Fálkinn - 24.06.1949, Side 5
FÁLKINN
5
iskan“ blæ, þau eru þrungin af
lífi, litauðgi og birtu. Þess vegna
liefir orðið að leggja sérstaka
alúð við prentun myndanna í
bók hans. Litasamsetningin er
svo margbrotin og erfitt að ná
lienni á prent. En svo vel eru
þessar litmyndir gerðar, að
hreinustu furðu sætir.
Ásgrímur liefir aldrei starf-
rækt málaraskóla, en margir af
bestu listamönnum lahdsins
hafa notið liandleiðslu lians, þ.
á. m. Jóhannes Kjarval, Sigur-
jón Ólafsson, Sveinn Þórarins-
son og Þorvaldur Skúlason.
Einnig munu flestir þeir Islend-
ingar, sem eitthvað liafa strokið
úr pensli á íéreft, hafa orðið
fyrir áhrifum frá Ásgrimi, beint
eða óbeint.
Ásgrimur er fæddur í Rúls-
staðahjáleigu í Gaulverjabæjar-
hreppi i Árnessýslu 4. mars
187(5. Hann ölst upp við vinnu
og strit eins og flestir i þá daga.
Hann sinnti hæði störfum til
sjávar og sveita og' var á ýms-
um stöðum. Um skeið vann hann
að húsamálningu á Bíldudal og'
ágerðist þá mjög löngun hans til
þess að mála myndir af ýmsu
því, sem fyrir augun bar.
Rúmlega tvítugur að aldri
réðst Ásgrímur utan lil náms.
Hann var fátækur, en duglegur
og viljasterkur, svo að honum
tókst að klífa upp erfiðan bratta
námsáranna við mikla sæmd.
Dvaldist hann lengst af i Dan-
mörku og var m. a. þrjú ár :i
listaháskólanum í Charlotten-
borg.
Fyrsta sýning Ásgríms var
haldin 1903 í húsi, þar sem nú
stendur Útvegsbankinn. Fjór-
árum síðar fór hann í náms-
ferð til Ítalíu og varð hann þar
fyrir djúpum áhrifum, einkum
frá impressionistunum frönsku.
Margar mvndir Ásgríms eru
mjög þekktar. Ein þeirra er
Hjaltastaðaldáin, sem birtist á
forsíðu þessa blaðs. Af öðrum
þekktum myndum mætti nefna
„Útsýni frá Skeiðum“, sem
geymd er í safninu í Randers á
Jótlandi, og Heklumyndina
stóru, sem nú er í forsetabú-
staðnum á Bessastöðum. Auk
landslagsmyndanna liafa blóma-
myndir Ásgrims verið sérlega
rómaðar. Teikningar lians úr
íslenskum þjóðsögum hafa lika
vakið gevsilega athygli.
GRÓÐI Á HJÓNABANDINU.
Amerísk frú baðst nýlega skilnað-
ar við manninn sinn og bar því við,
að liún befði gifst honum nauðug
•— faðir bennar hefði selt bóndanum
hana. Þegar það gerðist varð manns-
efnið að borga þyngd hennar í mais
fyrir að fá að kalla liana konuna
sína. Hún vóg 00 kg. þá. Nú krefst
hún eigi aðeins þess að hjónaband-
ið sé gert ógilt heldur lika að faðir
tiennar greiði henni jafnmikinn
þunga í maís og hún vegur nú. Hún
er nfl. orðin 95 kg. og auk þess er
maísinn í hœrra verði en forðum,
svo að lnin hefir dálítið upp úr
þessu, ef rétturinn fellst á kröfu
hennar.
ÆTLAR AÐ VERÐA 200 ÁRA.
Frú Barbara Moore-Pataleewe sein
er 60 kíló á þyngd þó að hún lifi
eingöngu á ávaxtasafa, segist œtla
að verða 200 ára gömul. Hún hefir
ekki borðað almennilega máltíð svo
lengi sem hún man til. Núna cr hún
45 ára og segist vona að hún eigi
eftir að iifa 155 á sama gutlinu,
sem liún hefir nærst á undanfarið.
Hún drekkur þrjú glös af ávaxasafa
á dag, eða safa sem hún hefir gert
sér sjálf, og sýður úr grösum, sem
hún tinir i Hyde Park.
KÍNVERJAR TIL KANADA.
Kínverjar sækjast mjög eftir að
komast til Kanada. í fyrra sóttu 244
sem þegar voru búsettir í landinu,
um dvalarleyfi fyrir ættingja sína,
en það eru margvislegar hömlur á
þvi.
Tvöllin á Hellisheiði byggja Vestmnnnaeyjar. — Pennaleikning, gerð 19b8,