Fálkinn


Fálkinn - 01.06.1951, Blaðsíða 10

Fálkinn - 01.06.1951, Blaðsíða 10
10 FÁLKINN — En lwað það verður gaman þegar hann verður stór og lærir að slú blettinn! — Hvort fjallið var það, sem þú hrapaðir ofan af? Já, méh Igst Ijömojidi vel á þennan — viljð þér gera svo vel að slökkva á öllum hinum, svo að ég sjái hvern- ig hann Igsir. 4,é+4,4,^+4,4,4,é4,4'4'4,4'4''!|?4,4'4'4'4'+,i'4'+íK filirfi U/eMNMNM 4r4,4,4,4'4'4'4,4'4'4,4"44,4'4'4,4,4?4,4,4,4,4,4,4,4,X Í Sir Richard Grenviile Stöðugt eggjaði hann menn sina: „Berjist, berjist, berjist,“ ........ Sir Riohard Grenville frá Bideford í Devon var einn hinna frægustu flotaforingja Englands á rfkisstjórn- arárum Elísabetar drottningar. Enda þótt hann ætti víðáttumikil óðul, og væri mjög auðugur maður, þá lineigð- ist liugur hans fremur að því, að tak- ast ferðir á hendur til nýju landanna, sem höfðu nýlega verið uppgötvuð, heldur en að sitja um kyrrt heima. Sökum hins fádæma hugrekkis síns og óbifanlegu ákvörðunar sinnar, um að hrökkva aidrei undan neinum ó- vini, hversu svo sem hann væri ofur- efldur, þá varð hann svo lánsamur, að ávinna sér óbrotgjarna frægð í einhverri stórglæsilegustu sjóorrustu, sem sögur fara af. Árið 1591 var hann aðstoðarflota- foringi yfir litilli herskipadeild, sem í voru sex orrustuskip, sex birgðaskip og tvær eða þrjár hleypiskútur, allt undir stjórn Lord Tliomas Howard. í ágústmánuði það ár, lágu þeir fyrir akkerum undir Florensey, en þangað hafi flotadeildin leitað til þess að endurnýja og auka vatnsbirgðir sínar, taka kjölfestu og, siðast en ekki síst, til þess að hressa áhafnirnar, því að margir mannanna voru orðnir þjakað- ir og sjúkir. Helmingur áhafnarinnar af skipi Grenville var ekki þjónustufær og var i landi, þegar það fregnaðist að spænskur herskipafloti, sem í væru fimmtíu og þrjú skip, væri i grennd- inni. Þegar flotaforinginn, sem vissi að hann var i vonlitilli aðstöðu, frétti þetta, bauð hann liinum skipunum i flotadeild sinni að létta þegar akkerum og fylgja sér út í opið haf. Allir flotaforingjarnir hlýddu fyrir- skipuninni nema Sir Richard Gren- ville, en það var skylda hans sem að- stoðar-flotaforingja að fylgja í kjölfar meginflotans. Hann beið einnig þang- að til þeir manna hans, sem í landi voru, gátu komið um borð. Á meðan undirbjó hann allt til orr- ustu og lét flytja alla þá sjúku undir þiljur. Hin ensku skipin voru komin langt í burtu, næstum þvi horfin út við sjón- deildarhringinn, og Spánverjarnir, er höfðu nálgast í skjóli við eyna, höfðu tekið stefnu, í tveim deildum, í áttina til „Revenge" áður en það var segl- búið. Þá sneru yfirmennirnir, sem sáu hversu illa þeir voru komnir, sér til Sir Richards og báðu hann að treysta á hraða skipsins, og „að hækka stór- seglið og skásigla skipinu og fylgja yfirflotaforingjanum.“ En Sir Richard fylltist ofsabræði, og sór að liann myndi láta liengja sér- hvern þann, sem vogaði sér að sýna af sér liinn allra minnsta bleyðiskap. Hann bætti við, „að hann vildi miklu lieldur deyja, fremur en að vanvirða sjálfan sig, landið sitt og herskip hennar hátignar." Hann tjáði mönnum sínum hvössum rómi, að liann liræddist enga óvini, að hann myndi þvinga sér leið í gegn- um spænsku flotadeildina og neyða hana til þess að hrökkva undan. Frh. á bls. 11. — Læknirinn hefir bannað mér að spila, hann sagði mér að stunda cinhverja fristundaskemmtun. Listaverkið er verndað. ** ^ >j)& XA Óþægl hár.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.