Fálkinn - 21.05.1948, Blaðsíða 14
14
FÁLKINN
„Blandaðir ávextir"
Nýtt skemmtifélag, sem kallast
„Bláa stjarnan‘- hefir verið stofnað
hér í bæ og markmið þess er að
fjörg'a skemmtanalíf bæjarins. Standa
að því m. a. ýmsir þeir menn, sem
að undanförnu hafa lagt drýgstan
skerf til þess að glæða skemmtana-
lífið og halda uppi „humörnum"
meðal samborgara sinna. S.h þriðju-
dagskvöld bauð félagið upp á kvöld-
skemmtun i Sjálfstæðishúsinu. Byrj-
aði hún kl. 8% e. h., og fram til
kl. 11 komu fram 13 skemmtiat-
riði auk allra skritlanna, sem Har-
Á. Sig., kynnir kvöldsins, sagði milli
þátta. Hlé var aðeins 20 mínútur.
Frá 11—1 var stiginn dans. Skemmti
skráin var hin prýðilegasta og var
sumum atriðunum feikna vel tekið.
Karl Guffnmndsson kom tvívegis
fram með eftirhermur í mjög
skemmtilegu og nýstárlegu formi.
Tók hann m. a. fyrir þá Vilhjálm Þ.
Gislason, skólastjóra, séra Jón Auð-
uns, dr. Björn Sigfússon og séra
Jakob Jónsson. Var þessu atriði sér-
staklega vel tekið. Giiðrún Frederik-
sen söng þrívegis fallcg dægurlög.
Hreif hún áheyrendur mjög, hæði
með fallegum söng og leik. Fram-
koma hennar á leiksviðinu var til
mikils sóma. Frú Emilía Jónasdóttir
söng gamanvísur og sömuleiðis Al-
fred Andrésson. Var háðum atrið-
unum vel fagnað, svo og ungum
pilti, sem söng negrasöngva, og 3
ungum stúlkum, sem léku á git-
ara, sungu og jóðluðu. Leikþættir
voru einnig sýndir: „Ljónatemjar-
inn“ hét einn þeirra. Annar var um
skoplegan atburð á brúðkaupsnótt-
ina og sá þriðji gerist á veitinga-
húsi.
Vafalaust verða kvöldskemmtanir
„Bláu stjörnunnar" vel sóttar, því
að ])ar fæst mikill hlátur keyptur
vægu verði.
* * * * *
Söngmót
Kirkjukórasambands Reykjavík-
urprófastsdæmis.
Miðvikudagskvöldið 19, þ. m.
efndi Kirkjukórasamband Reykja-
víkurprófastsdæmis til söngmóts í
dómkirkjunni í Reykjavík. Sungu
þar 5 kirkjukórar úr Reykjavík eða
alls um 90 manns. Hver kór söng
3 lög sjálfstætt, og loks allir saman
3 lög.
Kórar þessir eru: Dómkirkjukór-
inn, söngstjóri dr. Páll ísólfsson;
Fríkirkjukórinn, söngstjóri Sigurð-
ur ísólfsson; Hallgrímskirkjukórinn,
söngstjóri Páll Halldórsson (Páll ís-
ólfsson stjórnaði kórnum í fjarveru
lians og Guðm. Gilsson var við org-
elið); Laugarne.skirkjukórinn, söng-
stjóri Kristinn Ingvarsson; Neskirkju
kórinn, söngstjóri Jón ísleifsson. —
Dr. Páll ísólfsson stjórnaði sameig-
inlegu Jögunum og lék einleik á
orgel (hátíðaleik eftir Liszt) í byrj-
un söngmótsins.
Á öllu landinu eru nú 124 kirkju-
kórar, og þegar hafa 9 kirkjukóra-
sambönd verið stofnuð. Á síðasta
ári (maí 1947—mai 1948) hafa 19
kirkjukórar verið stofnaðir. Starf
þeirra er yfirleitt með miklum blóma
og á s.l. ári héldu um 40 þeirra
hijómleika.
MERKIR TÓNSNILLINGAR.
Frh. af bls. (1.
hætti hann störfum við þessa hljóm-
sveit, enda liafði hann ærnum slörf-
um að gegna, öðrum, því að nú var
hann þegar byrjaður að vinna að
þvi menningarstarfi, sem hann helg-
aði síðan alla krafta sína, •— að
kynna sígilda tónlist í ýmislegu
formi.
Árið 1855 stofnaði hann til liljóm-
leikaflokka, . þar sem kynnt var
„kammer-musik“, og hafði fengið i
lið með sér ýmsa ágæta tónlistar-
menn. Þeirri starfsemi var haldið
áfram á ári Iiverju (að vetrinum) í
fjórtán ár samflcytt. eða til ársins
1869. Fr. áður, eða árið 1864, lióf
hann nýja starfseini, eða kynning
hljómsveitar-tónsmíða, á svipaðan
liátt, eða með hljómleikaflokkum, og
voru þeir hljómleikar haldnir í
Irving Hall í New York. Þeirr-i
starfsemi var lialdið áfram i fjögur
ár samfleytt. Þá varð á starfseminni
fjögra ára lilé, en 1872 voru sýmfóní
liljómleikarnir teknir upp aftur og
liahlið áfram til ársins 1878, undir
stjórn Th„ en það ár flutti hann frá
New York. Síðara tímabilið voru
hljómleikarnir haldnir í Steinway
Hall og voru liðsmenn í hljómsveit-
inni að jafnaði um 80 talsins.
Árið 1809 fór Th. í fyrsta leið-
angur sinn með stóra hljómsveit
til Austur- og Vestur-ríkjanna. Voru
i þeirri hljómsvcit uppliafleg'a 40
liðsmenn, en síðar urðu þeir 60.
Voru viðfangsefnin á hljómleikum
þessarar ferða-hljómsveitar valin á
svipaðan hátt og til hljómleikanna
í New York, •— horið fram nýtt og
gamalt af öllu tæi. en jafnan vand-
að til alls, sem best mátti verða.
Thomas hafð: verið meðlimur
filharmoniska félagsins í New York
frá 1853, en árið 1877 var liann
kjörinn hljómsveitarstjóri félagsins.
Árið 1880 lióaði liann enn saman
sínum gönilu liðsmönnum og kom
hljómsveit sinni upp að nýju. Með
þessari hljómsveit efndi hann nú til
„higli-class" sýmfóní-hljómleika, sem
voru ýmist svonefndir „alþýðu-
hljómleikar" eða „hljómleikar fyrir
unga fólkið1. Þeirri starfsemi liélt
liann áfram í átta ár, en varð þá
að hætta vegna fjárskorts.
Árið 1889 gengust efnaðir tón-
listarvinir í Chicago fyrir þvi að
stofnuð var symfoní-hljómsveit þar
í horg og kvöddu Tlieodore Thom-
as til að hafa á hendi stjórn hennar
og allar framkvæmdir. Var hljóm-
sveit þessi um skeið nefnd „Theo-
dore Thomas orchestra". Er annálað
starf hans fyéir þessa liljómsveit.
Ilér hefir verið lauslega rakinn
starfsferill þessa ágæta tónlistar-
manns. En það þyrfti langt mál til
])ess, að gefa mönnum liugmynd um,
svo að nærri sé nokkru lagi, hvilíkt
feikna starf Thomas innti af hendi
og hvílíka erfiðleika hann átti við
að etja. Það er til dæmis saga út
af fyrir sig, baslið, sem liann átti
í, þegar hann var að koma sér upp
sjálfstæðri hljómsveit. Þess verður
að minnast, að ]>að er á árunum
63—64 og hann þurfti að fá 80
valda hljóðfæraleikara. En þeir
voru þá ekki á hverju strái í Banda-
ríkjunum. Og svo cr dirfskan, —
að leggja út í þetta stórfyrirtæki
upp á eigin spýtur. Og loks þraut—
seigjan, — að halda því „gangandi"
árum sainan. Samtimis hefir hann
svo á hendi stjórn fílharmónisku
hljómsveitarinnar í 12 ár. En til
þess að það fyrirtæki bæri sig fjár-
hagslega, lagði hann fram mikinn
hluta af þeim launum, sem honum
har, •— ótilkvaddur — árum saman.
Og loks var hann hámenntaður
og stórbrotinn listamaður.
Þetta er aðeins óljós mynd af íón-
listarmanninum Theodore Thomas.
Eg hefði viljað hafa liana skýrari,
en rúmið, sem mér er ætlað gerir
mér þess ekki kost.
Thomas andaðist i Chicago 4.
janúar 1905.
BELGÍA.
Frumh. af bls. 11.
anframlciðslan skuli ganga til Banda
ríkjanna.
Þessi sanmingur hefir sætt mikl-
um árásum, og kommúnistar í
Belgíu segja, að verðið sem Banda-
ríkin borg'a sé hlægilega lágt. Þeir
heimta að belgiskr stjórnin segi upp
samningnum og selji unnið úran
þjóðum, sem hafa skuldbundið sig
til að nota það eingöngu til frið-
samlegra starfa.
Spaak forsætisráðherra hefir neit-
að að svara spurningum þessu við-
víkjandi, sem kommúnistar hafa lagt
fyrir hann. Eftir að hann fyrir
nokkru liafði neitað að birta samn-
inginn sagði hann: „Samningurinn
gekk í gildi meðan á styrjöldinni
stóð, og var framlag til hernaðar-
þarfa af Belga hálfu. Hann gildir
enn. Það kann að vera að atóm-
nefnd UNO ger; síðar ráðstafánir
er valda kunna því, að samningn-
um verði breytt.“
En marg'ir liafa áhyggjur af fjár-
hagslegri framtíð .Belga. Framfærslu
kostnaðurinn hefir liækkað um 20%
á síðasta ári, og þrátt fyrir úran-
samninginn er útflutningur Belga
til U.S.A. aðeins 1/10 af innflutn-
ingnum þaðan. Það spyrja margir
sjálfa sig hve lengi þesskonar vel-
geng'ni muni haldast.
*****
Ráðning á myndaþraut:
Brotin nr. 5, 4 og 7 eru
úr hinum diskinum. En 1, 2, 3, 6,
8 og 9 falla vel saman.
SPILASKULD - ÆBUSKULD.
í fyrsta skipti i sögu Bandaríkj-
anna hefir dómari kveðið upp úr-
skurð um, að spilaskuld sé bind-
andi. Dómurinn var kveðinn upp af
William McKnight í hjónaskilnað-
arbænum Reno i Nevada. Hingað
til hafa spilaskuldir ekki verið tald-
ar kræfar að lögum. En í þessu til-
felli var maður dæmdur til þess að
greiða 15.600 dollara, sem liann
hafði tapað i poker.
Halló Kína! — K ínverski sendi-
herrann í London sést hér vera
að opna talsímasambandið milli
Lotidon og Kína, sem nú loks
hefir verið tekið upp aftur efi-
ir stríðið. Sendiherrann er að
tala við borgarstjórann í Shang-
hai.
V'ega veiðina. — Truman forseti
er veiðimaður mikill, eða að
minnsta kosti áhugamaður í
veiðiíþróttinni, Mynd þessi er
tekin af honum í Iíey West á
Florida. Leahy aðmíráll og W.
A. Saunders kapteinn, veiðifé-
lagar hans vega veiði dagsins
með honum.
*****
22 SINNUM TVÍBURA!
Háskólinn í Rómaborg hefir sér-
staka deild, sem fæst við skrásetn-
ingu og rannsókn Ivíburafæðinga.
Eitt af því merkilegasta, sem fram
hefir komið í þersum skrám er að
kona ein á Sikiley hefir eignast
börn 22 sinnum — og alltaf tví-
bura. Öll 44 börnin lifa eins og
blóm í eggi.
HORFST í AUGl' VID ÍSBJÖRN.
Það bar við í vetur að loftskeyta-
maðurinn á Isfjord Itadio á Spits-
bergen brá sér út eitt kvöldið til
þess að gá til veðurs, og vissi þá
ekki fyrr til en stór birna stóð and-
spænis honum og g'lápti á hann.
Manninum varð ráðafátt um stund
en komst svo inn og náði í byssu.
•Birnan varð að fórna lífi sínu fyrir
forvitnina.