Fálkinn - 04.11.1949, Blaðsíða 1
I
16 aiöur
Þessi nujnd mun konui Reykvíkingum kunnuglega fyrir sjónir. Hún sýnir hluta af ytri höfninni og ber mcð sér, að oft get-
ur verið fallegt á síðsumarskvöldum i kyrrlátu veðri niður við sjávarsíðuna. Þeir eru lika margir bæjarbúar, sem leggja leið
sfna niður að Reykjavíkurhöfn, þegar vel viðrar að afloknu dagsverki eða um helgar, og á það við jafnt um unga sem
gamla. Spegilsléttur og glampandi sjórinn hefir þægileg og róandi áhrif á menn og er þeim kærkomin tilbreyting frá ys
og skarkala götulífsins í borginni. — A miðri myndinni hér að ofan sjást hinir gömlu ,,B.P.“ olíugeymar Olíuverslunar Is-
lands h.f. á Klöpp. Eins og kunnugt er, þá hefir fyrirtækið nú hafist handa um að reisa nýja oliustöð inni í Lauganesi, sem
verða mikil og glæsileg mannvirki. Mun Fálkinn birta myndir af henni síðar. Ljósm.: Halldór E. Arnórsson.