Fálkinn - 18.02.1949, Blaðsíða 14
14
FÁLKINN
EFTIRSTÖÐVARNAR.
• Frh. af bls 6.
una, teiÖ, steinolíuna; lyktin af
sápunni var sterkust. Lampinn í
loftinu varpaði frá sér fölu ljósi,
sem var svo dauft að það komst
ekki inn i krókana. Á rúðunni var
grá, rök liimna. Og henni fannst að
ekkert í veröldinni gæti verið jafn
ömurlegt og sveitaverslun.
Búðin var hálffull af fólki eins
og venjulega á greiðsludögum. Það
voru mestmegnis konur, þöglar og
líflausar, það var eins og þær þekkt-
ust ekki þegar þær sáust þarna á
kvöldin. Allt öðruvísi en þegar þær
skutust inn á morgnana til þess að
kaupa sér eitthvað gott.
Það var líkast því að maður væri
kominn í kirkju þarna. í kórnum
kaupmaðurinn með fína, hvíta svuntu
eins og rykkilín, bograndi yfir bók-
um sinum. Ffanni Roland renndi
augunum yfir aliar liillurnar, sem
voru í skugga, hvítt húðarborðið
með grópum og kvistum, vigtina og
járnlóðin, svörtu tedunkana með 1,
2, 3 og 4 máluðu með gulu, og
sápuhlaðana. 1 næstu viku mundi
hún standa í búð með rauðu borði,
messingsvigt og kaupmanni i grá-
um siopp.
Enginn sagði neitt nema gott
kvöld. Ein konan leit við og starði
á Ffanni af því að hún var með
herðaskjól en ekki sjal, eins og hún
var vön. Þegar kom að Ffanni, sagði
kaupmaðurinn ekki neitt, því að
hún borgáði allar eftirstöðvarnar.
Hann gaf lienni tiu shillinga í af-
slátt — hún ókyrrðist við þetta þvi
að hún hafði ekki búist við að fá
nema hálfan þriðja. Henni hafði ekki
dottið í hug á leiðinni, að hún hefði
borgað alls yfir tvö þúsund pund
í þessari verslun siðan hún giftist.
Svo keypti hún eitthvað smávegis
og borgaði það um leið.
»Eg býst ekki við að ég komi
hér oftar,“ sagði hún. Kaupmaður-
inn kinkaði kolli til að svna að
hann skildi, og liún fór út, fitlaði
eitthvað við klinkuna og lokaði svo
vel að baki sér. Hún leit inn um
gráan gluggann og sá kaupmanninn
bogra yfir bók næsta viðskiptavin-
arins.
NORÐURSETA.
Frh. af bls. 11.
Svíþjóð, Grænland: íbúar þessara
landa kalla sig að nokkru leyti
kristna, en eru án nokkurrar trúar,
og án játningar, og hafa aldrei ver-
ið skírðir; en sumir þeirra, sem á
yfirborðinu eru kristnaðir, trúa á
Þór og Óðin.“ Þetta er sannað mál
um Gautland og Svíþjóð, en heim-
ildir þessu til sönnunar vantar held-
ur ekki hvað Grænland snertir. í
tiltölulega ungu handriti, er var í
eign próf. Fr. R. v. Weisers i Inns-
bruch segir svo um Grænland:
„íbúar þess eru algerlega siðlausir
menn, miklir vexti eins og risar.
Þeim hefir enn ekki verið boðað
evangeliið, og þeir hafa jafnvel varla
haft spurnir af þvi.“ í Grænlands-
kröniku sinni segir Lyschander sagn-
ritari hjns norsk-danska konungs
um 1600 eftir gömlum bréfum er
send voru til Róms, frá trúboði Ei-
ríks II. biskups i Steinnesi í Vestri-
byggð meðal þessa heiðna fólks í
Norðursetu. Fleiri heimildir segja
frá prestum í Norðursetu að sumr-
inu, og er iðngrein þeirra ekki ó-
kunn. — Allt þetta heiðna fólk hlýt-
ur að vera í Norðursctu því þegar
um 1100 voru bændabyggðirnar á
Grænlandi orðnar vel kristnar, og
voru það jafnan síðan. En i jörð í
Norðursetu hefir ekki fundist eitt
einasta krossmark, en hamar Þórs
er algengasta áletran á jarðfundn-
um hlutum þar.
Atlamál liin grænlensku eru ort af
seta svo langt vestur í lieimi, að
hann liefir engar spurnir af stór-
mennsku þeirri, er ríkti í sveita-
bæjum í bændabyggðum Grænlands,
hvað þá við hirðir þjóðhöfðingja á
Norðurlöndum. Högna og Gunnari
er lýst sem búðsetumönnum. Þeir
fara á bát yfir fjörð við fimmta
mann til móts við Atla Húnakonung,
er dregið hafði saman 30 manna
sveit! Allt annað er eftir þessu, svo
kvæðið er ómetanleg lýsing á lífi
þjóðar vorrar i Norðursetu. Lesið
það í Sæmundar-Eddu.
Að þessi víðáttumikla búðsetu-
mannabyggð háfi verið til felst og
í nafninu Norðurseta, því það merk-
ir svæði byggt af búðsetumönnum.
Hinar sifelldu frásagnir um frá-
fall frá kristinni trú á Grænlandi
um aldirnar merkir það, að bænd-
ur flytja sig úr bændabyggðunum
(af jörðum kirkjunnar) vestur og
norður í Almenningana og fara
að lifa innan um heiðið fólk. Árið
1342 fluttu allir Vestribyggðarmenn
sig yfir til Vesturheims. En ekki
verður sannað, að landbúnaðurinn
í Eystribygð liafi verið gefinn upp
með öllu fyrr en um 1700.
Þessi flutningur fólks úr bænda-
byggðinnni í borgir, eða ef þær
voru ekki til i búðir við sjóinn
er sérkennilegur fyrir öll Norð-
urálfulönd á miðöldum og raunar
fram til þessa dags. Ekkert ger-
manskt land átti jafnauðuga og á-
gæta almenninga sem Grænland,
einkanlega þó i hlutfalli við gæði
búlandanna. Hvi skyldu þá almenn-
ingar Grænlands ekki hafa byggst?
Bygging almenninga varð ekki hindr-
uð, því þar var aflað hinna dýr-
mætustu útflutningsvara Grænlands,
er áður eru nefndar, og gerðu það
að verkum að mögulegt var að halda
uppi siglingasambandi milli Norður-
álfu og Grænlands. Og þegar þær
tók undan og farið var að selja þær
til duggara við Markland um og eft-
ir 1500 lögðust siglingarnar frá
Norðurlöndum til Grænlands niður
eins og Gísli biskup Oddsson segir
i annál sínum eftir heimild í skjala-
safni Skálholtskirkju.
Kennarinn: — Úr liverju eru
skórnir þínir gerðir, Nonni?
Nonni — Úr leðri.
Kennarinn: — Og hvaðan kemur
leðrið?
Nonni: — Úr nautshúðinni.
Kennarinn: —■ Hvaða skepna sér
þér þá fyrir skóm og keti?
Nonni: — Hann pabbi minn.
Dóra: — Ekki skil ég hvaða púð-
ur þér finnst i honum Ragnari.
Hann heldur ekki upp á Ibsen,
hann heldur ekki upp á Bernhard
Shaw og hann lieldur ekki upp á
Shakespeare!
Nóra: — En hann heldur upp á
mig.
Stjörnulestur
Eftir Jón Árnason prentara
Nýtt tungl 27. febrúar 19k9.
Alþjóðagfirlil.
Loft og vatnsmerkin eru sérstak-
lega áberandi i áhrifum. Tilfinning-
arnar eru ráðandi að nokkru og er
liætt við að þær liafi meiri álirif á
ákvarðanir en heppilegt er. Þó mun
hugsanahæfileikinn sennilega koma
við sögu og jafna að nokkru, þvi af-
stöður þessar eru fremur góðar. —
Sól og tungl eru í sterkri afstöðu
til sólmyrkvans 1. nóv., en ekki er
auðvelt að segja hvort það skerpir
eða dregur úr þeim áhrifum. Þó
virðist mér þau styrkja þau heldur.
Lundúnir. — Nýja tunglið í 5.
húsi. Hefir slæma afstöðu. Örðug-
leikar koma í ljós í leikhússtarf-
semi og virðast áberandi. -— Júpíter
í 4. húsi. Hefir slæma afstöðu. Örð-
ugleikar geta komið til greina hjá
landbúnaðinum og landeigendum.
»— Úrán í 9. húsi gefur góðar af-
stöður. Nýjar vísindalegar uppgötv-
anir geta komið í Ijós. — Satúrn í
11. liúsi hefir slæmar afstöður
Stjórnin á í örðugleikum og breyting
gæti átt sér stað i stjórninni. Þetta
mun gerast i sambandi við þingið.
— Neptún í 1. húsi Hefir slæmar
afstöður. Þá munu og saknæmir
verknaðir koma í Ijós og leynilegur
áróður kemur til greina.
Berlín. — Nýja tunglið i 5. húsi.
.— Örðugleikar i sambandi við leik-
liús og leikarastörf. •— Merkúr og
Venus í 4. liúsi. Er þetta ekki veru-
lega sterk afstaða. Þó ætti landbún-
aðurinn að hafa góðar afstöður og
ýmislegt verður gert til þess að lyfta
undir og lagfæra landbúnaðinn. —
Júpiter í 3. húsi. Að líkindum nmnu
samgöngur og rckstur þeirra vera
orðnar frekar kostnaðarsamar. Einn-
ig útgáfustarfsemi undir nokkrum
örðugleikum, einnig póstgöngur. —
Utanrikisverslun ætti að aukast, þvi
Úran er í húsi þessu og liefir góðar
afstöður. — Plútó og Satúrn í 10.
húsi. örðugleikar nokkrir og ólieil-
indi í sambandi við störf ráðend-
anna.
Moskóva. — Nýja tunglið er í 4.
húsi. Mars og Venus voru þar einn-
ig. Þetta er ekki verulega góð af-
staða. Landbúnaðurinn mun vekja
mikla athygli og ýmsir örðugleikar
munu koma i Jjós á þessum vett-
vangi. Aukinn kostnaður mun koma
í Ijós í samgöngum og rekstri sam-
göngutækja. — Satúrn í 10. húsi.
Er þetta örðug afstaða fyrir ráðend-
nrna og dauðsföll h'áttsettra manna
eru sýnileg, því að slæmar afstöður
eru milli Saturns og Sólar. Neptún í
11. húsi. Undangraftarstarfscmi með-
al ráðendanna og jafnvel í aðal-
ráðinu sjálfu. — Úran i 8. húsi.
Dauðsföll vegna sprenginga og
sjálfsmorð geta átt sér stað.
Tokgó. — Nýja tunglið í 1. húsi;
ásanit Mars og Vcnus. — Afstöðurn-
ar eru fremur slæmar og því má
búast við óánægju og óróleik meðal
almennings og slæmu heilsufari.
Saknæmir verknaðir gætu kom-
ið fyrir og konur og börn verða
fyrir illri meðhöndlun. — Úran
í 4. húsi. Þetta er ekki beinlínis
góð afstaða. Sprengingar gælu ált
sér stað í námum og og vatnsveitu-
fyrirtæki i hættu. Slæmar afstöður
fyrir stjórnina og andstæðingar
hennar fá byr í seglin. — Satúrn í
'7. liúsi. Hefir slæm áhrif á við-
skipti við önnur ríki og tafir í
þeim efnum koma i Ijós.
Washington. — Merkúr er i 7.
húsi. Hefir góðar afstöður. Bendir
á heppni í samningum og viðskipt-
um við aðrar þjóðir. Utanríkisstarf-
semin undir mjög góðum áhrifum
og líf og fjör í þcirri starfsemi með
lieppni. — Nýja tunglið er í 8. liúsi.
Bendir á dauðsfall meðal háttsettra
manna og konur og börn gætu lát-
ist. — Uran í 11. húsi. Örðug atvik
geta átt sér stað í þinginu, sem
yrðu stjórninni alvarleg viðfangs-
efni. — Júpíter í 6. húsi. Bendir á
aukin útgjöld til liers og flota. •—
Satúrn í 2. liúsi. Þetta er örðug af-
staða fyrir bankastarfsemi, verð-
bréfaverslun og tekjur hins opinbera
munu minnka.
ÍSLAND.
6'. hús. — Nýja tunglið er i húsi
þessu. — Verkamenn og málefni
þeirra verða mjög á dagskrá og eru
aðstæður fremur örðugar. Barátta
og ágreiningur mun koma í Ijós i
þessum greinum. Innflutningstafir á
ferðum.
1. hús. — Merkúr ræður liúsi
þessu. — Hefir góðar afstöður. Auk-
ið framkvæmdaþrek kemur í ljós og
áhersla lögð á fræðslu almennings.
2. hús. ■— Neptún er í liúsi þessu.
•— Bendir á óheppilegar tiltektir í
fjármálum, lögleysur og sviksemi.
3. hús. — Mars ræður húsi þessu.
— Ilefir slæm áhrif á flutningastarf-
semina og koma þau frá hendi
verkamanna og viðskipum jieirra
við yfirráðendur.
4. hús. — Júpiter er i húsi þessu.
•— Afstaða þessi ætti að vera heppi-
Icg fyrir landbúnaðinn og bendir
á gott veðurfar. En afstaða ]>eirra er
ekki beinlínis ákveðin og getur því
orðið seinna vart við hana.
5. hús. — Merkúr ræður húsi
þessu. — Aukin starfsemi í leiklist
og ný leikrit koma til sögunnar.
Barnafræðsla undir góðum áhrifum.
7. hús. — Mars ræður húsi þessu.
— Þetta er að ýmsu leyti örðug af-
staða gagnvart öðrum ríkjum og
erfiðlcikar eru sýnilegir í utanríkis-
málum.
8. hús. — Mars ræður húsi þessu.
— Bendir á dauðsfall vegna elds,
sprenginga eða slysa.
.9. hús. — Venus ræður húsi þessu.
•— Hefir slæmar afstöður, svo líklegt
er að utanríkissiglingar verði undir
örðugum áhrifum og tafir i verslun
og viðskiptum.
10. hús. ■— Úran er i liúsi þessu.
— Bendir á ófyrirsjáanlegar og at-
hugaverðar afstöður gagnvart sljórn-
inni og hún verður að fara mjög
hyggilega að ráði sínu ef hún vill
halda velli.
11. hús. ■—- Plútó og Satúrn eru i
húsi þessu. — Þetta er ekki álitleg
afstaða fyrir framgang þingmála.
Örðugleikar koma í ljós, sem gefa
stjórninni mjög vandasamt verkefni
að greiða úr.
12. liús. — Engin pláneta var i
húsi þessu og hefir það því eigi
eins sterk áhrif og ætla mætti.
Yfir höfuð er framkvæmdaþrekið
ekki öflugt og stöðnun er frekar
sýnileg frá almennu sjónarmiði.
Ritaö 5. febr. 1949.