega, sem stendur i
sem beinustu sambandi við daglegt
líf og' starf?
Þá læra þau lífinu en ekki skól-
anum.
\
I
*
Karlakórinn Fóstbræður
Um þessar mundir minnist Karla-
kórinn Fóstbræður 30 óra afmælis
síns, og liafa meðlimir hans efnt til
hófs i Sjálfstæðishúsinu í tilefni
af því. En síðar í vetur hyggja
Fóstbræður á afmæliskórsöng.
Stofndagur kórsins er talinn 23.
nóv. 1916, en þá tók Jón Halldórs-
son við söngstjórn kórsins og hefir
haft liana ætíð síðan. Áður hafði
þó þessi kór starfað undir nafninu
Karlakór K. F. U. M., eða frá 1911,
og starfaði Iiann eingöngu innan
félgsskapar Ií. F. U. M., þar til
liann lagðist niður um aldamótin
1915—1916. Höfðu þrír menn
liaft söngstjórn á hendi, þeir Hall-
dór Jónasson, cand. phil., Hall-
grímur Þorsteinsson, organleikari
og Jón Snæland.
Er kór þessi leystist upp, þótti
ýmsum áhugamönnum innan hans
illa farið, og fóru á stúfana strax
árið 1916, í þeirri von að endur-
reisn væri möguleg. Það voru þeir
Hafliði Helgason, Hallur Þorleifs-
son og Jón- Guðmundsson, sem hér
ýttu úr vör. Árangur starfs þeirra
varð sá, að Jón Halldórsson hét
þeim fulltingi sínu og tókst á hend-
ur söngstjórn kórsins, sem strax
var reistur við, er málalyktir spurð-
ust. Kaus kórinn sér stjórn: Vigfús
Guðbrandsson, klæðskerameistari,
formaður; ritari Haraldur heitinn
Sigurðsson, forstjóri, og gjaldkeri
Guðmundur heitinn * Bjarnason,
klæðskerameistari. Tók kórinn þeg-
ar til starfa, og undirbúningur var
hafinn undir almenna «söngskemmt-
un fyrir bæjarbúa. Við þessa at-
burði miðar kórinn stofnun sína.
Um starf kórsins fram til þessa
má margt segja, en það yrði of
langt mál að fara að relcja það ná-
kvæmlega hér, og verður því stikl-
að á stóru. Eins og gefur að skilja,
þá liafa aðalkraftarnir verið helg-
aðir söngskemmtunum fyrir bæjar-
búa, og fyrsti slíki samsöngurinn
var haldinn i ,,.Bárunni“ þ. 25.
mars 1917. Söngmenn voru tuttugu,
og var söngnum vel tekið. — Á ár-
unum fyrir strið var það einnig
verulegur liður i starfi kórsins að
syngja um borð i skemmtiskip-
um, er hér áttu viðdvöl að sumar-
lagi. Og síðast, cn ekki síst, skal
þess getið, að kórinn hefir farið
margar skemmri og lengri söngfar-
ir. Árið 1926 fór hann í söngför
til Noregs, og tókst sú för með á-
gætum. Árið 1929 fór héðan 50
manna blandaður kór, undir stjórn
Sigfúsar Einarssonar, tónskálds, til
Danmerkur i boði Dansk Korfor-
bund fyrir blandaða kóra. Karla-
raddirnar i þann kór lagði Karla-
kór K. F. U. M. til að öllu leyti.
Tveim árum síðar fór kórinn enn
í utanför til Danmerkur, og þá i
boði danska kórsins Bel Canto.
Söng hann þá sjálfstætt ásamt kór-
um frá öllum hinum Norðurlönd-
unum. — Á síðastliðnu surnri gekkst
svo S. í. K. fyrir söngför um Norð-
urlönd. í söngflokknum voru söng-
menn úr „Fóstbræðrum“ og
„Geysi“, og söngstjórar voru Jón
Halldórsson og Ingimundur Árna-
son.
Árið 1936 skipti kórinn um nafn.
Var þá tekið upp nafnið Fóstbræð-
Einn af frægustu fiðluleikurum
álfunnar dvelur um þessar mundir
í Reykjavík, ásamt konu sinni,
sem er píanóleikari. Er það Emil
Telmányi. Hann hefir tvisvar áð-
ur komið hingað til landsins, ár-
in 1925 og 1939, og munu hljóm-
leikar hans frá þeim árum mörg-
um enn í fersku minni. Þau hjón-
in hafa undanfarna daga spilað
fyrir styrktarmeðlimi Tónlistarfé-
lagsins í Trípólíleikhúsinu og enn-
fremur eru þau ráðin af félaginu
til að lialda æskulýðshljómleika, þar
sem verkefnin eru valin með tilliti
til samliengis í músiksögunni til
yfirlits og fróðleiks fyrir liina upp-
vaxandi æskumenn, sem á hlýða.
Er þetta nýjung hjá okkur, sem
ur, en það var nafn á kvartett,
sem starfaði í Reykjavík á árunum
1905—1914, og var Jón Halldórs-
son einn þeirra Fóstbræðra. Hinir
þrír í þeim kvartett voru: Pétur
Halldórsson, Einar Viðar og Viggó
Björnsson.
Eins og áður er getið, tók Jón
Halldórsson við söngstjórn 1916. Þá
lofaði hann sér til eins árs, en nú
eru þau orðin þrjátíu,sem hann hef-
ir starfað fyrir kórinn. Kórinn á
heldur engum einum manni eins
mikið að þakka og Jóni.
Þessir menn hafa verið fórmenn
kórsins: Vigfús Guðbrandsson, Hall-
ur Þorleifsson, Björn E. Árnason
(tvívegiS), Guðmundur ólafsson
(tvívegis), Guðmundur Sæmunds-
son og Sigurður Waage.
Alls hafa 5 menn auk söngstjóra
starfað í kórnum urn 30 ára skeið
og fjölmargir í 10—30 ár. 1 kórn-
um eru nú 47 menn, en alls hafa
123 starfað í honum frá upphafi.
Núverandi stjórn skipa: Formaður
Sigurður Waage, ritari Holgeir
Gislason og gjaldkeri Friðrik Ey-
fjörð.
gæti orðið til gagns og gamans,
ekki sist þegar annar eins snilling-
ur á í hlut og hér.
Emil Telmányi er ungverskur að
ætt, fæddur i Ungverjalandi 22.
júni 1892. Hann var undrabarn og
liélt opinberlega fiðluhljómleika að-
eins 10 ára gamall. Fékk liann þá
glæsilegt tilboð um að ferðast um '
Evrópu til hljómleikahalds, þvi að
margir rnundu verða til að hlusta
á undrabarnið, en foreldrar hans
höfnuðu boðinu og töldu meira um
vert að liann notaði þessi ár til
skólalærdóms, enda nægur timi síð-
ar fyrir hinn uppvaxandi snilling
til að vinna fé og frægð. Hann út-
skrifaðist úr tónlistarskólanum í
Budapest árið 1911 og hafði hann
Framh. bls. 14.
Fiðlusnillinflurinn Emil Teimányi
riæsta blað Fálkans vErður jðlablaðið
1