Fálkinn - 23.02.1951, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
Þjóðleikhúsið:
„Snædrottningin"
Snædrottningin (Inga
Þóröardóttir) og Karl
(Valur Gústafsson).
Ævintýraleikurinn „Snædrottning-
in“, sem byggist á samnefndri sögu
H. C. Andersens, hefir fengiö góðan
byr við Þjóðleikhúsið. Er ekki nokk- ■
ur vafi á því, að fjöldi barna mun
ciga eftir ánægjulega stund við sýn-
ingar á lcikriti þessu.
Leikritið „Snædrottningin" er gert
af Eugene Schwarz, en uppistaðan
er, eins og fyrr greinir, hið snjalla
ævintýri H. C. Andersens. Bjarni
Guðmundsson hefir snúið leikritinu
á islensku. Leikstjóri er Hildur Kal-
man. Hefir henni tekist vel, þvi að
sýningin i lieild opnar ótal ævin-
týraheima fyrir börnin. Leiktjöld
Lárusar Ingólfssonar eru góð, og
sömuleiðis búningar þeir, sem Nína
Tryggvadóttir hefir gert. Má í þvi
sambandi sérstaklega nefna kráku-
búningana, en auk þess hvitabirn-
ina, snædrottninguna o. fl.
Leikendur eru margir og meðferð
hlutverka góð, þótt margir nýliðar
komi þarna fram. Sögumaðurinn
(Jón Aðils) á vafalaust einn drýgst-
an þátt í að skemmta börnunum,
enda er vel á hlutverkinu haldið. Af
öðrum stærri hlutverkum má nefna
Helgu (Ragnhildi Steingrimsdóttur),
Karl (Val Gústafsson), ráðgjafann
(Lúðvík Hjaltason), ömmu (Reginu
Þórðardóttur), Snædrottninguna
(Ingu Þórðardóttur), hirðkrákurn-
ar (Róbert Arnfinnsson og Þóru
Borg), ræningaforingjann (Emiliu
Jónasdóttur), Breddu (Friðrikku
fíelga (Ragnhildur Steingrímsdóitir)
og sögumaðurinn (Jón Aðils).
Geirsdóttur), kóngsdótturina (önnu
Stínu Þórarinsdóttur) og kóngsson-
inn (Jóhann Pálsson).
Það, scm helst mætti finna að
barnasýningu þessari er orðbragðið,
sem ræningjarnir og þá einkum
Bredda litla notar. Það er fullmikill
„kúrekastíll“ á því.
FLESTIR NOTA\ FINGURNA.
Hollenskur mannfræðingur liefir
tekið sér fyrir hendur að rannsaka
hvaða tæki mannkynið noti við að
eta. Kemst hann að þeirri niður-
stöðu að af hverjum liundrað manns
eti 2G með prjónum, 16 nota hnif og
gaffal og skeið, 21 notar eitthvað af
þessum tækjum en ekki öll, en 37
eta með fingrunum.
ENDURFUNDIR.
Ada Babbs, þriggja barna móðir,
vissi ekki betur en að maðtirinn
hennar, Charles, hefði fallið í strið-
inu, og Charles hafði verið sagt að
konan hans hefði farist í einni loft-
árásinni í London. Er þeim láandi
þó að þau yrðu dálitið forviða er
þau hittust á götu í London einn
góðan veðurdag? Það kom á daginn
að Charles haðf særst við Dun-
querke og misst sjónina um stundar-
sakir, en hafði nú fengið hana aft-
ur. Húsið sem frú Babbs bjó i, hafði
að visu orðið fyrir sprengju, en
hún slapp jafngóð.
Sigurður Sigurðsson, bóndi að Götuhúsum, Stokkseyri, verður 75 ára,
27. febr., og systir hans Sigurveig Sigurðardóttir, Stúfholti, Holtum,
verður 75 ára 27. febr.
Ýfst við „Ike“. — Þegar Eisen-
hower yfirhershöfðingi kom til
London í janúar gerðu komm-
únistar miargvíslegar tilraunir
til að lýsa vanfwknun sinni á
heimsókninni. Líkt og í öðrum
borgum sem hershöfðinginn
heimsótti, gengu kommúnistar
um göturnar með stór spjöld
með áletrunum, að Eisenhower
skyldi hypja sig heim sem bráð-
ast. Það gerði hann vitanlega,
eins og til stóð. En hann er
korninn aftur, þó að komm-
HALTU ÁFRAM MEÐ NÁMIÐ.
Ungur stúdent sat í járnbrautar-
lest til Cautaborgar og varð star-
sýnt á unga dömu, sem á móti hon-
um sat og var ljómandi falleg. Hann
þorði ekki að ávarpa hana, en gat
hins vegar ekki gleymt licnni, og setti
þess vegna auglýsingu í citt Gauta-
borgarblaðið: „Daman svartklædda
með hvita klútinn um háslinn, sem
sat í lestinni og prjónaði 2. jóladag
og tók eftir að ungur stúdent gaf
henni gætur, er beðin að senda bréf
merkt XYZ“. Stúdentinn fékk ckk-
ert bréf en i staðinn kom þessi aug-
lýsing í baðinu: „Til stúdentsins i
lestinni: Það vill svo til að daman,
sem þér auglýsið eftir er konan
min. Hugsið ekki meira um hana,
en haldið áfram með námið.“
DÁNARTILKYNNING.
Þjóðverjinn Herbert Mantschke,
2G ára, sem hefir átt lieima í Fúst-
zell á ameríska hernámssvæðinu
síðan 1945, fékk nýlega bréf frá
Rauða krossinum, þess' efnis að
hann liefði fallið á austurvigstöðv-
unum árið 1943. í bréfinu er beðið
um að tilkynna andlátsfregnina föð-
ur Herberts, sem Rauði krossinn
viti ekki hvar sé niðurkominn.
únistum líki það miður. — Hér
sjást lögregluþjónar vera að
fást við nokkra kommúnista.
Maria Montessori hinn frægi
ítalski uppeldisfræðingur og
höfundur hins svonefnda Mon-
tessori-kerfis.
W. Stuart Symin,gton fyrrver-
andi flugvarnaráðlierra Banda-
ríkjanna, núverandi öryggis- og
birgðaráðherra Bandaríkjanna.