Fálkinn - 06.04.1951, Page 13
F Á L K I N N
13
Ef það hafði annars haft nokkur áhrif
á liana, þá fannst lienni ennþá grunsam-
legra að Beaky skyldi sjálfur liafa um-
ráð peninganna.
Þvi hvernig í ósköpunum hafði Johnnie
þá hugsað sér að komast yfir þá nema með
einhverjum brögðum, sem myndu reynast
gjörsamlega gegnsæ?
3. kap.
Það voru tveir heilir dagar eftir af
dvöl Beakys.
Lina vissi ekki hvað hún ætii að taka
sér fyrir hendur.
Hún gat ekki séð hvernig hún gæti gefið
Beaky greinilegri aðvaranir lieldur en hún
liafði þegar gert. Ef hann var of heimskur
til að skilja bendingar liennar, þá gat hún
ekki hjálpað honum meira. Auk þess var
lienni nákvæmlega sama um það hvort
Beaky 'tapaði peningum sínum eða ekki.
Um þann möguleika hugsað ihún alls ekki.
Það, sem olli henni mestum hrolli og kvíða
í þessu sambandi, var það, að Johnnie
skildi afhjúpa sig sem orsök þess að vinur
hans yrði fyrir fjártjóni.
Ilún vissi ekki hvað til hragðs skyldi
taka.
Sú hugsun livarflaði að lienni að spyrja
Johnnie hreint út hvers vegna þessi grun-
samlega leynd væri svo nauðsynleg: spyrja
hann og krossyfirlieyra þangað til lienni
tækist að öðlast einhverja smávægilega
vísbendingu um þær fyrirætlanir, sem
Johnnie hlyti að hafa í huga, En Johnnie,
það var liún viss um, myndi ekki láta
spyrja sig spjörunum úr.
Þegar Lina sat í'yrir framan spegilinn á
náttborðinu sínu og vafði upp hárið í
linakkanum á sér, lagði hún frá sér hár-
nálarnar og einblíndi á spegilmynd sína.
Hvers vegna hafði Johnnie allt í einu
hætt við lóðaltaupin svona skyndilega? Og
hvers vegna hafði lionum verið svo um-
hugað um að Beaky fengi ekkert að vita
um það strax?
Og hvers vegna hafði hann á hinn bóg-
inn verið að haifa fyrir því að segja
lienni frá þessu?
Hafði hann gert það *til þess að undir-
húa liana undir eitthvað óvænt seinna
meira ?
Hvers vegna, hvers vegna, hvers vegna?
„0, Guð minn,“ andvarpaði Lina utan
við sig af kvíða.
Sagan ætlaði að endurtaka sig á ný;
og liún hafði gert sér vonir um að eig-
inmaður sinn væri orðinn að nýjum og
betri manni. Hið ósanngjarnlega farg á-
byrgðarinnar, ofurþungi ábyrgðarinnar,
sem liún þó hataði af öllu lijarta og fann
sjálfa sig vanmáttuga til þess að geta
borið, lagðist nú með öllum sínum þunga
á hana á ný.
Ilvaða sannanir hafði hún, þegar öllu
var á botninn hvolft? Alls engar. Það lá
ekkert það fyrir, sem bar þess raunveru-
legan vott að Johnnie hefði slikan glæp
í liuga. Þetta liafði bara verið órökstudd-
ur grunur hennar; og Lina hafði lesið
nógu margar hækur eftir karlmenn til
þess að henni var vel ljóst hversu lcven-
legar grunsemdir voru fallvaltar og óá-
byggilegar.
Líklega liafði þetta allt saman verið
ímyndun liennar.
4. kap.
En óttann setti að henni aftur í dag-
stofunni eftir kvöldverðinn.
Jolmnie var svo ákaflega stimamjúkur
við Beaky.
Árangurslaust reyndi Lina að telja
sjálfri sér trú um að það væri heimsku-
legt af sér að líta það tortryggnisaugum
þótt Johnnie væri stimamjúlcur við Beaky.
Hún mundi alltof vel hversu stimamjúk-
ur Johnnie liafði verið við hana sjálfa
um það bil, sem liann hafði verið að
féfletta liana og ræna. Og nú hegðaði
Johnnie sér nákvæmlega eins gagnvart
Beaky: liann hló að einfeldingslegri
fyndni hans, hann rifjaði upp fyrir hon-
um þær endurminningar, sem Beaky hafði
mest dálæti á, hann hélt að honum >vhis-
lcy og vindlum, og skeytti ekki liið allra
minnsta um eiginlconuna sína, svo upp-
tekinn var hann af gesti sínum.
„IIó, hó!“drundi í Beaky, er þegar var
orðinn talsvert drukkinn. „Hæ, taktu þetta
með ró, gamli refur. Þú ert bráðum búinn
að hlindfylla mig. Ha? Eg meina, vill Lina
ekki sjúss?“
„Nei, þakka þér fyrir,“ svaraði Lina
kuldalega. Hún liafði reglulega andúð á
Beaky nú orðið, fyrst liann var í þann veg-
inn að láta Johnnie féfletta sig og liafði
ekki skilið hendingar hennar.
Ætlarðu að hamra?“ spurði Beaky kæru
lejrsislega. „Fyrirtak. Heyrðu, gamli refur,
manstu eftir lögunum, sem Hardy gamli
spilaði á grammófóninn sinn? Þeir voru
heldur fjörugir, ha? Carolina Brown? Eh?
Guð minn góður! Spilaðu Carolina Brown,
Lina.“
Lina spilaði lag eftir Debussy.
Hún hugsaði með sér:
„Maðurinn minn ætlar að féfletta þig.
Fíflið þitt! Maðurinn minn ætlar að ræna
fimmtán þúsund pundum af þér! 1 Ivers
vegna i fjandanum kemurðu ekki sjálfur í
veg fyrir það?‘“
Hún stóð upp frá píanóinu.
Beaky fékk sér annan whiskysjúss eftir
áeggjan Jolinnies. Hann myndi sennilega
verða dauðadrukkinn innan stundar. Var
Johnnie að reyna að fylla hann? Hvers
vegna? Johnnie myndi vissulega ekki veit-
ast erfitt að fylla Beaky ef hann hefði hug
á því. Beaky gerði allt sem Jolinnie bauð
eða stakk upp á. En livers vegna skyldi
Johnnie vera að fylla Beaky liér og nú?
Peningarnir voru þó að minnsta kosti í
París.
„Eg lield að ég fari að hátta,“ sagði Lina.
Johnnie kinkaði kolli. Beaky stóð upp
heldur valtur á fótunum.
Lina leit á hann með fyrirlitningu. Hún
liugsaði á ný:
„Já, maðurinn minn ætlar að ræna þig.
Eins ábyggilega og tvisvar tveir eru fjórir,
þá ætlar liann að ræna þessum fimmtán
þúsund pundum af þér. Hann ætlar sér að
ná þessum peningum af þér jafnvel þótt
hann þurfi að myrða þig til þess að
lcomast yfir þá ef — ef .......“
AMOK
úr mér leiðindi,-heilan sæg af
whiskyflöskum, þær veita ágæta hugg-
un. Svo hefi ég líka hjá mér annan
félaga; ég iðrast ekki eftir öðru meira
en því, að hafa ekki tekið liann fyrr
í þjónustu mina, ég á við skamm-
byssuna mina, hún verður mér um
síðir áreiðanlega til meiri hugarhægð-
ar en nokkur játning. Eg held að þér
ættuð ekkert að vera að ónáða yður
með að heimsækja mig. Það er verið
að tala um mannréttindi. Ætli meðal
þeirra sé ekki sá réttur að mega flækj-
ast hvert sem manni sýnist án þess
að verið sé að kvelja mann á því að
„rótta manni hjálparhönd.“ Maður
skyldi ætla það.“
Það var fyrirlitningarhreimur , upp-
reisnarhugur í rödd hans, en ég fann
glögglega, að efst í hug hans væri nú
aðeins ein tilfinning; smán, tak-
markalaus blygðun. Hann kvaddi ekki
en snerist á hæli og reikaði í áttina
til klefa síns. Eg sá hann aldrei fram-
ar. Nótt eftir nótt lagðið ég leið mina
fram á skipið, á gamla staðinn, hann
var þar aldrei. Hann hvarf svo gjör-
samlega, að hefði ég ekki séð meðal
farþeganna hollenskan mann með
sorgarband um handlegginn, sem mér
var sagt að nýlega hefði misst konu
sína skyndilega úr hitasótt, myndi ég
hafa getað haldið að þetta ævintýri
hefði verið ofskynjun og draumur
einn. Þessi hollenski maður hélt sér
frá öðrum farþegum, talaði ekki við
neinn, var ávallt þunglyndislegur á
svip. Sú tilhugsun kvaldi mig í hvert
skipti, sem ég sá hann, að ég skyldi
þekkja leyndarmál, sem honum var
aðeins dulinn, kveljandi grunur. Eg
sneri mér ávallt undan, þegar hann
átti leið fram hjá mér. Eg gat ekki
varist þeirri hugsun að hann myndi úr
svip minum geta lesið, að ég vissi
meira um örlög hans en sjálfur hann.
f Napolihöfninni gerðist atburð-
ur, sem varð mér skiljanlegur í
ljósi frásagnar ókunna mannsins. Það
var haft hljótt um þennan atburð
og ég fékk ekkert ag vita um borð.
Það var ekki fyrr en í Genua, að ég
fékk að.vita, hvað hefði skeð. Þar
var sagt frá þvi i blöðunum.
Það var verið að flytja kistu í
land úr skipinu og húmið, sem
skollið var á, var notað til þess að það
gengi hljóðlega og vekti ekki at-
hygli. Þegar verið var að láta kist-
una siga niður i opinn bát við
skipshliðina, þar sem maður hinn-
ar dánu beið, hafði eitthvað þungt
fallið ofan á hana og beint henni
af réttri leið og hún sokkið i djúp-
ið eftir að hafa livolft bátnum.
Ýmsar getgátur voru uppi um orsök-
ina og mcðal þeirra var ein þess
eðlis að vitskertur maður hefði
kastað sér á kistuna og sokkið með
henni. En þvi var ekki sterklega
lialdið fram.
Hins vegar skýrðu blöðin frá því
á öðrum stað, að lík hefði fundist i
Napolihöfn af manni með skot-
sár á liöfði. Var þetta ekki sett i sam-
band við kistuna á neinn hátt.
En ég hefi minar eigin hug-
myndir um hinn óhamingjusama,
iiálffertuga man, sem ég liitti um
borð og afdrif hans. ENDIR.
Til kaupenda »FÁLKANS«
Vegna mikillar hælckunar á pappír, prentun og öðr-
um kostnaði viS útgáfu blaSanna liöfum viS neyðst til
að hækka verð Fálkans og Vikunnar sem hér segir:
Lausasöluverð ...... kr. 2.25 pr. eint.
Áskriftargjald ...... — 8.50 pr. mánuð.
Reykjavík, 1. apríl 1951.
Vikublaðið FÁLKINN
Heimilisblaðið VIKAN