Fálkinn - 12.05.1950, Page 7
FÁLKINN
7
Glíma á ýmsan hátt.
Það gengur enginn að því gruflandi
að konurnar í Berlín þurfa að glíma
við matarleysi og fataleysi. En Ijós-
myndarinn flettir hér ofan af því,
að þær glímá líka á annan hátt og
mjög bókstaflegan. Þær hafa nefni-
lega byrjað að iðka fjölbragðaglímu
eftir amerískri fyrirmynd og eru
hrifnar af þeirri íþrótt. Þar færmörg
konan snögga byltu og stundum lið-
hlaup og jafnvel beinbrot.
iý&íftfííí:
Komu aftur eftir 4000 ár.
Á allraheilagramessu komu kar-
melítamunkar aftur í klaustur sitt
i Aylesford í Englandi, en þaðan
rak Henrik VIII. þá fyrir hOO árum.
Karmelítareglan var stofnuð fyrir
700 árum, og fyrsta klaustur henn-
ar var í Aylesford. — Hér sjást
munkarnir í skrúðgöngu til klaust-
ursins.
Brauð handa grískum börnum.
Nýlega kom stór farmur af korni
frá Bandaríkjunum til Grikklands,
en þangað hafa alls verið fluttar
milljón smálestir af vörum fyrir
Marshallhjálp. Mélinu var þakksam-
lega tekið og gerð úr því brauð
handa matgjafarstofnununum í
landinu, sem Grikklandsdrottning
er verndari fyrir. Hér sést eitt brauð
ið, sem verið er að skipta milli
drengja í drengjanýlendu einni, sem
sett hefir verið á stofn af Fredericiu
drottningu.