Fálkinn - 01.06.1951, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
ip
f&izýi
■ ■ V.;
tíl Englands til þess að leika í
fyrstu ensku kvikmyndinni sinni.
GENE „TIGER“ JONES í Þýskalandi. Hinn 29. ajrríl sl. keppti
hann við þýska meistarann Hein Ten Hoff. — Hér sést „Tiger“
rábba við lögregluþjón í Berlín.
LA PASSIONARIA, hin þekkta
spænska byltingarkona, sem heit-
ir Dolores Ibaruri réttu nafni. —
Hún hefir nýlega beint áskorun
sinni til allra andfasista á Spáni
um að steypa Franco af stóli. —
FÉKK EKKI að fara inn. Á ein-
um af fyrstu fundum utanríkis-
ráðherrafulltrúa stórveldanna, er
staðið hafa í París undanfama
mánuði, reyndi þessi maöur að
ryðjast inn á fund stórlaxanna.
Hann er „heimsborgari“, og hafði
meðferðis kynstrin öll af smárit-
um. Efni þeirra var einkum það,
að stofna bæri álheimsstjórn með
þeim Attlee, Auriol, Stálin og
Truman sem aðálmönnum.
I VOR varð Parisarlögreglan að
hirða gamla konu, sem fállið hafði
í yfirlið á götunni. Það kom á dag-
inn að hún hét Bajan Djavidan
og var ekkja elsta khedivans í
Egyptalandi, sem hét Abbas Hilmi
II. Hér sést gamla konan vera
að leita að hentugu herbergi i
auglýsingadálk Parísarblaðanna.
FRÚ PETAIN leggur af stað í
daglega heimsókn til manns sins,
þar sem hann liggur dauðvona í
fangelsi á eynni Yew.
SVART OG HVlTT. E. Charles
hnefaleikákappinn, sem nú er
heimsmeistari í þyngsta flokki,
sést hér ásamt konu sinni. Þau
hafa verið gift síðan 19ý9.
GEORG Bretákonungur veiktist
af inflúensu í vor. Þessi mynd var
tekin er hann var kominn á fætur.
ASlU-ÓLYMPlULEIK AR voru
haldnir í Idlanos, New Delhi og
voru þátttakendur frá ýmsum
Asiuþjóðum. M. a. voru þar jap-
anskir iþróttamenn, en þeir hafa
ekki tekið þátt i álþjóðáleikum
eftir stríð, fyrr en þarna. Myndin
er frá körfuknattleikskeppni milli
Indlands og Persíu. Persía vann.
RITA OG DÓTTIR HENNAR.
Myndin er tekin i Cannes í Frákk-
landi. Með henni á myndinni er
dóttir hennar úr fyrsta hjóna-
bandi, en þá var liún gift hinum
hugmyndarika Orson Wells. —
RITA I AÞENU. Hér sést hún við
hliðina á einni elstu súlunni, sem
stendur í rúst hinnar forngrísku
háborgar á Akropolis.