Fálkinn - 04.02.1949, Qupperneq 3
FÁLKINN
3
Til hægri:
Þorsteinn Ö. Stephensen sem Voltore
lögbókari.
Til vinstri:
Brynjólfur Jóhannesson sem Cor-
baccio og Valur Gíslason sem Cor-
vino.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
»VOLPOS E«
í liinum upphaflega húningi Ben
Jonsons var leikrilið „Volpone" að
ýmsu frábrugðið því, sem nú er.
Austurríska skáldið Stefan Zweig
hefir fært það i búning, sem betur
þykir henta leiksviði vorra daga,
og sumar persónurnar liefir liann
umskapað i meðferð sinni. Volponc
Ben Jonsons var fyrst og fremst
nöpur ádeila á fégræðgina, sett fram
á meistaralegan hátt í hnitmiðuðum
Ijóðlínum. Með breytingum Zweigs
fær leikurinn léttari blæ. Gáskinn
og iéttlyndið fær öndvegissessinn,
en fégrægðin fær sömu ádeiluna og
fyrr. — Aðalþráður leikritsins í
hinum nýja búningi er þessi:
Volpone er auðkýfingur frá
Smyrnu, sem efnast liefir á svik-
um og prettum. Hann er búsettur í
Feneyjum þegar leikurinn gerist,
en það er á endurreisnartímabilinu.
Snýkjugestur liáns Mosca, ungur og
glæsilegur maður, en flagari hinn
mesti og svallari, framkvæmir
lirekkjabrögðin, sem húsbóndi lians
hagnast á, og hugsar þau flest upp.
Léttúð og kænska einkenna Mosca,
og í hinum nýja búningi leikritsins
er hlutverk lians mesta hlutverkið
og geðfellt mjög, en bófabragurinn,
sem Ben Jonson hafði sveipað um
Mosca, hverfur í skugga kænskunn-
ar og lífsgleðinnar hjá Zweig. Karl-
arnir, sem þeir félagarnir eiga í
liöggi við og féfietta, eru Voltore
lögbókari, Corvino kaupmaður og
Corbaccio okrari. Allir eru þeir í-
mynd fégræðginnar og þrælar henn-
ar. Siðgæðishugmyndir allár hverfa
fyrir roða gullsins eins og dögg fyr-
ir sólu. Sakleysingjar liijóta dóm i
stað siðleysingja, ástriðurnar svella
og spillingin dafnar i skjóli auð-
blekkts yfirvalds og lagarefa. At-
burðarásin er hröð og fjörug. Enda
lok leiksins eru önnur í búningi
Zweigs en Jonsons. Nú liljóta þeir
Eftir Ben Jonson og
Stefan Zweig
Einar Pálsson sem Mosca og Har-
alilur Björnsson sem Volpone.
ekki sömu örlög Volpone og Mosca.
Volpone fær að kenna á því, að
lærisveinninn tekur læriföðurnum
fram, en hinn lífsglaði Mosca er
vegsamaður í „happy end“ formi
Zweigs, þótt Ben Jonson sendi hann
sömu leiðina og húsbónda hans.
Þýðing Ásgeirs Hjartarsonar á
Volpone er mjög góð og nýtur sín
með ágætum. Hver setningin ann-
arri gullvægari og allar hitta beint
í inark. Af þeirri ástæðu ber nauð-
syn til þess, að leikendur séu skýr-
mæltir, ef leikritið á að ná tilgangi
sínum.
Ldrus Pálsson annast leikstjórn,
og er hún góð að vanda. Leikendur
eru þessir:
Haraldur Björnsson leikur Volpone,
Einar Pálsson leikur Mosca, Þor-
steinn Ö. Stephensen leikur Voltore
lögbókara, Valnr Glsiason Corvino
kaupmann, Hildur Kalman Colombu
eiginkona lians, Corbaccio okrara
Brynjólfur Jóhannesson, Leone sjó-
liðsforingja Árni Tryggvason, Can-
inu daðursdrós Edda Kvaran, dóm-
arann Gestur Pálsson og lögreglu-
foringjann Steindór Hjörleifsson.
Einar Pálson, sem fer með stærsta
hlutverkið, leikur hér i fyrsta sinn
hlutverk lijá Leikfélagi Reykjavikur,
en áður er liann kunnur úr leiksýn-
ingum Menntaskólans í Reykjavík,
Einar er fæddur i Reykjavík 10.
nóv. 1925, sonur dr. Páls ísólfsson-
ar og konu lians Kristínar Norð-
mann. Hann lauk stúdentsprófi 1945.
Árin 1946—’48 stundaði hann leik-
nám við Royal Academi of Drama-
tic Arts í London og lauk þar prófi
s.l. vor. -— Leikur Einars i Volpone
er stór persónulegur sigur fyrir liann
Haraldur Björnsson sem Volpone og
Hildur Kalman sem Colomba.
og islenskri leikstarfsemi er mikill
fengur að slíkum kröftum.
Hildur Kalman, sem leikur Col-
ombu, leikur hér einnig fyrsta hlut-
verk sitt hjá Leikfélagi Reykjavík-
ur eftir heimkomuna til íslánds,
en hún hefir stundað leikstarfsemi
erlendis undanfarin ár, er hún hafði
lokið prófi frá Royal Academi of
Dramatic Arts 1944. Coiomba er svo
litið lilutverk, að það sýnir engan
veginn, hvað í leikkonunni býr.
Hildur er dóttir Mörtu og Björns
Kalman.
Árni B. Tryggvason, sem leikur
Leone sjóliðsforingja, fer hér einn-
ig með fyrsta stóra hlutverkið lijá
L. R. Hann liefir stundað nám hjá
Lárusi Pálssyni undanfarin 2 ár.
í dómsal.
Dr. Helfli Pjeturss
lálinn.
Hinn mikli visinda- og fræðimað-
ir, dr. Helgi Pjeturss, lést föstu-
Jaginn 28. jan. s.l. nær 77 ára gam-
all.
Dr. Helgi var mjög kunnur fyrir
láttúrufræðirannsóknir sinar og
önnur vísinda- og fræðistörf, eink-
im hcfir hann lilotið viðurkenningu
fyrir kenningar sinar í sambandi
við jarðsögu íslands.
Foreldrar dr. Helga voru Anna
S. Vigfúsdóttir Thorarensen og Pét-
ur Pétursson, bæjargjaldkeri. Stúd-
entsprófi lauk Helgi árið 1891, en
kandidatsprófi í náttúrufræði og
landafræði 1897. Doktorsritgerð um
Kaupmannaliafnarháskóla 1905.
Árni er sonur hjónanna Margrétar
Gisladóttur og Tryggva Jóliannesson-
ar frá Hrisey. Hann lauk gagnfræða-
prófi 1944.
Ben Jonson er fæddur í London
1573. Hann var sonur prests af að-
alsættum, sem lifði það ekki að sjá
son sinn. Móðirin giftist þá húsa-
smið. Á unga aldri strauk Ben Jon-
son að heiman og gerðist málaliði
í Niðurlöndum, en hvarf síðan aftur
til fæðingarhorgar sinnar og gerð-
ist leikari og leikritahöfundur. Þá
gerðist sá atburður, að hann varð
einum samleikara sínum að bana.
Það var í einvígi. Fyrir það hlaut
Ben Jonson fangelsisdóm og var
brennimerktur. Eftir að hann kom
aftur úr fangelsi varð hann víðfræg-
Frh. á bls. H.
Einar Pálsson sem Mosca og Edda
Kvaran sem Canina daðurdrós.