Fálkinn


Fálkinn - 03.11.1950, Qupperneq 5

Fálkinn - 03.11.1950, Qupperneq 5
FÁLKINN 5 hráslagakaldan nóvembermorg- un árið 1890 í Lille í Frakk- landi, og þar ólst hann upp. Hann óx snemma úr grasi og varð afar langur, svo að skóla- hræður lians kölluðu hann „langa aspargusinn.“ „Langi njólinn" mundi hann líklega liafa verið kallaður hér. En Njólinn var mesti sjór að læra og las allt sem liann komst yf- ir, einkum um hernað. Komst svo á liinn fræga herskóla i Saint-Cyr, og er hann hafði lokið prófi þaðan með besta vitriishurði fékk hann sjálfur að ráða í livaða herdeild liann færi. Árið 1913 innritaðist svo varaliðsforinginn Charles And- ré Josepli Marie de Gaulle í 33. fótgönguliðsherdeildina. Hann valdi þessa herdeild sökum þess hve mikla aðdáun hann hafði á foringja hennar Phil- ippe Pétain, síðar marskálki. Þá var de Gaulle 23 ára. Nær 30 árum síðar lalaði de Gaulle frá London í útvarpi og ávarpaði meðal annars fyrr- verandi yfirboðara sinn, en þá var aðdáunin farin út í veður og vind. Pétain var þá orðinn „hæstráðandi" Frakklands — sem þýskur leppur. De Gaulle sagði þá m. a.: „Herra marskálk ur, — gegnum ljósvakann og yfir liafið langar franskan her- mann að tala til yður. Á þess- ari örlagastund þeirrar gremju og blygðunar, sem vér finnum til, ættjarðarinnar vegna, verð- ur einhver rödd að svara yður. í kvöld er þessi rödd mín. Eg segi yður, herra marskálkur, Frakkland mun rísa upp aftur. Það skal rísa upp aftur í frelsi. Það skal rísa upp aftur, í sigri. Yopn okkar verða smíðuð langt í fjarska, en beitt skulu þau verða. Og sá tími mun koma að við hverfum heim aftur til ættjarðarinnar sigri hrósandi, undir vopnum sem bandamenn okkar og kannske aðrir hafa smiðað. Og þá munum vér skapa nýtt Frakkland." Einkennilegt hlýtur de Gaulle að hafa verið innan- brjósts er hann talaði þessi orð til manns, sem hann hafði forð- um borið meiri virðingu fyrir en nokkrum öðrum, og sem hann hafði barist sem liðsmað- ur iijá i fyrri heimsstyrjöldinni. Pétain hafði lika liaft miklar mætur á de Gaulle þá, og lét iians oft getið í dagskipunum sínum. De Gaulle var kominn í stríð- ið 1914 og þar særðist hann í orrustu við Dinant í Belgíu. Árið 1915 varð hann kapteinn, en stuttu síðar særðist hann í annað sinn í atlögunum við Verdun, og þá svo alvarlega að hann gat ekki forðað sér und- an. Þjóðverjar handtóku hann. en getið var hans í dagskipun í það skipti fyrir frækilega framgöngu. Finnn sinnum reyndi liann að flýja úr fangabúðum Þjóð- verja en náðist alltaf aftur og varð fangi til stríðsloka. Einu sinni liafði hann grafið sér jarð göng undir fangabúðagirðing- arnar og var kominn út á þjóð- veginn. Hafði liann náð sér í þýskan hermannabúning. En þá var hann tekinn. „Langi njól- inn“ frá Saint-Cyr átti bágt með að leynast, ekki sist vegna þess að hann var svo liávaxinn að honum var veitt meiri athygli en öðrum. De Gaulle er þurr á manninn og heldur durgslegur í fram- göngu. En stundum er eins og hann fyllist eldmóði. Þegar hann stendur í ræðustól er liann iðandi af fjöri og áhuga. En í eðli sínu er liann mesta dauð- yfli, enda sögðu foreldrar hans um hann, þegar hann var barn, að liann væri eins og hann væri fæddur í ískjallara. Trúmál og listir eru það, sem de Gaulle þykir mest gaman að hugsa um í tóinstundum sinum. Hann fer oft í kirkju og á list- sýningar, og það var á haust- sýningunni i Paris sem liann hitti fyrst konuefnið sitt. Þau voru bæði að skoða sama málverkið og hafa ef til vill horft meira hvort á annað en á myndina, þangað til sýningar- gestur sem þekkti þau bæði kom að og kynnti þau. Þau drukku te saman, en þegar þau voru nýsest var de Gaulle svo óheppinn að velta tebollanum, svo að teið helltist ofan á kjól ungfrú Yvonne. Þessi óvænta útgáfa leifturstyrjaldar hafði alvarlegar afleiðingar í för með sér: Finnn mánuðum síðar voru þau Charles de Gaulle kapteinn og ungfrú Yvonne Vendroux gefin saman. Þau eiga þrjú börn, dæturnar Elizabeth og Anne og soninn Philippe, sem heitinn er í höfuðið á Pétain marskálki. De Gaulle mundi tæplega láta heita í höfuðið á honum núna. Þegar Philippe de Gaulle lcom til Englands árið 1940 ásamt móður sinni og systrum, skönnuu á eftir föður sínum hershöfðingjanum, voru þau eins og óskilakindur er þau komu í land í Falmouth. Þau vissu ekkert hvar fjölskyldu- faðirinn var niðurkominn eða hvað hann hafði fyrir stafni. Litið liöfðu þau af skotsilfri og ekkert þeirra, kunni orð í ensku. Pliilippe keypti daghlað, þó að liann kynni ekki málið, en þó gat hann orðið nokkurs vísari af blaðinu. Á fyrstu blaðsíðu stóð feitletrað: „De Gaulle hershöfð- ingi skipuleggur lier frjálsra Frakka.“ — Og nú leið ekki á löngu áður en fjölskyldan hafði jarmað sig saman, og samfundirnir voru jafn hjart- anlegir þó að búið væri að svipta de Gaulle öllum metorðum og dæma hann til dauða. Innrásardagurinn í Frakk- land, 6. júní 1944, er mesti dag- urinn í ævi de Gaulles. Þá fannst honum sem liann væri kominn að marki óska sinna, þó að enginn vissi betur en hann að langt stríð væri fyrir hönd- um þangað til Þjóðverjar væru reknir úr Frakklandi. Þennan dag liélt hann ræðu til frönsku þjóðarinnar og sagði þá: „Orr- ustan um Frakkland er hafiri. Með allri þjóðinni í öllu franska lýðveldinu og hernum er aðeins ein ósk til, ein von. Bak við dinnna þoku blóðs og tára skal sól heiðurs vors skína á ný!“ Hann kom aftur til París sem sigurvegari eftir mikla herferð. Stríðið var unnið og takmarki hans náð, og de Gaulle hers- liöfðingi gat tekið á móti hyll- ingu og þakklæti hinnar sigri- hrósandi þjóðar. Allir sem vettl- ingi gátu valdið fylktu sér með fram götunum er de Gaulle kom gegnum Sigurhogann í fylkingarbroddi hersins og gekk niður Cliamps Elyséees og á Concorde-torgið. Hvellirnir sem komu frá byssum leyniskytt- anna er reyndu að ráða honum bana í Notre Damekirkjunni, voru eins og hjáróma raddir, og de Gaulle gekk til sætis síns eins og ekkert hefði ískorist og hlýddi á þakkarmessuna til enda. Sagan hefir þegar viður- kennt afliurði og .framsýni de Gaulles á hermálasviðinu. Þar sá hann betur fram í tímann en liinir gömlu hersliöf ðingj ar þeirra. En öðru máli gegnir um hann sem stjórnmálamann. Þar hefir liann heíðið ósigra. En liann er ekki af baki dottinn. Framtíðin á eftir að sýna, bvort liann á nokkuð gagnlegt erindi á vettvang stjórnmálanna. Taegu-biskupinn í París. Bisk- up „eldlínubæjarins“ Taegu í Kóreu, monseigneur Larribeau sem hefir verið í pílagrímsferð til Róm og fór síðan til Parísar og söng fyrir skömmu messu í Saint Louiskirkjunni í París. Hér sést lítill drengur kyssa á hring biskupsins í kirkjunni. Larribeau er nú á heimleið tit embættis síns i Kóreu. Litskrúðugir samningamenn. — Þrír ráðherrar frá Yemen í Arabíu liafa undanfarið verið í London til að gera verslunar- samninga við Herold Wilson, enska verslunarmálaráðherr- ann. Iiér sjást þeir fyrir utan Grosvenor House í litklæðum sinum og með rýtinga og vef jarhetti. Taldir frá vinstri eru þetta Quadi El Amari forsætisráðherra, Mohamed Elchamai land- stjóri í Almeida og Sayed Hassan Berehim verslunarmálaráðh.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.