Fálkinn


Fálkinn - 17.06.1949, Síða 14

Fálkinn - 17.06.1949, Síða 14
14 FÁLKINN MÁL OG MENNING Ný félagsbók: Kristinn E. Andrésson, magister: íslenskar nútímabókmenntir 1918 -1948 'Auk yfirlitskafla um þróun bókmenntanna eru ýtarlegar ritgeröir um öll helstu nútímaskáld og rithöfunda á Islandi. Davíð Stefánsson, Stefán frá Hvítadal, Tómas Guðmundsson, Stein Steinarr, Guðmund Böðvarsson, Jón Helgason, Snorra Sjartarson, Sigurð Nordal, Gunnar Gunnarsson, Guðmund Kamban, Kristmann Guðmundsson, Guðmund G. Hagalín, Þórberg Þórðarson, Gunnar Benediktsson, Halldór Kiljan Laxness, Halldór Stefánsson og marga fleiri. Bókin er yfir 400 bls. í sldrnisbroti. Ný skáldsaga: Dauðsmannse/ JÓHANNES ÚR KÖTLUM: Jóhannes úr Kötlum kemur hér fram sem nýr þroskaður skáldsagnahöfundur. Sagan gerist í sveit fyrir aldamót- in, höfuðpersónan er Ófeigur grallari, kotbóndi og lista- maður, höfðingi i skapi og sérkennilegur. Sagan er fjör- lega rituð og mjög skemmtileg. Nýtt tímaritshefts Efni m. a.: Kr. E. A.: Þqrbergur Þórðarson. H. H.: Ummyndun á útidyraþrepum. Þórbergur Þórðarson: Úr dagbók mahatma Papýli. Þórbergur Þórðarson: Úr bréfi til Láru. Kvæði eftir: Snorra Hjartarson, Stein Steinarr, Anonymus. Halldór Kiljan Laxness: Lítil samantekt um útilegumenn. Björn Tb. Björnsson: Opinbert listasafn á íslandi. Sverrir Kristjánsson: Post mortem. Hallgrímur Jónasson: Tvær myndir frá örlagadegi. Þórunn Magnúsdóttir: Eftir er enn yðvarr Iilutur. Umsagnir um bækur eftir: Ásgeir Hjartarson, Björn Sigfússon, Halldór Stefánsson. Félagsmenn eru vinsamlega beðnir að vitja bóka sinna sem fyrst. BÓKABÚD MÁLS 06 MEHNIHGAR Laugavegi 19. Ferðaminningar og sjóferðasögur Sveinbjarnar Egilson eru komnar í bókaverslanir. r Skemmtilegri bók er ekki fáanleg. Magnús Jónsson prófessor segir m. a. um Ferðaminningar: „Sveinbjörn Egilson er Iiklega meðal þeirra íslendinga, sem víðist bafa farið og í flest ratað, og er þó ekki gotl um það að. segja. En Sveinbjörn hefir það umfram reynslu og ævintýralíf sjómanna yfirleitt, að hann er menntaður maður, og verður því meira úr því, sem hann Iiefir lieyrt og séð, en almennt gerisl og getur sagt svo skennntilega frá því á prenti, að það er dauður maður, sem ekki fylgist með“ .... „Eg fyrir mitt leyti gat ekki liætl fyrri en ég var búinn.“ Friðrik á Brekkan segir: „.... Það er skjótast af þessari bók að segja, að hún þolir fyllilega samanburð við flestar erlendar ferðasögur, sem ég þekki til, og eru ])ó sumar þeirra rit- aðar af snilld" .... Einhverju hispursfólki kann ef til vill að finnast full ljóst og yfirdrepsíáust sagt frá skuggahliðum bafnarbæjanna og lífi sjómanna þar. En ég held að slíkar aðfinnslur væru ástæðulausar. Hér er aðeins skýrt frá því, sem fyrir augun ber — illu og góðu — og það er gert látæðislaust og af fullri hreinskilni.“ Lúðvík Kristjánsson segir: „Ferðaminningar Sveinbjarnar Egilson fela í sér slíka neista, að þær munu biaJda nafni hans á lofti, löngu eftir að allt annað sem liann hefir ritað er fallið i gleymsku og dá.“ Um náíega tvo lugi ára sigldi Sveinbjörn um flcst heinisinsliöf, lengst með Englendingum, en einnig á dönskum, norskum og sænskum skipum. Hann var á stóruni skipum og smáum, seglskipum og gufuskipum, átti stundum góða vist, stundum illa, kynntist bæði prýðilegum fardrengjum og misyndismönnum. Ósjaldan fór hann milli Englands og Indlands og oft lá leiðin um Suezskurð. Einnig sigldi liann lil Suður-Ameríku. Á ferðunum kynntist liann lífi farmanna í öllum myndum þess, þoldi súrt og sætt í hafnarborgúnum', fór ekki varhluta af sjúkdómum né plágum, sem þjá norræna menn í hitabeltislöndum. Síðan samdi liann úr minn- ingum sínum frá þessum árum hina stærstu ferðabók og einhverja liina vinsælustu, sem íslenskur maður befir samið. Kaupið í dag Ferðaminningar og sjóferðasögur Sveinbjarnar. Þér fáið ekki betri bók né skemmtilegri. Bókaverslun ÍSAFOLDAR

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.