Fálkinn - 23.02.1951, Qupperneq 2
2
FÁLKINN
Meðan öngþveitið ríkti í Belgíu
út af konungsmálinu, hélt Leo-
pold sig innan dyra í Laeken-
höllinni, en prinsarnir háðir
komu þá aftur á móti fram við
gms tækifæri. Á myndinni til
vinstri sjást prinsarnir, Boudoin
krónprins til vinstri, en Albert
til hægri. Á neðri myndinni sést
hópur belgislcra konungssinna
fyrir utan Laeken-höll. Fólkið
bíður þess, að Leopold sýni sig.
Sitt aí hverju um maxminn
Munkur sein hét Mihailo Toloto
og dó á 82. árinu rétt fyrir siðari
heinisstyrjöldina, í liinu fræga
klaustri á Atosfjalli í Grikklandi,
hafði aldrei séð kveninann. Móðir
hans dó af barnsförum þegar hann
fæddist og var hann þá þegar send-
ur i klaustrið og ólst þar upp og
gerðist munkur. í Atos-klaustur hef-
ir aldrei kona lcomið og Toloto
kom aldrei út fyrir klausturmúrana.
Hann hafði aldrei séð bifreið, járn-
braut eða kvikmynd.
Samkvæmt skýrslum, sem Alþjóða-
sambandið sáluga lét gera, var
mannfjöidinn í heiminum 2.145
milljónir árið 1940. Frá 1800 til 1921
ferfaldaðist ibúafjöldinn í Englandi
og Wales, þrátt fyrir mikinn út-
flutning. Á sama tíma óx mannfjöld-
inn í Evrópu úr 175 upp i 500
milljónir.
í þorpinu Bondo í Belgiska Kongo
lifir maður með tvö andlit. Öðru-
megin á aðalandlitinu er æxli, sem
lítur út alveg eins og mannshöfuð,
að því fráskildu að ekkert hár er
á kollinum. Frændum þessa manns
finnst mikið til lians koma og sýna
honum mikla virðingu.
Hitinn, sem streymir frá manns-
likamanum á hverjum klukkutíma
er nægilegur til að sjóðhita fjóra
stóra kaffikatla.
í Paarl i Suður-Afríku er maður
með þrjá fætur. þriðji fóturinn er
vel vaxinn, að undanteknu því að
lærið er miklu grennra en á liinum
tveimur.
Þegar við fæðumst eru 270 bein
í kroppnum á okkur, en ekki nema
206 þcgar við deyjum. 64 smábein,
sem við fæðumst með vaxa saman
við önnur stærri á barnsaldri.
Meðal þess sem skeður á einum
klukkutima á hnettinum má nefna
þetta: 4.600 manneskjur deyja og
5.400 fæðast. 198 þúsund glæpir
eru framdir en aðeins 117 þúsund
koma til kasta dómstólanna. Á
hverjum klukkutíma eru étnar 27.000
smálestir af kartöflum, 10.000 smá-
lestir af grænmeti, 3.300 smálestir
af keti og álíka mikið af fiski, 3
milljón egg og um 30 milljón brauð.
Af sykri er notað 10.000 smálestir,
180 smálestir af tóbaki er reykt,
tuggið cða tekið í nefið — og 130-
000 smálestir af kolum eru unnar
úr jörðu.
Hörundið hefir mikilsverðu starfi
að gegna. Það hindrar sóttkveikjur
og sníkla í að komast inn í líkam-
ann, heldur líkamshitanum í jafn-
vægi og hjálpar manninum til að
skynja þrýsting sársauka o. s. frv.
og hefir þýðingu fyrir andardrátt-
inn. Ef stórir blettir af hörundinu
eyðileggjast (t. d. við brunasár) er
ávallt Hfshætta á ferðum.
Lífeðlisfræðingarnir eru farnir að
telja að skilningarvitin séu 11 en
ekki 5, eins og liingað til hefir ver-
ið talið. Þeir bæta þessum sex við:
liitakennd, vöðvakennd, sársauka-
kennd, jafnvægiskennd, hungurs-
kennd og þorstakennd. Tveir þriðju
af mannslikamanum er vatn. Ef við
misstum fimmtung af vatninu i
kroppnum þá mundi það hafa dauða
— Skrítlur —
Rákarinn: — Hvernig viljið þér
hafa hárið?
Gestur: — Eins og hann bróðir
minn.
Raka.rinn: — Og livernig liefir
hann það?
Gestur. — Ilann hefir það ágætt,
þakka yður fyrir.
í miðdegisverði hjá hinum fræga
blaðaútgefanda Northcliffe lávarði,
sagði ein frúin við húsbóndann: —
„Thackery vaknaði einn morgun
og komst að raun um að hann var
orðinn frægur.“
„Fram að þeim degi,“ svaraði lá-
varðurinn, „hafði Thackery skrifað
átta tíma á dag í fimmtán ár. Eg
fullvissa yður um það, frú, að sá
sem vaknar og kemst að raun um að
hann er orðinn frægur, hefir yfir-
leitt alls ekki sofið.“
Fallhlifastökkvari hékk dinglandi i
stóru tré. „Eg ætlaði að reyna að
setja met,“ sagði hann við bónda
sem bar þarna að og góndi á liann.
„Þér hefir áreiðanlega tekist það,“
sagði bóndinn. „Þú ert sá fyrsti liér
í sveitinni, sem getur klöngrast of-
an úr tré án þess að liafa klifrað
upp í það fyrst.“
„Til er það, sem er stærra en
peningar.“
,,.Já, reikningarnir.“
Ilagfræðingur er maður, sem veit
heilmikið um ákaflega lítið, og lær-
ir meira og rneira um minna og
minna, þangað til liann loksins veit
allt um ekki neitt.
Ileimspekiprófessor er hins vegar
maður, sem veit ákaflega lítið um
mikið og lieldur áfram að læra
minna og minna um meira og meira,
þangað til hann loksins veit ekki
neitt um allt.
Spekiorð um aldur manns.
Maðurinn er ungur meðan kona
getur gert hann liamingjusaman eða
óhamingjusaman. Hann er miðaldra
þegar konan getur aðeins gert hann
hamingjusaman. Og gamall er hann
orðinn þegar konan getur hvorki
gcrt hann hamingju- eða óhamingju-
saman.
Fyrir utan útfararstofu í umferðar
mikilli götu í Hollywood stendur
þessi aðvörun: „Akið gætilega! Við
getum beðið.“
i för með sér. Þó ekki væri nema
tíundi hluti sem tapaðist þá yrði
það manninum liættulegt.
Á hverri sekúndu deyja 20 milljón
blóðkorn í mannslíkamanum og
jafnmörg lifna til þess að koma í
þeirra stað. Hver einasta vöðva-
lireyfing, hversu smávægileg sem er,
drepur bundrað þúsund af blóð-
kornum.
Úr fangabúðunum í Dachau komst
lifandi maður, sem var 180 cm. hár
en vóg — 21 kg. Hann hafði lélst
um 60 kg. í vistinni. Maðurinn náði
sér aflur.