Fálkinn - 26.03.1948, Side 7
FÁLKINN
7
H. P. Blandy vara-aðmíráll og
foringi Atlantshafsflota Banda-
ríkjanna stj.órnaði nýlega æf-
ingum sem fram foru í Miðjarð-
arhafinu.
Bróður Benesj vikið burt. —
Vójta Benesj, eídri bróðir
Benesj, forseta Tékkóslóvakíu,
hefir í 30 ár setið á þingi lands-
ins. Nú lxefir honum verið
varpað á brott við hreinsunina.
Iiér sést Vojta Benesj lxalda
ræðu um stjórnmál.
Þrenning. — skgldi vera hús-
næðisleysi í dýraríkinu líka.
Maður gæti ætlað það, úr því
að hundur, köttur og kjúkling-
ur eru > sömu körfunni.
Við gröf Masaryks forseta. — Sjöunda mars ár hvert eru
feiknin öll af blómum lögð á le.iði Masaryks, fyrrum forseta
Tékkóslóvakíu, föður Jan Masaryk utanríkisráðherra, sem
framdi sjálfsmorð fyrir skömmu. 1 ár hefði Thomas Masaryk
orðið 98, ára. Klement Gottwald og fní sjást hér við gröf-
ina á afmælisdaginn. Þau hafa lagt blómsveig á leiðið.
England—Egyptaland. — Fjár-
málasamningur var gerður í
janúar milli Englands og
Egyptalands. Samkvæmt samn-
ingum þessum láta Bretar af
hendi á þessu ári 21 millj. doll-
ara. — A myndinni sést utan-
ríkisráðherra Egypta, Ahmed
Khashaba Pasha skrifa nafn
sitt undir samninginn.
Búdda-munkar í Róm. — Nokkr
ir munkar af reglu Búdda hafa
verið á ferðalagi um Evrópu
og komu m. a. til Róm. Iiér
sjást þeir við gröf ókunna her-
mannsins, og þar lögðu þeir
krans.
Tengdasonur Trumans? 7
Bandaríkjunum gengur sií saga
7 ð Margaret Truman, dáttir
forsetans, sé trúlofuð, og manns
efnið sé Frank llandy, sonur
ritstjóra eins i Michigan. Hér
sést pilturinn.
Ólvmpíu-bærinn. — Englendingar eru nú í óðaönn að reisa
Ólympíu-bæinn fyrir keppendur á Ólympíuleikjunum. Er þetta
töluvert mikill bær, og þar koma margir til með að gista á
sumri komanda. Hér birtast myndir frá Ólympíu-bænum. Að
ofan sjást húsasmiðir vinna að eldhúsbyggingu, en að neðan
svefnherbergi.
# HXESSANVf COLA DMKKUK (Spur